Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 37
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 29
hún var ein fyrst kvenna hérlendis til
að klára viðskiptafræði. „Við höfum
tuðað svolítið í mömmu yfir því að
hún skuli ekki hafa gert eitthvað við
þessa menntun sem hefði skilað
henni peningum. „Mamma af hverju
varðstu ekki endurskoðandi? Af hverju
stofnaðir þú ekki eigið fyrirtæki?“ En
nei, nei, hún ákvað að verða kennari,“
segir Þóra og glottir. „Hún er nú
komin á eftirlaun en henni fannst svo
gaman að kenna og var virkilega góður
kennari.“
Mikil áhersla lögð á tungumál
Það hafa margir veitt því eftirtekt
hversu mörg viðtöl Þóra hefur tekið á
erlendum tungumálum. „Það eru nú
engin heljarinnar ósköp af tungumálum
sem ég kann en það er dálítið þannig í
minni fjölskyldu að allir eiga að kunna
mörg tungumál. Það er hlegið að fólki
sem ekki getur tjáð sig á að minnsta
kosti sex til sjö tungumálum,“ segir Þóra
og er greinilega að ýkja örlítið. „Pabbi
er tungumálasnillingur. Hann lærði
heimspeki og sálfræði í Rússlandi, hann
er annar af tveimur löggiltum skjala-
þýðendum á pólsku sem er mikil þörf
fyrir núna, hann talar esperanto, þýsku,
frönsku, dönsku og latínu. Mamma er
ekki mikið síðri tungmálamanneskja.
Ég var á tungumálabraut í menntaskóla,
þar lærði ég þýsku og frönsku og svo
menntaði ég mig á Ítalíu. Mér finnst
hreinlega að það heyrist ekki nógu
mörg tungumál í íslenskum fjölmiðlum
og því reyni ég að spreyta mig þó svo,
til dæmis, að sænskan mín sé ekki
fullkomin þá reyni ég að tala hana
frekar en að grípa til enskunnar.“
Lífsförunautur hinum
megin við þilið
Þegar Þóra lauk mastersnáminu
kom hún aftur heim og ætlaði að
stoppa sumarlangt í afleysingastarfi
á fréttastofu Sjónvarps. Þóra stefndi
á þróunarstarf og var byrjuð að undir-
búa brottför sína með tilheyrandi nám-
skeiðum og pappírsvinnu. „Þá hitti ég
mann,“ segir Þóra sposk. En maðurinn
er Svavar Halldórsson fréttamaður.
„Við kynntumst á RÚV, ég var í sjón-
varpinu og hann var í útvarpinu. Það
var bara eitt þil á milli okkar. Það er
fyndið að hugsa til þess eftir á að lífs-
förunautur þinn hafi verið svona
nálægt þér í lengri tíma og ég hugsaði
með mér „Af hverju pikkaði hann ekki
í mig fyrr?“ En allt hefur sinn tíma. Við
vissum af hvort öðru, heilsuðumst á
ganginum en ekkert meira en það. Svo
æxlaðist það nú einu sinni að nokkrir
fréttamenn fóru á Ölstofuna tvö kvöld
í röð. Áður en við vissum af voru allir
farnir heim nema við. Það þurfti nú
ekki meira til. Stundum veit maður
bara hvað er rétt,“ segir Þóra sem
ljómar þegar talið berst að Svavari.
Stjúpdæturnar völdu Þóru
Svavar Halldórsson var ekki einn
á ferð en hann á þrjár stelpur; átta,
níu og tíu ára. „Fyrir nokkrum árum
hefði mér eflaust fundið erfitt að axla
þessa ábyrgð. En ég er búin að ferðast
mikið, búin að mennta mig og búin að
dansa á börunum. Ég veit að ég er ekki
að missa af neinu. Nú er bara alveg
nýr kafli í lífinu hafinn og ég nýt hans
alveg í botn.“ Þóra ber greinilega mjög
sterkar tilfinningar til stjúpdætra sinna.
„Þetta eru yndislegar stelpur. Þær eru
klárar, skemmtilegar og vel upp aldar,“
segir Þóra í mestu einlægni. „Þær
tóku líka sérstaklega vel á móti mér og
standa í þeirri meiningu að þær hafi
valið mig. Þær stungu nefnilega upp
á því við Svavar að hann byði mér í
mat og spyrði mig hvort ég vildi verða
kærastan hans. Þegar hann tilkynnti
þeim að ég hafi sagt já, brutust út
mikil fagnaðarlæti. Eftir að ég kynntist
stelpunum hans Svavars sá ég fljótt að
það væri óhætt að eignast börn með
þessum manni en við eigum tæplega
tveggja ára gutta sem er óskaplega vel
heppnaður. Þannig að það eru fjögur
börn á heimilinu og vonandi verða
þau fleiri. Við erum svo góð í þessu.“
Rík af lífsgæðum
Þrátt fyrir að hafa gert góðlátlegt
grín að mömmu sinni sem ekki varð
rík af því að mennta sig í viðskiptafræði
lítur allt út fyrir að Þóra sé á sömu
braut. Með hagfræðimenntun í
farteskinu ætti Þóra mikla möguleika
á því að fá starf sem gæfi meira í
vasann en að vera ríkisstarfsmaður.
