Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Page 11
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 11
Nærri tugur faNga strokið á áriNu
skipulögð strok
af litla-HrauNi
Bandarískur barnaræningi, Donald M. Feeney, og
íslenskur nauðgari, Jón Gestur Ólafsson, reyndu
ævintýralegan flótta úr landi 8. ágúst 1993. Feeney
hafði hlotið tveggja ára fangelsisdóm fyrir tilraun
til mannráns á tveimur íslenskum stúlkum en Jón
var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir hrottalega nauðg-
un á 16 ára stúlku. Félagarnir afplánuðu dómana
samtímis á Litla-Hrauni og urðu fljótt félagar innan
múranna.
Í skjóli nætur flúðu Feeney og Jón fangelsið er 10
fangaverðir Litla-Hrauns horfðu saman á kvikmynd.
Um var að ræða hasarmynd þar sem heilmikill skot-
bardagi var í enda myndarinnar. Meðan á bardag-
anum stóð læddust félagarnir út í nóttina.
Þegar út var komið héldu þeir hlaupandi áleið-
is til Selfoss þaðan sem þeir tóku saman leigubíl til
Reykjavíkur. Við komuna til Selfoss var mjög svo
dregið af Jóni eftir hlaupin og var hann sagður dauð-
uppgefinn eftir flóttann. Feeney og Jón héldu áfram
til Reykjavíkur og leigðu herbergi á Hótel Loftleið-
um þar sem þeir sváfu yfir nóttina. Morguninn eftir
höfðu þeir leigt litla flugvél og var ætlunin að fljúga
frá Reykjavíkurflugvelli til Færeyja og halda þaðan
áfram til meginlands Evrópu.
Flugmaður vélarinnar Halldór Árnason lagði af
stað árla morguns áleiðis til Færeyja en fékk síð-
ar skilaboð um að hann væri líklega með stroku-
fanga meðferðis. Slæm veðurskilyrði urðu Halldóri
til bjargar því hann sannfærði Feeney og Jón um að
millilenda í Vestmannaeyjum þar til drægi úr þoku.
Þangað var flogið og á meðan þeir biðu átekta kom
lögregla á staðinn og handtók félagana.
Erlendur Baldursson, deildarstjóri hjá Fangels-
ismálastofnun, segir flótta Feeneys og Jóns að öll-
um líkindum best skipulagða flóttann hér á landi.
„Þetta er líklega frægasta og dramatískasta dæmið
um skipulagðan flótta. Þeir félagar sluppu úr fang-
elsinu og ætluðu að koma sér til Færeyja og þaðan
áfram. Við því var brugðist með einföldum hætti
þannig að vélinni var snúið við og beðið eftir þeim,“
segir Erlendur.
Flóttinn til Færeyja
Þrír fangar á Litla-Hrauni urðu kenndir eftir að gestir
þeirra höfðu gefið þeim áfengi að drekka í heimsókn
í fangelsið, í apríl 1946. Eftir að Björgvin Óskarsson,
Hilmar Jóhannsson og Pálmi Kristinsson fundu
á sér þráðu þeir meira vín og skipulögðu flótta úr
fangelsinu. Hilmar fékk lánaðan lykil að háaloftinu,
þar sem fangar höfðu þvottaaðstöðu, og þaðan
komust félagarnir út um þakglugga. Í kjölfarið náðu
þeir að klifra niður þakrennu og komust burt frá
Litla-Hrauni.
Félagarnir þrír fengu far með vörubíl til Reykjavíkur
og urðu sér úti um vínflösku. Eftir að hafa setið við
drykkju nokkra stund fóru þeir á rölt um miðborgina
og Pálmi braut nokkrar rúður á leiðinni og gerði
tilraun til innbrots í Timburverslun Völundar. Þar
inni var peningaskápur sem félagarnir náðu engu úr.
Hilmari leist orðið illa á félagsskapinn og hélt
heimleiðis. Þar fékk hann að borða og síðan gaf hann
sig fram á lögreglustöðinni.
Björgvin og Pálmi héldu áfram för sinni þar sem
Pálmi hélt áfram að brjóta rúður. Félagarnir urðu
viðskila á göngunni og Björgvin gekk fram á tvo
lögregluþjóna og gaf sig fram. Pálmi gerði síðar aðra
tilraun til innbrots, að þessu sinni í verslun KRON
við Skólavörðustíg. Þaðan náði hann handfylli af
krónupeningum úr peningakössum verslunarinnar
en var handtekinn á vettvangi.
