Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Qupperneq 36
föstudagur 23. september 200720 Sport DV
Á laugardag er komið að stærsta
leik sumarsins hjá konunum. Þá
fer fram bikarúrslitaleikurinn þar
sem KR og Keflavík mætast. KR-
ingar lentu í öðru sæti deildarinn-
ar þrátt fyrir að tapa aðeins einum
leik. Liðið háði eftirminnilega bar-
áttu við Valskonur en urðu að lúta
í gras. Keflavík endaði í fjórða sæti
deildarinnar sem er besti árangur
liðsins síðan 1975.
KR-ingar ætla ekki að gera neitt
sérstakt fyrir leikinn, ekki fara á
hótel eins og mörg lið í bikarúr-
slitum hafa gert mörg undanfarin
ár. „Auðvitað er þetta skemmtileg-
ur leikur og stærri en margir sem
við spilum, við komum til með
að eyða meiri tíma saman en við
komum til með að sofa í okkar
rúmum,“ sagði Helena Ólafsdóttir,
þjálfari KR.
„Okkar mottó fyrir leikinn
er að njóta leiksins því þetta er
skemmtilegasti leikurinn og bestu
aðstæður sem maður fær. Við
erum hungraðar í titil,“ bætti Hel-
ena við. KR-ingar verða án Katrín-
ar Ómarsdóttur sem er ökklabrot-
in og þá kemur ekki í ljós fyrr en
á leikdegi hvort Embla Grétars-
dóttir getur spilað. Hún meidd-
ist á mánudaginn þegar KR vann
Keflavík í lokaumferðinni í Lands-
bankadeildinni.
Keflavík hefur engu að tapa
Keflvíkingar fara hins vegar á
hótel og dvelja þar fram að leik.
Liðið kemur til með að dvelja á
Hótel Loftleiðum og æfa á Vals-
svæðinu. Keflavíkurstúlkur hafa
engu að tapa í leiknum. Þær koma
sem litla liðið í leikinn .
Salih Heimir Porca, þjálfari
Keflavíkur, telur að sitt lið geti kom-
ið á óvart í þessum leik.
„Leikurinn leggst vel í mig. Ég
myndi segja að við höfum enn
ekki getað stillt upp okkar besta
liði í þeim leikjum sem við höf-
um spilað gegn KR hingað til. Í
síðasta leik þurfti ég til dæmis að
hvíla leikmenn sem voru með þrjú
spjöld og fyrir mér skiptir hver
einasti fullorðni leikmaður miklu
máli.
Konur sem eru með mikla
reynslu úr landsliði og annars
staðar frá koma inn í liðið. Ég tel
að með meiri grimmd og betra
skipulagi getum við gert þetta að
jafnari leik en flestir búast við. Nú
er gull í boði og við erum þegar
búnar að tryggja okkur silfrið. Nú
er bara að leggja sig fram og gera
sitt besta.
Stelpurnar eru ábyggilega mjög
spenntar en ég er að reyna
að nýta reynslu mína til þess
að útskýra fyrir stelpunum
hvernig beri að taka á þessum
aðstæðum. Sumir fá náttúrlega
í magann en aðrir ekki, þetta
verður allt að koma í ljós,“ sagði
Porca.
Ætlum að enda tímabilið vel
Olga Færseth er fæddur og
uppalinn Keflvíkingur og sagðist
hlakka til að takast á við sitt gamla
lið. „Mér líst mjög vel á þetta og
það skemmir ekki fyrir að mæta
Keflavík sem er minn heimabær.
Það er bara tilhlökkun í okkur KR-
ingum og ég held að þessi leikur
verði fjörugur og góð skemmtun.
Við KR-ingar ætlum allavega
að bjóða upp á skemmtilegan leik
og vonandi náum við
okkar markmiðum að
krækja í titil í sumar.
Við erum búnar að
finna fyrir því að við
söknum Katrínar
og gerðum það á
móti Val. Við erum
að reyna að klóra
okkur út úr þeim
vandamálum sem
því fylgdi að missa
hana. En ef við
missum Emblu líka
verður þetta erfitt
fyrir okkur.“
KR vann Keflavík
á mánudag og
þjóðsagan segir að
það lið sem vinni
leik númer eitt tapi
leik númer tvö. „Það
er svo sem margt til í
því. En við KR-ingar
blásum á allar þær
sögusagnir. Við
ætlum okkur að
vinna þetta,“ sagði
markadrottningin
Olga Færseth. benni@dv.is, vidar@
dv.is
DAVÍÐ Á MÓTI
GOLÍAT
Leið Liðanna í úrsLitin
2. umferð
HK/Víkingur - Keflavík 0–1
8 liða úrslit
afturelding - Keflavík 1–2
4. liða úrslit
Keflavík - fjölnir 3–1
8 liða úrslit
Þór/Ka - Kr 2–5
4. liða úrslit
breiðablik - Kr 3–7
KR og Keflavík mætast í bik-
arúrslitum Visa-bikarsins á
laugardag. KR er talið mun
sigurstranglegra en Keflavík
er að leika sinn fyrsta bikar-
úrslitaleik í kvennaflokki. KR
hefur hins vegar unnið
bikarinn tvisvar sinnum.
L
Lykilmaður björg Ásta
Þórðardóttir er lykilmaður í
liði Keflavíkur.
Mætir sínu gamla félagi
markahrókurinn Olga
færseth er fædd í Keflavík.