Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 47
Meistarinn
Steingerður Katla Harðardóttir Matgæðingurinn
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 47
„Þetta eru rosagóðar
salatuppskriftir sem ég fékk í
saumaklúbbi hjá vinkonu minni,“
segir Steingerður Katla Harðardóttir,
starfsmaður Prentmets á Selfossi og
matgæðingur vikunnar, sem býður
lesendum upp á tvo salatrétti. Annars
vegar er um að ræða saltfisksalat
og hins vegar kjúklingasalat. „Þetta
er frábært í saumaklúbba og minni
partí. Og þetta er öðruvísi. Það er
ekki oft sem maður fær saltfisksalat,“
segir Steingerður en þess má geta
að saumaklúbburinn sem hún er í
heitir Ellismellir. „Við erum gamlar
vinkonur frá því við unnum saman í
pylsuvagninum á Selfossi og hittumst
alltaf reglulega.“
Steingerður segist ekki hafa sér-
hæft sig í salatgeira matargerðar-
innar þrátt fyrir að bjóða upp á tvær
salatuppskriftir. „Það er bara svona
allavega, alveg eftir því hvernig ligg-
ur á mér,“ segir matgæðingurinn og
kveðst aðspurður vera þó nokkur
kokkur í sér. „Ég elda heilmikið. Ein-
hver verður líka að gera það,“ seg-
ir Steingerður og hlær. Gerir karlinn
lítið af því? „Frekar lítið já.“ Förum
ekki nánar út í þá sálma. Hér eru
uppskriftirnar.
Saltfisksalat
500 g saltfiskur
500 g soðnar kartöflur
4 stórir tómatar
1 gulrót
1 gul paprika
1 græn paprika
1 rauðlaukur
1 ½ msk. vínedik ( hvítvínsedik)
1 dl olía
pipar nýmalaður
söxuð steinselja
Látið suðuna koma upp á saltfiskn-
um, slökkvið undir og látið bíða í
pottinum í 10 mín.
skerið kartöflur, lauk og tómata í
sneiðar. tætið saltfiskinn gróft og
skerið paprikur í strimla.
setjið kartöflur neðst í fat/skál,
síðan saltfisk og grænmeti þar ofan
á, gott að hafa þetta í tveimur
lögum.
Þeytið olíu og edik saman, setjið
nýmalaðan pipar saman við og
hellið yfir fatið. setjið saxaða
steinselju efst.
Kjúklingasalat
2 kjúklingabringur
2 msk. hunang
½ bolli ólífuolía
2 msk. dijon-sinnep
salt og pipar
2 pokar klettasalat ( eða hvaða salat
sem er)
Þurrsteiktar furuhnetur
sesamfræ, graskersfræ eða önnur
fræ eftir smekk.
söxuð steinselja
steikið kjúklingabringurnar og
skerið í bita. blandið saman
ólífuolíu, sinnepi, hunangi og pipar
og látið kjúklinginn liggja í leginum
a.m.k. 45 mín. setjið salatið í skál og
blandið kjúklingnum, saxaðri
steinselju, hnetum og fræjum vel
saman við.
Frábært í
saumaklúbba
Ég skora á vinkonu mína, Sig-
ríði Runólfsdóttur, að vera næsti
matgæðingur. Hún er frábær
kokkur og alltaf með góða rétti.
Ég spýti ekki!
Þegar ég tók að mér að skrifa um vín, var það á þeim forsendum að ég væri venjulegur vín-áhugamaður að
skrifa um venjuleg vín,
á venjulegu verði,
sem hægt er að
nálgast í venjulegum
vínbúðum. Langflest
vín sem ég hef
fjallað um eru keypt
í litlu ríki á
seltjarnarnesi. Vín
sem yfirleitt hafa
verið lengi í sölu og
verða það væntan-
lega áfram. Ég hef
miðað við 2000
krónur sem hámarks-
verð og brýt sjaldan
þá reglu. Vonandi get
ég þó brotið þá reglu
oftar, þegar nær dregur
jólum.
