Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 2
Torfi Geirmundsson var við sjöunda
mann á Grillinu á Hótel Sögu. Þeg-
ar þeir höfðu snætt dýrindis máltíð,
pöntuðu þeir sér sex Irish coffee,
sem er viskíblandaður kaffidrykkur.
Þessi pöntun átti heldur betur eftir
að draga dilk á eftir sér.
Kalt Irish coffee
„Það var mikið að gera þetta kvöld
og við veittum því athygli að kaffið
var búið að standa lengi undir rauðu
ljósi. Loks fengum við kaffið og þá
reyndist það kalt og því ódrykkjar-
hæft. Við kölluðum á þjón og báð-
um hann um að kaffið yrði fjarlægt
og dregið frá reikningnum. Sigurð-
ur Runólfsson, yfirþjónn á staðnum,
var ekki á þeim buxunum og sagði að
við yrðum að borga allan reikning-
inn, sem hljóðaði upp á 144 þúsund,“
segir Torfi en bætir við að þeirri tölu
gleymi hann aldrei: „Í opinberunar-
bókinni er talan 144 heilög og talað
um hinar 144 þúsundir sem fara upp
til himna. Þær séu kynkvísl Ísraels.“
Eftir að Torfi hafði rifið ávísunina
kallaði Sigurður á lögregluna sem
gat ekkert aðhafst en fylgdi Torfa og
samferðafólki hans út af hótelinu.
„Þegar við gengum út um dyrnar
fengum við þá fyrirskipan að þangað
skyldum við aldrei koma aftur og að
þetta mál færi í hart,“ segir Torfi.
Lögfræðingarnir hlógu
Annan maí fór Torfi til Konráðs
hótelstjóra til að reyna að ná sáttum.
Það gekk ekki því hann stóð þétt við
bakið á yfirþjóninum og neitaði að
draga kaffið frá reikningnum. Torfi
var ekki á því að gefast upp. „Frá
Konráði fór ég beint upp á Dagblað.
Þeir tóku málið upp og fjölluðu um
það frá hliðum beggja 3. maí 1979.
Síðan liðu tímar og ég fékk reglu-
lega innheimtuseðil frá
hótelinu sem hækk-
aði með hverj-
um mánuði sem
leið. Fljótlega fór
ég að fá bréf frá
Geir Zoëga lög-
fræðingi þess efnis
að mér yrði stefnt ef
ég gerði ekki
upp skuld-
ina,“ seg-
ir Torfi.
Fyrsta
janúar
1981
varð
mynt-
breyting og
tvö núll
tekin aftaf
af öll-
um upp-
hæðum.
Skuldin
var komin
upp í 2.800
krónur, eða 280
þúsund gamlar
krónur þegar Torfi
fór með málið til lögfræð-
ings. Honum gekk erfiðlega að fá lög-
fræðing til að taka málið að sér. „Eft-
ir að hafa hitt þrjá lögfræðinga sem
hlógu að mér hitti ég loks á einn sem
var reiðubúinn að segja mér til, þótt
hann vildi ekki leggja nafn sitt við
aðstoðina. Hann hjálpaði mér við
greinargerðina og ég ákvað að verja
mig sjálfur,“ rifjar
Torfi upp.
Réttað fimm
árum síðar
Málið var
loks tekið
fyrir árið
1984 með
heljar-
innar
réttar-
höldum.
Torfi las
sér til um
kaupalögin,
þau sem við áttu,
og naut þeirra rétt-
inda að fá að spyrja dóm-
arann ef hann þyrfti. „Þetta var mjög
skrautlegt og skemmtilegt. Ég kall-
aði til vitni og sýndi auk þess nokkrar
uppskriftir að irish coffee sem allar
sýndu að kaffið ætti að vera sjóðandi
heitt. Sækjandi gerði þau mistök að
saka mig um að ráðast á iðnlærðan
mann og kallaði Sigurð til vitnis. Ég
fékk að spyrja Sigurð og upp úr krafs-
inu kom að hann hefði ekki lagað ir-
ish coffee-drykkina sjálfur, heldur
hafði kona sem unnið hafði á hót-
elinu í yfir 20 ár búið til kaffið. Hún
var ekki faglærð og því féll sá mál-
flutningur um sjálft sig,“ segir Torfi.
Málinu lauk þannig að Auður Þor-
bergsdóttir dæmdi Torfa til að borga
reikninginn að frátöldu kaffinu. Að
auki dæmdi Auður hótelið til að
greiða 4.000 krónur í málflutnings-
kostnað. Eftir stóð að hótelið greiddi
Torfa 1.300 (130 þúsund gamlar)
krónur og kom Torfi því út í plús.
