Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 42
föstudagur 21. september 200742 Helgarblað DV
HÉLT AFMÆLIS- VEISLU FYRIR ÓKUNNUGAN SVÍA
S
vanhvít Kristín Ingibergs-
dóttir skráði sig inn á couch-
surfing.com í lok júlí og hef-
ur haft í nógu að snúast síðan
við að hitta fólk sem ýmist
hefur fengið að gista á dýnu á gólfinu
heima hjá henni eða bara einfaldlega
hitt á kaffihúsi í spjalli og bjór. „Ég
kynntist sófagistingunum í gegnum
Önnu Lindu vinkonu mína en hún býr
í Danmörku og kom í heimsókn til Ís-
lands í sumar. Hana langaði þá svo að
skella sér í bíltúr hringinn í kringum
landið en vantaði ferðafélaga. Anna
hafði verið skráð inn á couchsurfing.
com í ár en hafði ekkert nýtt sér síðuna
þar til henni datt í hug að auglýsa þar
eftir ferðafélaga, hún var með bíl og
auglýsti eftir einhverjum sem væri til
í smá ævintýri og að deila með henni
bensínkostnaði. Það var þá sem strák-
ur frá Svíþjóð hafði samband og var á
leið til Íslands en með engin plön svo
þau ákváðu að taka smá áhættu og fara
saman í ferðalagið.“
Svanhvít hitti svo Önnu Lindu og
Svíann þegar þau voru komin aftur
til byggða og hafði ferðalagið geng-
Heimasíðan couchs
urfing.com er gríða
rlega snið-
ugur kostur fyrir fó
lk á ferðalagi sem v
ill bæði
spara peninga og u
pplifa land og þjóð
á annan
hátt en í gegnum tú
ristabækur. Á heim
asíðunni
getur fólk boðið fer
ðamönnum upp á fr
ía gistingu
í sófanum heima hj
á sér og ferðalanga
r fundið
sér stað til að gista
á. Fjöldinn allur af
Íslendingum er skr
áður á síðunni en Svan
hvít
Kristín er ein þeirra se
m hefur boðið fólki
gistingu í litlu íbúð
inni sinni á Baldur
sgötunni.
Af hverju ákvaðstu að koma til
Íslands?
„Ég hef lengi haft mikinn áhuga
á íslenskri menningu og síðan ég
var táningur hef ég sankað að mér
ljósmyndabókum með myndum
af Íslandi. Mér fannst umhverf-
ið og jöklarnir mjög spennandi og
dreymdi um að koma hingað. Ég
kom líka hingað til að vinna við sjálf-
boðavinnu á Sólheimum en ég er að
læra að verða sérkennari í Þýska-
landi.“
HEILLAÐIST AF FJÖLBREYTTU LANDSLAGINU
Niels Klein er Þjóðverji
sem var á Íslandi í þrjár
vikur og nýtti sér þann
kost að gista á sófum hjá
innfæddum og þeirra á
meðal heima hjá Svanhvíti.
Af hverju ákvaðstu að ferðast
til Íslands?
„Ég hafði heyrt að næturlífið
hérna væri ótrúlegt og að það væri
svipaður bragur yfir Reykjavík og
Madison en ég er þaðan. Svo hafði
ég reyndar líka fundið alveg frá-
bærar myndir af landinu á inter-
netinu.“
Hvað hefurðu verið að bralla
á Íslandi?
„Hanga á kaffihúsum, borða
furðulega hluti eins og harðfisk
með smjöri, hrossabjúgu, hákarl
og drekka þykkmjólk. Svo hef ég
líka borðað pylsu sem mér finnst
alveg mergjuð. Ég gekk líka upp
Esjuna, skoðaði Rauðhóla og vita
rétt fyrir utan Reykjavík.“
Af hverju ákvaðstu að nýta
þér sófagistinguna?
„Í fyrsta lagi til að spara pen-
inga, í öðru lagi til að öðlast aðra
tilfinningu fyrir landinu og upplifa
stemninguna með heimafólki og í
þriðja lagi til að skiptast á tónlist.“
Hefurðu heyrt einhverjar
hryllingssögur um sófagist-
ingu?
„Já, eina. Það var frá herbergis-
félaga gaurs sem hýsti fólk heima
hjá þeim. Herbergisfélaginn kvart-
aði sáran yfir því að íbúðin þeirra
hefði verið undirlögð af ferðalöng-
um um tíma.“
Hvernig hefur sófagisting
reynst þér hingað til?
„Bara æðislega vel. Það hafa
alir verið svo vinalegir og tekið vel
á móti mér. Ég hef verið boðinn í
stórskemmtileg matarboð, farið í
partí með innfæddum og farið út
á lífið í miðborginni og ég hef hitt
alveg frábært fólk á þessu ferðalagi
mínu.“
Hvarflaði aldrei að þér að þú
ættir á hættu að gista hjá
einhverjum brjálæðingum?
„Jú, jú, að sjálfsögðu. En ef allt
FINNST ÍSLENSKAR PYLSUR ÆÐISLEGAR
Ian Purvis starfaði sem
tölvunarfræðingur í
Wisconsin í Bandaríkjun-
um en ákvað einn dag-
inn að selja bílinn sinn
og leggjast í ferðalög.
d
V
m
yn
d
Á
sg
ei
r
Svanhvít
Kristín mælir
eindregið með
sófagistingum.