Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 9
DV Fréttir föstudagur 21. september 2007 9
FORELDRARNIR MIÐPUNKTUR MÁLSINS
Ekki mörgum dögum eftir að
Madeleine McCann hvarf beind-
ist grunur lögreglunnar að Ro-
bert Murat. Áður hafði hann verið
lögreglunni og McCann-hjónun-
um innanhandar, meðal annars
sem túlkur. Hann er Breti af portú-
gölsku bergi brotinn, fráskilinn og
á fjögurra ára dóttur sem býr hjá
móður sinni í Englandi. Sjálfur bjó
Murat á heimili móður sinnar og
var heimili þeirra rannsakað hátt
og lágt án þess að nokkuð kæmi
fram sem studdi grunsemdir lög-
reglunnar. Eins undarlegt og það
kann að hljóma þá varð sú afstaða
hans að vilja ekki tjá sig um málið
við blaðamann Sunday Times til
þess að grunur beindist að hon-
um í upphafi. Og ekki leið á löngu
þar til dagblöð í Bretlandi og fjöl-
miðlar í Portúgal settu sig í dóm-
arasætið. Eftir liggur rústuð tilvera
manns sem enginn trúir lengur að
hafi á nokkurn þátt í máli Madel-
eine McCann.
Uppreist æru ólíkleg
Talið er fullvíst að áhugi lögregl-
unnar að Robert Murat hafi ver-
ið tilkominn fyrir tilverknað Lori
Campbell, blaðamanns hjá Sund-
ay Mirror. Ástæðan var sú að henni
fannst skjóta skökku við að hann
hafði ekki áhuga á að koma í viðtal
vegna málsins, þrátt fyrir að hann
væri í nánu samstarfi við lögregl-
una í upphafi rannsóknarinnar.
Nafn Roberts Murat verður í
huga fólks sennilega alltaf tengt
hvarfi Madeleine McCann. Og
hætt er við því að þó einhver annar
verði einhverntímann sekur fund-
inn um verknaðinn þá hrökkvi það
skammt. Andlit hans birtist á for-
síðum breskra dagblaða, hvers-
dagslegir hlutir í lífi hans voru út-
málaðir sem grunsamlegir og
hegðun hans í máli Madeleine var
líkt við hegðun Ians Huntley sem
árið 2002 myrti tvær tíu ára gamlar
stúlkur í smábænum Soham á Eng-
landi.
Robert Murat var grunaður um aðild að hvarfi Madeleine McCann:
Dæmdur af breskum fjölmiðlum
Robert Murat enginn
trúir lengur á sekt hans.
Portúgalska lögreglan
Hefur legið undir ámæli
vegna rannsóknarinnar.
„Mér fannst sársauki ykkar
aldrei trúverðugur.“ – Find Mad-
eleine McCann-vefsíðan.
„Kate McCann er óáhuga-
verð, veiklynd og vonlaus móðir
og sennilega veik á geði. Aumk-
unarverð kona sem átti aldrei að
eignast börn úr því að hún réð
ekki við það.“ – Mirror forum.
„Gerry McCann virkar á mig
eins og fauti. Ég hef enga hug-
mynd um sekt eiginkonunnar, en
engu að síður er hún þrælsek eft-
ir að hafa skilið börnin ein eftir.“
– Mirror forum.
„McGrubs-hjónin eru afleit
fyrirmynd foreldra og ættu að
vera sótt til saka.“ – HaloScan.
„Þau sem eiga að axla ábyrgð-
ina á hvarfi Maddíar eru Gerry
og Kate McCann. Ef þau eru sek
eru þau sjúk og ill og verðskulda
að rotna til eilífðar.“ – Skynews.
„Þau eru læknar og myndu
ekki hika við að saka aðra for-
eldra um vanrækslu. Þau ættu
að hanga í eigin snöru.“ – Alpha
Mummy.
„Móðirin sérstaklega hefur
hagað sér undarlega vegna máls-
ins. Ég sé ekkert eðlilegt við það
að móðir í hennar sporum geri
það að forgangsverkefni svo fljótt
eftir hvarf dóttur sinnar að hitta
páfann.“ – Mumsnet.
„Jafnvel konur í læknastöðum
eru fórnarlömb heimilisofbeldis,
sálræns eða líkamlegs. Mér virð-
ist Kate vera mjög undirgefin
Gerry. Hún skáskýtur augunum
til hans þegar þau tala við fjöl-
miðla. Eins og hún geti ekki tal-
að fyrir sig. Og skokkið er annar
handleggur. Ég er fylgjandi því að
vera í formi en það væri það síð-
asta sem ég hugsaði um, ef einu
af mínum börnum yrði rænt. Ég
væri í rusli.“ – Mirror forum.