Smakkar ekki Irish coffee
„Ég sé mest eftir að hafa ekki
innrammað ávísunina sem ég fékk
senda frá Hótel Sögu. Þetta er í fyrsta
og eina skiptið á ævinni sem ég hef
fengið greidd málflutningslaun,“
segir Torfi léttur í bragði en bætir við
að hann haldi sig fjarri irish coffee
og slíkum drykkjum í dag, til að
fyrirbyggja vandræði á borð við þau
sem hann lenti í fyrir um 30 árum.
Þetta helst
föstudagur 21. september 20072 Fréttir DV
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
DV greindi frá á mánu-
daginn að Americo Luis
Da Silva Conçalves, sem
var dæmdur í aðeins
þriggja og hálfs árs fangelsi
í Hæstarétti, lét sig hverfa. Hann
fór til útlanda, ekki er vitað hvert.
„Hann er bara eins og hver ann-
ar ferðamaður í fríi,“ sagði Gylfi
Thorlacius, verjandi Americos.
Þessi frétt er merkileg, eða réttara
sagt að það láðist að óska eftir
lengra farbanni og þess vegna gat
Americo farið kvaðalaust. Það er
undir honum komið hvort hann
kemur aftur til að taka út refsinguna. Vinnufélagi Americos segir
hann ekki ætla að koma aftur. „Hann kemur aftur. Það er enginn vafi
á því. Hann er hér með fasta vinnu og húsnæði. Hans heimili er á Ís-
landi,“ sagði Gylfi verjandi.
nauðgarinn farinn
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2007 DAGBlAðið víSiR 145. TBl. – 97. ÁRG. – vERð kR. 235
>> „Það sem ég tek sérstaklega eftir hér á
Íslandi er að það er eins og allir í Reykjavík
séu alltaf til í partí,“ segir Bob Hardy,
bassaleikari Franz Ferdinand. Hann og
Alex Kapranos, söngvari hljómsveitarinn-
ar, eru í viðtali við DV í dag. Hljómsveitin
semur nú ný lög á næstu plötu sína og
Kapranos lýsir því í viðtalinu hvernig eitt
lag varð til á upphitun fyrir tónleika
hljómsveitarinnar á föstudag.
Alltaf til í partí
Óvíst hvort nauðgari afpláni þriggja og hálfs árs dÓm:
>> Auðunn Jónsson kraftlyftingamaður berst nú fyrir heims-meistaratitlinum. Hann féll á lyfjaprófi en hefur kært fram-kvæmdina.
NAUÐGARINN
FARINN
Kvarta
undan Karli>> Bæjarfulltrúar minnihlutans í Mosfellsbæ eru æfir út í Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar, og kvarta sáran undan orðbragði hans á bæjarstjórnarfundi.
Féll á
lyFjapróFi
fréttir
fréttir
>> Arsenal er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. Arsenal lagði nágranna sína í Tottenham að velli, 3–1. Tottenham hefur ekki unnið Arsenal frá því í nóvember 1999.
enskiboltinn
Americo Luis Da Silva Conçalves fór úr landi áður en Hæstiréttur staðfesti dóm yfir honum vegna hrottalegrar nauðgunar. Farbann sem hann var úrskurðaður í meðan á rannsókn stóð rann út án þess að það væri framlengt. Lögmaður Americos segir hann í fríi erlendis en fyrrum samstarfsmaður Americos á ekki von á að hann sjáist aftur á Íslandi. Fórnarlambið hitti Americo á Dubliner. Sjá bls. 6 og 7.
3 á
r1/2
Auðunn Jónsson kraftlyft-
ingamaður féll á lyfja-
prófi eftir að hafa sigrað
á heimsmeistaramóti.
Hann var meðal þeirra
sem voru tilnefndir sem
Íþróttamaður ársins sökum ár-
angursins. DV greindi hins vegar
frá því á mánudag að Auðunn féll
á lyfjaprófi og sennilegast missir
hann titilinn þess vegna. „Þetta
er prófmál fyrir Alþjóðaíþrótta-
dómstólnum. Hann er ekki enn
búinn að missa titilinn. Málið er
í athugun,“ sagði Jóhanna Eiríks-
dóttir, formaður Kraftlyftinga-
sambands Íslands.
féll á lyfjaprófi
mánudagur 17. september 20072
Fréttir DV
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Samkeppniseftirlitið hefur veitt Að-
alstöðinni, sem rekur leigubílastöðvar
í Hafnarfirði og Reykjanesbæ, undan-
þágu frá afnámi hámarksökutaxta sem
sett var á snemma síðasta árs. Með
undanþágunni getur Aðalstöðin far-
ið fram á við alla sína bílstjóra að aka
samkvæmt sama taxtanum.