„Kannski verð ég svona heimspekileg
með aldrinum en að mínu mati felast
lífsgæðin að stórum hluta í því að hafa
gaman í vinnunni. Við leigjum þriggja
herbergja kjallaraíbúð í Breiðholtinu
svo það eru þrír í hvoru herbergi. Við
erum að leita okkur að íbúð en það
fer ekki alltaf saman það sem hentar
og það sem við höfum efni á. Ég sá tíu
herbergja hús um daginn til sölu sem
hefði verið fullkomið fyrir okkur. Það
kostaði hins vegar hundrað og tuttugu
milljónir og það hentar ekki alveg
ríkisstarfsmönnum. Annars liggur
okkur ekkert á. Við leigjum hjá Gunnari
Eyjólfssyni leikara og Katrínu Arason
konu hans og þau eru yndislegt fólk.
Við höfum allt sem við þurfum. Í fyrsta
lagi hvort annað, frábær og heilbrigð
börn og ægilega skemmtilega vinnu.“
Reyna að hemja sig í vinnunni
Svavar og Þóra unnu á RÚV lengi
vel. Bæði fóru þau um tíma yfir á Stöð
2 en eru nú bæði komin aftur á RÚV,
fyrst Svavar og svo Þóra. „Það er miklu
betra að vera á sama stað sérstaklega
í ljósi þess að við erum í sama fagi.
Þegar við vorum á sitt hvorri stöðinni
var stundum erfitt að þurfa að sitja
á skúbbi. Okkur þykir líka frábært
að geta eytt meiri tíma saman en
við erum samt ekkert að anda ofan í
hálsmálið á hvort öðru.“ Þegar Þóra er
spurð hvort samstarfsfólki þykir allt í
lagi að vinna með hjónum rekur Þóra
upp skellihlátur. „Ég ætla að vona það.
Við reynum allavega að hemja okkur.“
Fyrr á þessu ári fékk Svavar hjartaáfall,
aðeins þrjátíu og sjö ára að aldri og
er því í veikindaleyfi. „Hann á alveg
eftir að ná sér og tekur til starfa nú í
október.“
Simmi er engin pempía
Þóra sér fram á skemmtilegan
vetur en hún er, ásamt Sigmari
Guðmundssyni, þáttarstjórnandi
spurningaþáttarins Útsvars sem
sýndur verður á föstudagskvöldum
í vetur en fyrsti þátturinn fór í loftið
síðastliðinn föstudag. „Ég var mjög
ánægð með þáttinn. Þetta er auðvitað
bein útsending svo það er gefið að
ýmislegt óvænt getur komið uppá.
Þetta er uppskrift að vinsælum
þáttum verandi spurningaþáttur
sem Íslendingar eru af einhverjum
ástæðum alveg sjúkir í. Þetta er líka
keppni milli sveitarfélaga svo fólk
fylgist með sínu fólki og svo er einn
þekktur einstaklingur í hverju liði.“
Þóra lætur vel af samstarfi sínu við
Sigmar. „Það er mjög gott að vinna
með honum. Hann er mjög geðprúður
maður og engin pempía. Ef hann gerir
mistök getur hann hlegið að því. Ég
vona að ég sé þannig líka. Hann hefur
reyndar mestar áhyggjur af því að ég
eigi eftir að leiðrétta hann í beinni en
ég á það til ef fólk getur ekki notað
eignarfalls-ess. En ég reyni að gera
þetta hljóðlega. Hann er búinn að lofa
að borga mér tvö þúsund krónur fyrir
hvert skipti sem ég sit á mér,“ segir
Þóra hlæjandi. berglind@dv.is
Þóra er metnaðarfull kona sem vílar ekki fyrir sér að takast á við krefjandi
verkefni, hvort sem um er í starfi eða einkalífi. Fyrir utan það að vera
fréttakona og þáttastjórnandi kennir Þóra einu sinni í viku uppi í Háskóla
Íslands, tekur þátt í uppeldi fjögurra barna og stefnir brátt á doktorsnám.
Eftir slíka upptalningu væri hægt að gera sér í hugarlund að Þóra sé
þreytuleg í návígi; þvert á móti geislar af henni lífsgleði og metnaður.
DV-MYND ÁSGEIR