Heimilispósturinn - 12.12.1960, Page 10
Það hefur aldrei skeð að ég hafi séð jólasveininn
koma niður gegnum reykháfinn með gjafir í poka á
hakinu, en einu sinni hef ég séð hann liggja endilangan
þversum yfir rúmið mitt klukkan tvö um hábjartan
daginn — hrjótandi eins og gufuvél.
Þegai' þetta gerðist var ég tæpra tíu ára og lífsins
skóli hafði þegar kennt mér að gera mér ekki neinar
gyllivonir um hlutina. Móðir mín hafði dáið fyrir
nokkrum árum siðan og við faðir minn bjuggum í húsi
einu í grenndinni við Old Kentgötu. Pabbi hafði verið
atvinnulaus í október og nóvember þetta ár, og það
var ekki gott útlit fyrir annað en við yrðum að láta
okkur nægja ódýrar pylsur í jólamatinn.
Okkar einasta von var að hann tæki upp á því að
snjóa rækilega, svo pabbi fengi atvinnu við snjómokst-
ur. Eg mundi alltaf eftir því i kvöldbæninni minni að
biðja um snjókomu, en þar eð ég drýgði alltof margar
syndir á því tímabili varð árangurinn ekki sem skyldi.
Það féll ekki eitt einasta snjókorn. Þetta var mildasti
og þurrasti desembermánuður í manna minnum. Mér
létti því stórum þegar pabbi fékk vinnu af tilviljun
hálfum mánuði fyrir jól.
Hann hafði farið í Stórverzlunina á torginu til að
heimsækja Duffy vin sinn, sem var dyravörðui' þar.
Um leið og hann kom ók sjúkrabíll upp að dyrunum,
og maður í rauðum fötum var boi'inn út úr honum.
— Þetta er það versta, sem fyrir gat komið, sagði
Duffy. — Jólasveinninn okkar fótbrotnaði þegar hann
var að ganga niður tröppur.
Þegar pabbi gerðist jólasveinn, hlaut eitthvað stórkostlegt að gerast
ÞEGAR PABBI VAR
JÖLASVEINN
Það var heldur sorglegt svona fyrir jólin.
Pabbi tók upp jólasveinahúfuna, sem hafði fallið á
stéttina, og setti hana hugsandi á höfuðið.
— Þú kemur eins og af himnum sendur! hrópaði
Duffy fullur aðdáunar. — Hún klæðir þig alveg stór-
kostlega! Þetta illúðlega smetti á þér verður hreint
eins og engilsásjóna! Hann greip í handlegginn á
pabba og dró hann með sér innfyrir. — Þetta er lukku-
dagur fyrir þig í dag, Mick. Niðri í leikfangadeildinni
standa þeir og rífa hár sitt í örvæntingu af því þeir
hafa ekki hugmynd um hvar þeir eiga að finna annan
jólasveinn. Allir hinir hafa verið uppteknir í lengri
tíma. Parðu nú niður til þeirra með jólasveinahúfuna
á höfðinu og segðu þeim að þú hafir verið leikari. Þeir
hlaupa beina leið upp um hálsinn á þér!
Þannig byrjaði pabbi sem jólasveinn í Stórverzlun-
inni — og sá leit nú vel út! Það getur náttúrlega gert
okkar ódauðlegum sálum skaða að vera ölkær, en það
gefur mönnum að minnsta kosti þrifalega ístru og
blómlegt andlit — og hvorttveggjá er ómissandi fyrir
jólasveina. Bindindismaður er ef til vill heppilegri
gagnvart börnunum, en öldrykkjumaður gerir jóla-
sveinsbúningnum óneitanlega betri skil, finnst mér.
Launin voru tiltölulega góð í Stórverzluninni, og við
áttum að fá útborgaðar þúsund krónur á aðfangadag.
En vlð áttum eftir að reka okkur á, að það var hreint
+s
:i>
i. j
Qamansöm jólasaga
eftir
{Patnck (Ryaa
ekki svo auðvelt að vinna sér þær inn. Meðal erfiðleik-
anna var deíldarstjórinn i Stórverzluninni, hr. Gudgeon
— smásmugulegur náimgi fullur vantrausts, sem hélt
að allir hinir starfsmennirnir væru hundflatir ónytj-
ungar, sem aðeins legðu sig fram við að svíkjast und-
an verki og stela.