Samkeppniseftirlitið afnam há-
marksökutaxta í febrúar 2006 og með
því fengu leigubílstjórar frelsi til að
ákvarða sjálfir þann taxta sem þeir
keyra eftir. Ákvörðunin var tekin í sam-
ráði við Bandalag íslenskra leigubíl-
stjóra. Síðan tekin var ákvörðun um
að afnema hámarkstaxta hefur flest-
um leigubílastöðvum aftur á móti ver-
ið veitt undanþága og því geta þær
sett fram taxta fyrir alla sína bílstjóra.
Hreyfill-Bæjarleiðir og BSR hafa til að
mynda hlotið slíka undanþágu.
Ingólfur Möller, framkvæmdastjóri
Aðalstöðvarinnar, fagnar undanþágu
Samkeppniseftirlitsins. Hann segir ljóst
að leigubílstjórar vilji starfa eftir gamla
laginu. „Heimildin sem við fengum er
svipuð og flestar stöðvarnar hafa fengið.
Þetta er bara jákvætt enda þurfa stöðv-
arnar á þessu að halda. Það er bara
hættulegt fyrir neytandann að hver og
einn ákveði verðið sjálfur,“ segir Ingólf-
ur. „Það er miklu betra að allir keyri á
sama taxta og þannig getum við hækkað
eða lækkað taxtann eins og við viljum.
Bílstjórarnir vilja líka hafa það þannig
og ég held að þetta endi aldrei þannig
að bílstjórarnir ráði verðinu. Í raun
undrast maður afnámið því eftir það
veita þeir öllum undanþágur. Ég held að
Samkeppniseftirlitið sé bara að kaupa
sér tíma því þeir vita ekkert hvernig þeir
vilja hafa þetta.“ trausti@dv.is
Ráðvillt gagnvart leigubílaakstri
Taka mið af lang-
veikum börnum
Stefna og úthlutunarreglur
um sérkennslu á leikskólastigi
verða endurskoðaðar af leik-
skólaráði Reykjavíkur á næst-
unni. Í tillögum sem nýlega voru
samþykktar í ráðinu kemur fram
að leikskólaráð vilji endurskoða
úthlutunarreglur vegna sér-
kennslu þannig að þær taki mið
af aukinni sérhæfingu í meðferð
langveikra barna. Settir verða á
laggirnar starfshópar til þess að
framfylgja tillögum leikskólaráðs.
Steingrímur
neitar sök
Steingrímur Njálsson neit-
aði sök um að hafa hótað Illuga
Jökulssyni, fjölmiðlamanni og
fyrrverandi ritstjóra DV, lífláti í
Héraðsdómi Reykjavíkur á föstu-
daginn. Steingrími er gefið að
sök að hafa hótað Illuga lífláti í
gegnum talhólf 6. nóvember á
síðasta ári. Málið var tekið fyrir
á þriðjudaginn í síðustu viku en
Steingrímur tók sér frest til að
svara ákærunni. Á föstudaginn
neitaði hann sök en sagði að
DV-menn væru mannorðsmorð-
ingjar.
Illugi Jökulsson vildi ekki tjá
sig um hótunina í hans garð þeg-
ar til hans var leitað. Aðalmeð-
ferð í máli Steingríms fer fram 5.
október næstkomandi.
Strætó þarf hálfan
milljarð í viðbót
Strætó bs. þarf rúman hálfan
milljarð í viðbótarfjárveitingu
næstu þrjú árin frá aðildarsveitar-
félögum fyrirtækisins. Stjórn fyrir-
tækisins hefur lagt fram þá tillögu
fyrir öll aðildarsveitarfélög fyrir-
tækisins að þau í sameiningu leggi
fram 550 milljónir króna aukalega
í reksturinn fyrir árin 2007, 2008 og
2009. Fyrir helgi samþykkti bæjar-
stjórn Garðabæjar sinn hlut í fjár-
veitingunni. Tillagan var samþykkt
með þeim fyrirvara að hin aðildar-
sveitarfélögin samþykki einnig að
veita meiri fjármuni til rekstursins.
