Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Qupperneq 16
Menning
föstudagur 21. september 200716 Menning DV
Bókalager-
sala
Bókaormar geta sannarlega
glaðst því í dag, föstudaginn 21.
september, opna JPV forlag og
bókaútgáfan Edda lagersölu
á bókum í fyrrum húsnæði
Krónunnar við JL húsið. Boðið
er upp á um þrjú þúsund titla á
fantagóðu verði; skáldverk fyrir
unga sem aldna, fræðibækur
og ævisögur. Þeir sem versla
á útsölunni fá bók í kaupbæti
og öll börn frá frítt Andrésblað.
Opið er alla daga frá kl. 11–19 til
7. október.
sjónlist
Afhending Sjónlistaverðlaunanna 2007 fer fram í kvöld:
Verðlaunahafarnir fá 2 milljónir
Sex listamenn eru tilnefndir til
Sjónlistaverðlaunanna 2007 sem af-
hent verða í Flugsafni Íslands á Akur-
eyri í kvöld. Tveir þeirra hljóta ríku-
leg verðlaun fyrir framlag sitt, annar
á sviði myndlist-
ar og hinn á sviði
hönnunar, eða
tvær milljónir króna. Þetta eru hæstu
verðlaun sem veitt eru á sviði mynd-
listar og hönnunar hér á landi.
Þeir sem tilnefndir eru í ár eru
Birgir Andrésson fyrir einstakt
framlag til könnunar á sambandi
sjónrænnar skynjunar og merkingar
texta í verkunum Black-out og Build;
Hekla Dögg Jónsdóttir fyrir Fossinn,
röð verka í sýningunni Ljósaskipti
og Fireworks for LA sem ætlað er
að lýsa upp umhverfið og skerpa
skilningarvitin; Hrafnkell Sigurðsson
fyrir ljósmyndaröðina Áhöfn og
olíuverkin Afhafnasvæði en þessi
verk þykja varpa nýju ljósi á íslenska
sjómenn og karlmennsku; fyrirtækið
Nikita fyrir fatnað á konur sem stunda
snjóbrettaíþróttir en vörur Nikita
eru nú seldar í 1500 sérverslunum í
þrjátíu löndum; Studio Granda fyrir
viðbyggingu við Vogaskóla í Reykjavík
og einbýlishús á Hofi á Höfðaströnd
og síðast en ekki síst Össur hf. fyrir
gervifótinn Proprio Foot.
Við verðlaunaafhendinguna í
kvöld verður einnig tilkynnt hver
hlýtur heiðursorðu Sjónlistar fyrir
einstakt æviframlag til sjónlistanna,
en að þessu sinni verður það
hönnuður. Á morgun verður svo
efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu um
siðfræði og sjónlist þar sem breski
heimspekingurinn Matthew Kieran
og sænski hönnuðurinn Olof Kolte
deila skoðunum sínum ásamt Ásu
Björk Ólafsdóttur presti og Lilju
Pálmadóttur myndlistarmanni.
Bína fer í
leikskóla
Hjá Bókaútgáfunni SÖLKU
er komin önnur sagan í
bókaflokknum um Bínu og að
þessu sinni er Bína að byrja í
leikskóla. Hún veit ekki alltaf
hvernig hún á að hegða sér
innan um krakkana og hún er
heldur ekki viss hvort mamma
komi aftur að sækja hana.
Smám saman líður henni betur
í leikskólanum og lærir meðal
annars hvernig hún getur
eignast vini og beðið um hjálp.
Ásthildur Bj. Snorradóttir
talmeinafræðingur er höfundur
bókanna um Bínu. Í sögunum
leggur hún áherslu á að efla
boðskiptafærni og málþroska
barna. Ef þau skilja og vita til
hvers er ætlast af þeim hverfa
mörg hegðunarvandamál eins
og dögg fyrir sólu og öllum líður
betur.
Af hverju býr
fólk í húsum?
Af hverju býr fólk í húsum?
Af hverju byggja dýrin sér öðru-
vísi bústaði en mannfólkið?
Af hverju búa ekki öll dýr í
húsum? Hvað er bygging og
hvað er byggingarlist? Þess-
ar vangaveltur og fleiri eru
uppistaðan í óformlegu spjalli
sem efnt er til á fjölskyldu-
stund Kjarvalsstaða næst-
komandi sunnudag kl. 14:00
í umsjón Guju Daggar Hauks-
dóttur, deildarstjóra bygging-
arlistardeildar Listasafns Reykja-
víkur. Fjölskyldustundin er
aðgengileg öllum aldurshópum
en tilgangurinn er að bjóða upp
á fjörlegar umræður og óheft
hugarflug um byggingarlist.