Vildu meira áFengi
Söguðu rimlana Sundur
Þrír fangar struku 28. júlí 1993. Einn þeirra var tal-
inn hættulegasti glæpamaður landsins, Björgvin
Þór Ríkharðsson, sem hafði hlotið dóm fyrir vopn-
að rán og hrottalegar nauðganir. Í daglegu tali var
Björgvin nefndur sólbaðsstofuræninginn því hann
hafði hótað afgreiðslustúlku sólbaðsstofu á Akur-
eyri lífláti ef hún afhenti honum ekki alla peninga
stofunnar. Við ránið hélt hann hnífi að hálsi stúlk-
unnar. Eftir ránið fór fram víðtæk leit lögreglu að
ræningjanum og var hann handtekinn tveimur
dögum síðar.
Björgvin náði að flýja ásamt félögum sínum,
þeim Hans Erni Viðarssyni og Herði Karlssyni,
með því að saga í sundur rimla eins fangaklefans
á Litla-Hrauni. Þeir höfðu komist yfir blað úr járn-
sög á smíðaverkstæði Litla-Hrauns og þegar út
var komið flúðu þeir á bíl sem beið þeirra. Hans
og Hörður voru fljótlega handteknir þar sem þeir
fundust undir áhrifum fíkniefna. Sólbaðsstofu-
ræninginn gekk hins vegar áfram laus. Birtar voru
myndir af honum í fjölmiðlum og lögreglu bárust
ábendingar um veru Björgvins víða um landið.
Loks tókst að finna hann í íbúð fyrrverandi kær-
ustu sinnar í Breiðholti. Vegna flóttans var dómur
Björgvins þyngdur um tvö ár.
Út um þakgluggann
garðSlanga notuð Við Flótta
Tveir fangar Hegningarhússins náðu að flýja einn góðviðrisdag að sum-
arlagi á 8. áratug síðustu aldar. Miklir þurrkar höfðu verið yfir sumar-
ið og fangaverðir höfðu meðal annars það hlutverk að vökva í fangels-
isgarðinum. Umhverfis garðinn voru háir veggir til að hindra útgöngu
fanga. Einn daginn gleymdi fangavörður garðslöngu í garðinum og fang-
arnir tveir urðu þess varir. Með útsmognum hætti komust þeir úr hús-
inu og út í fangelsisgarðinn. Þegar þangað var komið nýttu þeir slönguna
til að komast upp vegginn og yfir hann. Það tókst og fangarnir komust á
brott. Þeir náðust skömmu síðar.
Aðspurður man Guðmundur eftir þessu tilviki. „Af einhverjum ástæðum
hafði garðslanga verið skilin eftir í garðinum og hana nýttu fangarnir sér
til að komast yfir vegginn,“ segir Guðmundur.
við að allir fangar séu í einangrun.
Við teljum okkur ekki vera með
það hættulega einstaklinga að slíkt
þurfi.“
Aðspurður segist Erlendur feginn
því að enginn flótti fanga hér á landi
hafi orðið til þess að saklausum hafi
orðið meint af. Hann bendir á að
iðulega séu ástæður þess að fangar
strjúki lítilvægar. „Oftast eru þessi
strok lítið merkileg. Algengast er að
menn hlaupi frá til að hitta kærustur
eða til að detta í það. Ekkert strok hjá
okkur hefur orðið til þess að fangi
hafi gert öðrum illt,“ segir Erlendur.
Sigurjón H. Birgisson, formaður
Félags fangavarða, treysti sér ekki til
að ræða strok úr fangelsum þegar til
hans var leitað.
1992
8
faNgar
1994
4
faNgar
1995
4
faNgar
1996
2
faNgar
1997
0
faNgar
1998
0
faNgar
1999
4
faNgar
2000
1
faNgi
2001
1
faNgi 2002
0
faNgar20030
faNgar 2004
1
faNgi2005
0
faNgar 2006
0
faNgar
2007
3
faNgar
SamtalS: 89 fangar
Barnaræninginn strauk donald m.
feeney reyndi í slagtogi við konu sína að
nema tvær íslenskar stúlku af landi brott.
bandarískur faðir stelpnanna, James brian
grayson, réð feeney til verksins og voru þeir
báðir handteknir í Leifsstöð með stúlkurnar.
Langaði í áfengi Þrír fangar komust í
áfengi eftir að hafa fengið heimsókn á Litla-
Hraun. fljótt langaði þá í meira og struku þá
úr fangelsinu í leit að áfengi.
Flýðu af Litla-Hrauni Þrír fangar komust út
með því að saga sundur rimla með járnsög sem
þeir komust yfir á smíðaverkstæði Litla-Hrauns.
Slangan gagnaðist Nokkrir fangar komust yfir
fangelsismúra Hegningarhússins þegar garðslanga
hafði verið skilin eftir í garði fangelsisins.