Fjölgar mest
í Reykjavík
Þeim sem flytja til og frá
landinu hefur fjölgað töluvert
á undanförnum árum. Fyrstu
sex mánuði ársins fluttust
3.784 erlendir ríkisborgarar til
landsins, samkvæmt vef Hag-
stofunnar. Þessi tala er álíka
há og undanfarin tvö ár. Fjöldi
útlendinga sem flyst frá Ís-
landi hefur á sama tíma aukist
umtalsvert frá undanförn-
um árum. Útlendingar sem
fluttu frá landinu voru 1.138.
Í Reykjavík fjölgaði aðfluttum
umfram brottflutta um 502 frá
því í janúar fram í júní. Íbúum
í Borgarbyggð fækkaði hins
vegar mest eða um 65.
Ráða ekki verði Leigubílastöðvar fá undanþá
gur frá samkeppniseftirlitinu þannig
að bílstjórar aka allir eftir sama taxtanum.
ákvörðun um afnám hámarkstaxta var
tekin fyrir rúmu ári.
FÉLL Á LYFJAPRÓFI
Heimsmeistaratitill Auðuns Jónssonar
í kraftlyftingum frá nóvember í fyrra er
á bið eftir að hann féll á lyfjaprófi. Auð-
unn hefur kært framkvæmd prófsins
og verður málið tekið fyrir af alþjóða-
íþróttadómstólnum 15. nóvember.
Það skýrist ekki fyrr en þá hvort Auð-
unn heldur titlinum eða ekki.
„Auðunn er búinn að stefna að
þessum titli í fjöldamörg ár. Hann er
ekki það vitlaus að taka áhættuna á
að missa heimsmeistaratitil,“ segir Jó-
hanna Eiríksdóttir, formaður Kraftlyft-
ingasambands Íslands.
Prófmál
Auðunn var tilnefndur sem
Íþróttamaður ársins í fyrra en lenti í
áttunda sæti. Hann hefur farið í fjölda
lyfjaprófa en aðeins fallið í þetta eina
skipti.
Jóhanna segir framkvæmd lyfja-
prófsins sem Auðunn féll á hafa verið
með afar óvenjulegum hætti. „Það var
komið upp á hótelherbergi til hans
og hann vakinn klukkan hálfsex að
morgni tveimur dögum fyrir mótið.“
Hún segir þann sem tók prófið hafa
verið einan á ferð en venjan sé að
tveir séu viðstaddir lyfjaprófanir. Auk
þess hafi viðkomandi ekki sýnt nein
skilríki til að sýna fram á að hann væri
sá sem hann sagðist vera.
„Þeir eru að herða ólina,“ segir Jó-
hanna um þá sem standa að lyfjapróf-
unum. „Það er auðvitað gott og bless-
að en það er þó lágmark að fólk fái að
halda virðingu sinni.“
Hún bendir á að ef framkvæmd
lyfjaprófsins verður ógild missir
Auðunn ekki heimsmeistaratitilinn.
„Þetta er prófmál fyrir alþjóðaíþrótta-
dómstólnum. Hann er ekki enn búinn
að missa titilinn. Málið er í athugun.“
Handahófskennd lyfjapróf
Í þvagi Auðuns fundust niðurbrots-
efni sem líkaminn framleiðir sjálfur en
þau gefa til kynna að viðkomandi ein-
staklingur hafi tekið inn óleyfileg efni.
Þetta eru sams konar niðurstöður og
fengust mánuði fyrr hjá Jóni Gunnars-
syni, betur þekktum sem Jón bóndi, en
hann missti heimsmeistaratitil í kraft-
lyftingum í flokki öldunga. Stuttu síð-
ar komst Jón í fréttirnar þar sem hann
reyndi að smygla til landsins miklu
magni af afkastaaukandi efnum sem
eru ólögleg hérlendis. Þetta var í ann-
að sinn sem Jón féll á alþjóðlegu lyfja-
prófi.
Jóhanna tók við sem formaður
Kraftlyftingasambandsins í fyrra. Hún
er fyrsta konan sem gengir þessu emb-
ætti og hefur aðrar áherslur en forver-
ar hennar, hún hefur til dæmis unnið
ötullega að því að sambandið gangi
inn í Íþróttasamband Íslands. „Þá get-
um við haldið regluleg lyfjapróf. Aðilar
að ÍSÍ geta alltaf átt von á handahófs-
kenndum lyfjaprófunum.“
Á titilinn skilinn
Hún segist telja fulla ástæðu til
að skoða þau fæðubótarefni sem
leyfileg eru hér á landi.