Skotist upp á Skaga
Vantar þig hugmynd að fróðleiksferð um helgina? Það er stutt að
skjótast upp á Akranes og skoða þar Safnasvæðið að Görðum. Þar er að
finna mikla uppsprettu fróðleiks fyrir unga sem aldna þar sem gamla
tímanum er fléttað á skemmtilegan hátt saman við þann tíma sem
stendur okkur nær.
Líf Hlínar Agnarsdóttur snýst
meira og minna um leikhús og
leiklist. Þekktust er hún líklega fyrir
leikritin sín, til að mynda Konur
skelfa sem sýnt var við feikilegar
vinsældir í Borgarleikhúsinu fyrir
um áratug, en hún hefur einnig
leikstýrt fjölmörgum sýningum í
öllum helstu leikhúsum landsins.
Þar á meðal eru Sólarferð,
Góðverkin kalla og Blessuð jólin
hjá Leikfélagi Akureyrar, Englar
í Ameríku, Ófælna stúlkan og
Hvað dreymdi þig, Valentína? hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og Viktoría
og Georg og Ástkonur Picasso í
Þjóðleikhúsinu.
Hlín, sem er er fædd í Reykja-
vík snemma á sjötta áratugnum,
hefur einnig skrifað leikrit fyrir út-
varp og sjónvarp og komið að öðr-
um handritaskrifum fyrir sjónvarp
og aðra miðla. Þá hefur hún sent frá
sér skáldverk auk þess sem Hlín er
meðstjórnandi, eða liðsstjóri eins
og hún er víst titluð, í þættinum Orð
skulu standa á Rás 1 þar sem hún
þarf meðal annars að yrkja vísur.
Undanfarin þrjú ár hefur Hlín
starfað við Þjóðleikhúsið, bæði sem
dramatúrg og listrænn ráðgjafi. Hún
sagði hins vegar starfi sínu lausu á
dögunum og blaðamaður byrjar á
því að spyrja hana nánar út í þau
tíðindi.
Gekk vel að vinna með Tinnu
„Ég er með annan fótinn í
Þjóðleikhúsinu þrátt fyrir að ég hafi
hætt þar í fullu starfi því ég kem
til með að taka þátt í ýmsu starfi
þess. Ég mun til dæmis leikstýra
þar næsta vor,“ segir Hlín en um
er að ræða leikrit eftir Steinunni
Sigurðardóttur sem nánar verður
komið að síðar. „Ég var búin að vera
í föstu starfi í Þjóðleikhúsinu í þrjá
vetur og mér finnst það í sjálfu sér
ekki fréttaefni þó maður skipti um
vinnu. Ég byrjaði að vinna þarna
þegar Tinna Gunnlaugsdóttir tók
við sem Þjóðleikhússtjóri en hún
réð mig sér til aðstoðar. Þetta er
stór vinnustaður, þegar allt er talið
vinna um tvö hundruð manns í
Þjóðleikhúsinu, og Tinna þurfti
aldeilis að hafa hraðar hendur við
að leysa mörg mál því hún fékk ekki
mjög langan tíma til að taka við þessu
starfi. Það er í raun og veru dálítill
„lapsus“ í nýjum Þjóðleikhúslögum
því nú er ekki lengur gert ráð fyrir að
sá sem tekur við starfi leikhússtjóra
fái einhvern undirbúningstíma með
þeim sem er að ljúka störfum. Þetta
var bara þriggja mánaða tími sem
Tinna hafði til undirbúnings. En
ég byrjaði að vinna sem dramatúrg
við leikhúsið í barneigneignarleyfi
þeirrar sem gegndi því starfi.
Þegar hún kom aftur fjölgaði Tinna
dramatúrgum við húsið og ég tók
svolítið það starf. Þetta hefur verið
mjög gefandi tími og veitt mér
reynslu að fá innsýn í alla innviði
Þjóðleikhússins. Núna langar mig
Kátt á hjalla birgir andrésson, til
hægri, er á meðal þeirra sem tilnefnd
eru til sjónlistaverðlaunanna 2007.
Hlín Agnarsdóttir komst í fréttirnar á dögunum þegar hún
sagði upp starfi sínu sem listrænn ráðgjafi hjá Þjóðleikhúsinu.
Hún segir viðskilnaðinn hafa verið í góðu, þrátt fyrir að ein-
hverjir vilji halda annað, og reyndar hafi hún ekki sagt endan-
lega skilið við Þjóðleikhúsið.
FINGRAKLÁÐI,
FUNDAÞREYTA
OG DÓSASÖFNUN
d
V
m
yn
d
Á
sg
ei
r