Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 20
FösTUdagUr 21. sepTember 200720 Umræða DV
Efnahagsmálin ofarlega
„Það sem mér finnst standa upp úr í
fréttum vikunnar er til dæmis umræðan
um efnahagsmálin og þær spár og pæling-
ar sem hafa verið að koma fram um þau.
Einnig er mér ofarlega í huga umræðan um
eignarhald og forræði á orkuauðlindum
landsmanna.
Hefðbundnir haustatburðir hafa líka átt
sér stað upp á síðkastið eins og göngur og
réttir. Lífið hefur jú sinn gang. Ég fór ein-
mitt í göngur á Hvammsheiðinni og svo í
réttir heima á Gunnarshólum.“
Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður
Brotamenn komast úr landi
„Slysið í Soginu finnst mér bera hæst
úr fréttum vikunnar, þetta eru hörmuleg-
ar fréttir. Úr fjármálaheiminum birtust
fréttir um lækkun vaxta í Bandaríkjunum
og það finnst mér mjög jákvætt að heyra.
Mér finnst hins vegar skelfilegt að heyra
að menn sem búið er að dæma í farbann
komist auðveldlega úr landi. Það er slæmt
að ekki skuli vera betri fylgni á svona mál-
um.
Hugmyndir Samsonar sem kynntar
voru um uppbyggingu miðbæjarins finn-
ast mér mjög spennandi. Svona í lokin, úr
íþróttaheiminum, vil ég nefna brotthvarf
Mourinhos úr Chelsea.“
Ólafur Þórðarson,
þjálfari Fram
Sátt við lögregluaðgerðir
„Þegar foreldrum hefur mistekist að
kenna börnum sínum almenna kurteisi
þarf því miður að fara þá leið að sekta fólk
fyrir sóðaskap og dónaskap, ég er mjög sátt
við þessar nýju lögregluaðgerðir í miðbæ
Reykjavíkur.
Það er líka gaman að segja frá því að
ég var að eignast mína fyrstu íbúð og það
svona á gamals aldri. Ég er að dunda mér
við að gera hana fallega og notalega þessa
dagana og hef mjög gaman af. Annars er ég
hamingjusöm, vinnandi kona sem elskar
að lesa góðar bækur.“
Kolbrún Berþórsdóttir,
blaðamaður
Hörmulegt slys í Soginu
„Það sem bar hæst í vikunni að mínu
mati er þetta hörmulega slys sem átti sér
stað í Soginu. Þetta var svo óvænt og það
er óhætt að segja að hlutirnir eru fljótir að
gerast. Fólk þarf greinilega að vera við öllu
búið.
Annars er það að frétta af mér að ég er
byrjuð að undibúa vorið með því að setja
niður haustlauka,“ segir Margrét og skellir
upp úr. „Ég er ennþá að njóta þess að vera í
fríi frá vinnu og hver dagur í mínu lífi er al-
veg dýrlegur. Ég mun skoða það með haust-
inu að snúa aftur til vinnu.“
Margrét Frímannsdóttir,
fyrrverandi þingmaður
HVAÐ BAR HÆST í Vikunni?