„Lyfjaprófin eru mjög nákvæm.
Mér finnst mikilvægt að það sé at-
hugað hvort öll efni sem fæðu-
bótarefnin innihalda séu skráð á
umbúðum.“ Hún ítrekar að engin
óleyfileg efni hafi fundist hjá Auð-
uni. „Hann er einn allra besti kraft-
lyftingamaður landsins. Hann á tit-
ilinn fullkomlega skilinn. Ég veit að
hann hefði aldrei tekið þá áhættu
að neyta einhverra efna fyrir mót-
ið.“
Auðunn varð heimsmeistari í
kraftlyftingum þar sem keppt er í
þremur greinum; hnébeygju, bekk-
pressu og réttstöðu. Auðunn keppti
í 125 kílóa flokki en í honum eru
þeir sem vega frá 110 kílóum og
upp í 125 kíló.
Auðunn vildi ekki tjá sig um mál-
ið þegar DV náði tali af honum en
vísaði á lögmann sinn, Stefán Karl
Kristjánsson. Hann staðfesti að
málið væri til rannsóknar en vildi
annars ekkert láta hafa eftir sér.
ERla HlynsdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Það var komið upp á
hótelherbergi til hans
og hann vakinn klukk-
an hálfsex að morgni
tveimur dögum fyrir
mótið.“
auðunn Jónsson
Jóhanna Eiríksdóttir
auðunn Jónsson auðunn varð
heimsmeistari í kraftlyftingum í
fyrra. Hann féll á lyfjaprófi eftir
mótið en hefur kært fram-
kvæmd þess.
2
Fré t konur eru e ki
lengi í starfi á fréttastofu
Ríkisútvarpsins. DV
sagði frá á þriðjudag að
reyndar konur í starfi hafa
flúið fréttastofuna. Öfugt
við karlana. Mér líst mjög illa á
fækkun kvenna á fréttastofunni.
Auðvitað hafa einhverjar nýjar
komið inn en áhugi stjórnenda
á að hafa konur á miðjum aldri í
starfi virðist ekki vera sérstaklega
mikill,“ sagði Anna Kristín
Jónsdóttir, ein þeirra sem eru
hættar. Óðinn Jónsson, fréttastjóri
útvarpsins, vildi ekki tjá sig um málið þegar DV leitaði eftir því.
o urnar f ýja
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 18. SEPTEMBEr 2007 dagBlaðið víSir 146. TBl. – 97. árg. – vErð kr. 235
Fjöldi kvenna heFur horFið á brott Frá ríkisútvarpinu undanFarið:
Þrjár reyndar
fréttakonur eru að
hætta störfum á RÚV
og eru nú nánast allar
reyndar fréttakonur
hættar á fréttastofu
útvarps. Karlarnir eru
flestir enn við störf.
Konurnar segja
stóreinkennilegt hve
konur endist illa á RÚV
og að hundur liggi
grafinn. Sjá bls. 2.
KonuRnaR
flýja RÚV
>> Mannbjörg varð þegar fjórum sjóstangaveiðimönnum var bjargað úr sjávarháska í fyrrakvöld. Bjargvætturinn, Guðbrandur Baldursson, kom fyrstur á staðinn en hann er menntaður snyrtifræðingur og var talinn líklegur arftaki Heiðars snyrtis. Hann var heima í rólegheitum þegar hann fékk símhringingu frá Neyðarlínunni sem bað hann um að bjarga fjórum mönnum.
SNYRTIFRÆÐINGUR
BJARGAÐI MÖNNUM
Í SJÁVARHÁSKA
fréttir VistVænirfararskjótar
>> Ein stærsta umhverfisógn nútímans er mengun af útblæstri bíla. Í tilefni alþjóðlegrar samgönguviku ræddi DV við fólk sem ekur vistvænum bílum.
DV Sport þriðjudagur 18. september 2007 15
Sport
Þriðjudagur 18. september 2007
sport@dv.is
Spennandi leikir í Meistaradeildinni
valsstúlkur vörðu íslandsmeistaratitil sinn í landsbankadeild kvenna. bls 17
Kenny Miller
Fyrsti sigur Derby á tímabilinu
íslandsmeistarar
Valur enn í öðru sæti >> Valsmönnum mistókst að komast í
efsta sætið í Landsbankadeild karla. ÍA
heimsótti Val á Laugardalsvöll og
lokatölur urðu 2–2 í æsispennandi leik.