Ótrúlega margir virðast halda að ég skrifi um vín sem
fjölmiðillinn eða innflytjandinn
úthluti mér. svo er ekki. Ég hef
sjálfur keypt hverja einustu
vínflösku sem ég hef skrifað um.
Ég hef ekki hugmynd um
hverjir flytja inn þessar
víntegundir og fjölmið-
illinn hefur aldrei reynt
að hafa minnstu áhrif á
skrif mín.
Ég spýti ekki víninu, enda borga ég sjálfur vínið og
finnst það gott. Ég
reyni að leggja mat
á lykt, bragð og
áferð víns. Það
skiptir máli hvernig
vínið er þegar það
hefur andað og
þegar neðar dregur í
flöskunni. Áhrifin skipta líka
máli og áhrifin daginn eftir.
Ég hef það líka fyrir reglu að
vera algáður þegar ég skrifa.
Hér fylgir umfjöllun um þrjú
vín sem eru vel þess virði að
smakka. skál!
Pálmi jónaSSon
vínsérfræðingur DV
Quinta do Crasto Reserva Old Vines
2004
dumbrautt og bráðskemmtilegt vín frá portúgal sem
ég er sannfærður um að eldist vel í vínkjallara í nokkur
ár. Lykt af plómum í púrtvíni, fíkjum og dökkum
skógarberjum. bragðmikið og ávaxtaríkt með
jarðarberjum, karamellu, kryddi, sveskjusteini og
plómum. Vínið er í góðu jafnvægi með mjúku og góðu
tanníni. Áfeng sulta, dökkt súkkulaði og eik í eftir-
bragði sem minnir jafnvel á freyju-lakkrísdraum.
frábært vín sem gott væri að eiga til
næstu jóla – eða þarnæstu. 2.090
krónur.
Norton Cabernet Sauvignon
Reserve 2003
Vínið er frá mendoza í miðvesturhluta argentínu en
það er helsta vínræktarsvæði landsins uppi undir
andesfjöllum. Vínið er eingöngu úr Cabernet sauvign-
on (malbec-útgáfan er ekki síðri!) og er látið liggja í
frönskum eikartunnum í tólf mánuði og á flöskum í
tíu mánuði áður en það er sett á markað. mikil eik í
nefi, smjör, vanilla, dökkt súkkulaði, pipar og nellikur.
Karamella í munni með mikilli vanillu af eikinni,
banani og hunang. mjúkt og skemmti-
legt vín í góðu jafnvægi. flauelsmjúk
karamella á frábæru verði. 1.390 krónur.
Tempus Two Vine Vale Shiraz 2005
tempus two er skemmtilegt fyrirtæki í örum vexti í
Ástralíu. upphafsárið 1997 framleiddi víngerðin 6000
kassa af víni en nú eru þeir yfir 100.000. Víntegundirnar
eru 19 og flöskurnar sérinnfluttar, sérkennilegar í laginu
og með miða úr málmi. Venjulega eru slíkar æfingar til að
skapa útlit utan um ómerkilegt innihald en ekki hér. Þetta
er afar áfengt (15%) og ágengt vín. sterkur ilmur af
plómum, sveskjum, brómberjum, pipar og eikarvanillu.
Þessi mikla og áfenga lykt minnir á bláan ópal, Victory V
og hóstasaft. Í munni enn meiri pipar, plómur og brómber
með karamellukeim af tólf mánuðum í eikartunnum.
mjög kraft- og bragðmikið vín. Áberandi tannín sem
myndi mildast á nokkrum árum í kjallara.
Kröfuhart vín sem reyndist vel með
villibráð og sterkum ostum. 1.830 krónur.
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
Steingerður Katla
Harðardóttir, starfs-
maður Prentmets á
Selfossi: „Þetta eru
rosagóðar salatuppskriftir
sem ég fékk í sauma-
klúbbi hjá vinkonu minni.“