Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 38
föstudagur 21. september 200738 Helgarblað DV
Íslendingar eru ekki vanir að liggja á
skoðunum sínum. Bloggið er nýjasta
dæmi þess en þar eru sumir svo skoð-
anaglaðir að mörgum þykir nóg um.
Sumir ganga meira að segja svo langt að
gera sér upp skoðanir. Í dag er
dæminu snúið við. Við tókum okkur til,
hringdum í nokkra valinkunna Íslend-
inga og leituðum skoðana þeirra á því
hvað væri best. Svörin bera glöggt með
sér að spurningin er ekki jafneinföld og
einhverjir gætu haldið.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu
SIGUR HJÁ KVENNA-
LANDSLIÐINU
„Það er sigur hjá kvennalandsliðinu. Mér þykir það
mikill heiður að fá að stjórna landsliðinu og þegar vel
gengur er umbunin við það að ná árangri besta tilfinn-
ing sem ég veit um. Ég er að fást við þjálfun og þegar
vel gengur í starfi líður mér virkilega vel,“ segir Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í
knattspyrnu.
Kolbrún Halldórsdóttir,
alþingismaður
BEST AÐ
VERA TIL
„Ég myndi segja að það væri best
að vera til. Ég er svo mikil náttúru-
manneskja og það er svo náttúrulegt
ástand að vera til. Það sem er nátt-
úrulegt finnst mér best. Svo finnst
mér börnin mín tvö vera best og best
að þau skuli vera á lífi og njóta þess
til hins ítrasta.“
Gunnar Svavarsson, þingmaður
UMBURÐAR-
LYNDIÐ ER BEST
„Mér hefur gjarnan fundist það best
að reyna að vera umburðarlyndur í dags-
ins önn,“ segir Gunnar Svavarsson. Hann
er þingmaður Samfylkingarinnar og for-
maður fjárlaganefndar og segir að tals-
vert reyni á hæfileikann til þess að vera
umburðarlyndur í hans starfi.
„Þetta er það sem reynst hefur mér
allra best í gegnum tíðina.“
Sigmar Guðmundsson, sjónvarpsmaður
SOFA VIÐ GALOPINN
GLUGGA
„Á haustin er best að sofa við galopinn glugga. Sér-
staklega þegar það er orðið verulega kalt úti. Þá er best
að sofa undir þykkri og hlýrri sæng alla nóttina á með-
an hitastigið í herberginu er við frostmark. Maður þarf
ekki að hafa áhyggjur af því að vakna ekki á morgnana
því það eitt að fara undan sænginni vekur mann svo
hressilega að maður er algjörlega tilbúinn í að takast á
við daginn. Þetta steinliggur, sérstaklega þegar það er
farið að frysta úti.“
Gunnar Hansson, leikari
GOTT AÐ KÚRA
„Mér finnst best að kúra. Og það í öllum skilningi
þess orðs. Það er alveg sama hvað margt annað getur
verið skemmtilegt, þá er alltaf best að kúra.“
HVAÐ ER
BEST?