Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 5

Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 5
Formáli Rit þetta fjallar um búskap liins opinbera. Með búskap hins opinbera er átt við starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfis. Hér er þó undanskilin starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri starfsemi að jafnaði ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á almennum markaði. I ritinu er meðal annars að finna yfirlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins opinbera. Birt eru sundurliðuð yfirlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í heild. Jafnframt er fjallað um umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum og í því skyni stuðst við mismunandi mælikvarða. Þá er gerð grein fyrir skuldum og lánastarfsemi hins opinbera. Einnig er gerður samanburður á afkomu og umsvifum hins opinbera á Islandi og í öðrum aðildarríkjum OECD. Loks er fjallað um heilbrigðismál í alþjóðasamhengi. Gerð er grein fyrir markmiðum og leiðum, fjár- mögnun og framboði á heilbrigðisþjónustu og talnalegur samanburður gerður. Rétt er að vekja athygli á því að í þessu riti líkt og í því síðasta er fylgt þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var í Búskap hins opinbera 1992-1993, sem út kom í apríl 1994. Eldra uppgjör um fjármál hins opinbera hefur því verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er um að ræða ýmsar viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem teljast að réttu með samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna. Þessar breyt- ingar tengjast breytingu á reikningsskilum ríkisins, sem nú eru til umræðu. Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1990-1994, en þó er einnig í því að finna bráðabirgðatölur fýrir árið 1995 sem meðal annars eru byggðar á greiðslu- uppgjöri ríkissjóðs og tekju- og afkomuhorfum sveitarfélaga. Sömuleiðis er að finna talnaefni sem nær allt aftur til ársins 1980. Gerð er grein fyrir þessu talnaefni í fyrsta hluta ritsins og þar er Iögð áhersla á búskap hins opinbera í heild. Áður hafa komið út sex rit um sama efni; árið 1983, 1986, 1991, 1993, 1994 og 1995. Ritið sem gefið var út 1995 spannaði tímabilið 1990-1993. Nú bætist við eitt ár, 1994. Ritið kemur út árlega og er með áherslu á næstliðin tvö ár, með endan- legu uppgjöri fyrir fyrra árið og bráðabirgðatölum fyrir það síðara. Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum unnið að gerð þessa rits, tekið saman talnaefnið og samið skýringar. Þjóðhagsstofnun í apríl 1996 Þórður Friðjónsson 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Búskapur hins opinbera 1994-1995

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1994-1995
https://timarit.is/publication/1008

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.