Valur er því tveimur stigum á eftir FH
þegar tveir leikir eru eftir, en Valur og FH
mætast í næstu umferð. Skagamenn eru
sem fyrr í þriðja sæti, sex stigum á eftir
Val. Valsstúlkur tryggðu sér hins vegar
Íslandsmeistaratitilinn í gær.
Valur missteig sig3
„Það fauk virkilega í mig
er ég sá að mér er ekki
eignaður sá heiður sem
ég á skilið sem hug-
myndasmiður þáttanna.
Ég læt ekki taka
mig svona og
krefst hiklaust
lögbanns ef
þeir bæta ekki
sín vinnu-
brögð. Það er
mjög leiðin-
legt að þurfa
að fara þessa
leið en ég get
ekki annað,“ segir Gestur Valur Svansson,
sem telur sig vera hugmyndasmið og
höfundarréttarhafa sjónvarpsþátt-
anna Næturvaktarinnar.
Þessi var forsíðufrétt DV á miðviku-
dag. „Það hefur fyllilega verið stað-
ið við alla samninga við hann og
ekkert verið að svína á honum. Þó
að lagalega teldi ég ekki nauðsyn
til lagði ég samt áherslu á það að
hans yrði getið í ferlinu. Mér fannst
það vera kurteisi,“ sagði Ragnar
Óskarsson, leikstjóri Næturvakt-
arinnar.
næturvaktin er mín
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
miðvikudagur 19. SEPTEmBEr 2007
dagBlaðið víSir 147. TBl. – 97. árg
. – vErð kr. 235
GESTUR VALUR SVANSSON áTTi HUGMYNDiNA AÐ GRÍNÞáT
TUM á BENSÍNSTÖÐ:
Ég vil fá minn heiður fyrir hugmyndina, segir Gestur
Valur
Svansson. Hann telur aðstandendur Næturvaktarin
nar hafa
brotið á rétti hans. Ragnar Bjarnason, leikstjóri Næt
urvaktarinn-
ar, staðfestir að Gestur Valur hafi komið með hugmy
ndina til sín.
Stóðum við allt gagnvart honum, segir Ragnar. Sjá b
ls. 2.
NætuRVaktiN
eR míN
>> Meistaradeild Evrópu hófst í gær með át
ta leikjum. Norsku meistararnir í Rosenborg
gerðu sér lítið fyrir og náðu 1–1 jafntefli við C
helsea í London. Liverpool gerði 1–1 jafntefl
i
við Porto á útivelli. AC Milan hóf titilvörn sín
a með 2–1 sigri á Benfica á heimavelli og Rea
l
Madrid náði að leggja Werder Bremen að ve
lli 2–1.
>> Konurnar í kvennakórnum Vox feminae
ætla sér stóra hluti á fimmtán ára
afmælisári kórsins. Í það minnsta
sextán tónleikar, geisladiskur með
söng kórsins og tónleikaferðalag til
Danmerkur er meðal þess sem
verður boðið upp á næsta árið. „Mér
finnst kórinn miklu betri núna en
nokkru sinni áður,“ segir Margrét
J. Pálmadóttir kórstjóri.
Aldrei verið betri
NEYÐIST TIL
REYKJAVÍKUR
Í MEÐFERÐ
fréttir
>> Akureyringurinn Valdimar Heiðar Valsso
n þarf að fara til Reykjavíkur í
meðferð við Psoriasis eftir að aðstöðunni á
Akureyri var lokað. Enginn
húðsjúkdómalæknir er við störf á Akureyri.
Dv sport
LÆGSTU
LAUNIN
>> Íslenskir kennarar fá einna
lægstu laun allra kennara í Evrópu.
Aðeins Tékkar og Ungverjar borga
kennurum sínum lægri laun en
Íslendingar.
fréttir
ENSKU LIÐIN
GERÐU JAFNTEFLI
4 Torfi Geirmundsson rakarinn torfi háði margra ára baráttu við
Hótel sögu og lögfræðinga hótelsins eftir að hann var rukkaður
um kalt Irish coffe. Hann segist halda sig frá Irish coffee í dag.
Árið 1979 pantaði Torfi Geirmundsson sér irish
coffee á Grillinu á Hótel Sögu. Kaffið reyndist kalt en yfirþjónn-
inn var honum ósammála og vildi fá greitt fyrir drykkinn. Niður-
staða fékkst ekki fyrr en fimm árum síðar þegar Auður Þorbergs-
dóttir kvað upp dóm í málinu.
hitt málið
Dýrkeypt
írskt kaffi