—■ Ég vona bara að hamingjan forði mér frá því að
gefa honum einn á ’ann fyrir jólakvöldið, drengur minn,
sagði pabbi þriðja daginn eftir að hann byrjaði, meðan
Pabbi hafði verið atvinnulaus í tvo mánuði, og það var
ekki gott útlit fyrir annað en við fengjum pylsur í jóla-
matinn. En svo fótbrotnaði jólasveinninn í Stórverzlun-
inni á torginu, og þá fór heldur að draga til tíðinda.
1 □
hann sat og fékk sér fótabað í bala. — Það er mið-
stöðvarhitun þarna — og svo þessi þungu stígvél, sem
ég verð að trampa í — það er beinlínis óþolandi! Og
ekki nóg með það — deildarstjórinn, þessi rangsnúni
Gudgeon, er alveg að gera mig vitstola. Hann fylgist
með hvenær ég kem og hvnær ég fer, telur fjölda
þeirra bai'na, sem ég kemst yfir á klukkutímanum og
gerir yfirlit yfir smáhlutina, sem hægt er að vinna í
lukkupottinum. Það vantaði tvo i kvöld, og ég mátti
gera svo vel og kafa með hausinn ofan i viðarull og
drasl til að róta eftir þeim. Ef við þyrftum ekki svona
nauðsynlega á peningum að halda, þá skyldi ég lúskra
á honum með hreindýrasvipunni minni á morgun!
En börnin voru ennþá verri en Gudgeon. Strákarnir
virtust hafa hinar furðulegustu hrekkibragðatilhneig-
ingar og litu ekki á jólasveininn sem þann, sem útbýtir
gjöfum mildri hendi, heldur eitthvert fyrirbæri til að
svala niðurbældum duldum sínum á.
Pabbi hafði ekki mikla þolinmæði við börn — fyrir
því hafði ég ýmsar áþreifanlega sannanir, — og fimmta
daginn byrjaði ég að efast um að hann væri starfinu
vaxinn.
— Þetta fer I taugarnar á mér! sagði hann. Eg er
orðinn svo hrekktur að ég þori ekki lengur að láta
krakkaormana hvisla óskum þeirra í eyrað á mér. Ég
horfi niður á raðir af brosandi andlitum og reyni að
reikna út hvert þeirra muni vera líklegast til að hella
kláðadufti niður í hálsmálið á mér eða klína tyggi-
gúmmi í skeggið á mér. Það er alveg útilokað að
dæma þetta rétt. Eftir því sem þau sýnast sakleysis-
legri því verri eru þau! Þegar lítill, ljóshærður snáði
átti að kveðja mig I dag, slengdi hann blautum froski
í hendina á mér. Ég er viss um að Gudgeon og hyski
hans mundi setja mig í spennitreyju áður en jólin
renna upp.
Ég sá fyrir hvernig þúsund krónurnar gufuðu upp i
loftið. Siðferðisstyrkur pabba varð æ veikari. Það varð
svo slæmt, að hann varð að leggja leið sína í „Kátu
Kanínuna" í hverju hádegisverðarhléi til þess að fá
eitthvað til að róa taugarnar. Þegar vesöld hans óx
dag frá degi fór ég sjálfur þangað og gægðist inn um
gluggann til að fullvissa mig um að hann færi í Stór-
verzlunina í tæka tíð.
Þannig gekk þetta stórslysalaust þangað til 22. des-
ember. Það var hinn stóri dagur verzlunarinnar, því
þá hélt aðalforstjórinn, hún frú Calip, sina árlegu jóla-
hátíð fyrir munaðarlaus börn. Hún var eigandi fjölda
stórverzlana og kom alltaf í eigin persónu á þessa há-
tíð I verzluninni við Old Kentgötu. Hún var sérvitur
og ekkert lamb að leika sér við, en samt sem áður
vingjarnleg — og hún dæmdi deildarstjórana og stjórn
HEIMILISPÓSTURINN