Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 29

Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 29
ríkasta tækið til að stuðla að hagkvæmni og framförum14. Þó er það svo hvað heilbrigðisþjónustuna varðar að vissir eiginleikar hennar eru þess eðlis að frjáls mark- aður skilar ekki í öllum tilvikum þeim árangri sem til er ætlast. í fyrsta lagi er erfitt að tryggja viðunandi tekjudreifingu þannig að allir fái keypta lágmarks heilbrigðis- þjónustu á frjálsum markaði, þar sem erfitt er að sjá fyrir þörf hvers og eins fyrir heilbrigðisþjónustu. I öðru lagi er ljóst að á frjálsum markaði myndu tryggingaaðilar koma til skjalanna þar sem veikindi eru bæði mjög kostnaðarsöm og erfitt að sjá fyrir. Við slíkar aðstæður eru líkur á að tryggingaaðilar velji og verðleggi einstaklinga með tilliti til áhættu15. Þá eru líkur á við slíkar aðstæður að um ofneyslu á heilbrigðis- þjónustu verði að ræða (freistniáhrif)16 þar sem bæði sjúklingar og læknar geta hagnast á því þegar þriðji aðili greiðir þjónustuna. í þriðja lagi er neytandinn í mjög veikri stöðu á slíkum markaði, sérstaklega þar sem þekking hans á þeirri þjónustu sem hann þarf er mun lakari en læknisins17. Hann þarf að reiða sig á þekkingu heilbrigðis- starfsfólks í ríkum mæli. 8.1.3 Opinber afskipti Þessir erfiðleikar hins frjálsa markaðar hafa leitt af sér opinber afskipti af bæði fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar og framboði. Slík afskipti hafa þó ekki alltaf auð- veldað málin heldur haft óæskileg hliðaráhrif. 14 Viö slíkrar aöstæður vegur neytandinn og metur ávinningin af neyslu sinni á móti því verði sem hann þarf aö greiða. Framleiðandinn hámarkar virði framleiðslu sinnar við lágmarkskostnað. Og til lengri tíma litið ætti samkeppnin að tryggja að verðin héldust nálægt fómarkostnaði. Afleiðingin yrði hámarksafrakstur miðað við ákveðna tekjudreifingu. 15 Við frjálsar tryggingar eru líkur á áhœttuvali bæði af hálfu kaupenda trygginga og seljanda, þar sem upplýsingar þessara aðila um heilsufar kaupenda eru ekki gagnkvæmar. Hinn almenni markaður á erfiðleikum með að meta tryggingarverð á heilsu fólks. Hann styðst oft við ýmis meðaltalsgildi um heilsufar, aldur o.s.frv. við mat á áhættu og iðgjaldi. Neytandinn getur því fundið sig í þeirri stöðu að finnast iðgjaldið of hátt miðað við sitt eigið mat á heilsufari. Þá hefur tryggingaraðilinn hvatningu til að velja áhættuminni neytendur og jafnvel útiloka þá áhættumeiri. 16 Talað er um svokölluð “moral hazard” áhrif eða freistniáhrif þegar hegðun neytenda og framleið- enda breytist verulega við það að þriðji aðili greiði heilbrigðisþjónustunna að fullu. Freistniáhrif neytandans geta komið fram í því annars vegar að hann verður kærulausari um heilbrigðan lífstíl sem veldur aukinni þjónustuþörf, og hins vegar þegar til veikinda kemur að hann noti meiri þjónustu en hagkvæmt væri þar sem hann ber ekki fullann jaðarkostnað þjónustunnar. Verðkerfíð gefur m.ö.o. ekki rétt skilaboð. Hvað framleiðendur varðar geta freistniáhrif komið til skjalanna sé það verð sem greitt er til framleiðenda fyrir unnið verk annað en hið svokallaða ‘markaðsverð’ (eða raunverulegt samkeppnisverð). Þau áhrif geta komið fram í offlækningu (framboðsdrifinni eftirspurn) af þeirra hálfu færi það þeim fjárhagslegan ávinning. Neytendur veitir þeim m.ö.o. ekki nauðsynlegt aðhald. Freistniáhrif geta einnig komið til í kerfi fjármögnuðu af hinu opinbera sé framleiðandinn lítt ábyrgur eða meðvitaður um kostnað þeirrar þjónustu sem hann veitir. Til að draga úr freistniáhrifum hefur verið gripið til ýmissa aðferða, s.s. kostnaðarþátttöku sjúklinga, heilbrigðisstyrkja til neytenda, stofnunar samtaka um annars vegar kaup á ódýrri heilbrigðisþjónustu (HMO) og hins vegar samtök um sölu á ódýrri þjónustu (PPO), sjálfsábyrgð og hámarkstryggingu. 17 Vegna skorts sjúklinga á læknisfræðilegri þekkingu þurfa þeir oft á tíðum á ráðleggingum lækna að halda varðandi nauðsynlega neyslu á heilbrigðisþjónustu. Læknar lenda því í þeirri stöðu að vera báðum megin við borðið, hafa hönd í bagga við val á þeirri þjónustu sem veitt er og bjóða hana jafnframt fram. 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Búskapur hins opinbera 1994-1995

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1994-1995
https://timarit.is/publication/1008

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.