Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 55
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 55
Sætar á Emmy
Okkar uppáhaldsgellur úr sjónvarpinu voru upp á sitt
besta á emmy-verðlaununum núna á sunnudaginn. bláir
og bleikir tónar voru frekar heitir sem og hin klassíska
blanda svart og hvítt. ein af eiginkonunum, eva Longori,
vakti mikla athygli fyrir að vera í stuttum glimmerkjól. en
svona er þetta, misjafn er smekkur manna.
Persónan
andlitið Er okkar Saga
Siggi Eggerts
Nafn? „siggi eggertsson.“
Aldur? „23 ára.“
Starf? „Ég starfa sjálfstætt við myndskreytingar og alls konar
hönnun.“
Stíllinn þinn? „sem persóna eða vinnutengt? Ég er einfaldur en á
sama tíma frekar flókinn, litaglaður en stílhreinn, alvarlegur en
hnyttinn, og ég held að allt þetta samsvari sér frekar vel í verkunum
mínum.“
Allir ættu að? „fara og hlusta á hljómsveitina tesla girls, þeir eru á
myspace.“
Hvað er möst að eiga? „Nintendo ds og lögfræðileikinn phoenix
Wright: ace attorney, hann er sjúklega skemmtilegur og ég held ég
sé orðinn mjög flinkur í þessu lögfræðidóti. Held ég gæti varið sjálfan
mig í Hæstarétti.“
Hvað keyptir þú þér síðast? „10 sígarettur, pasta, kók og dagblað.“
Hverju færð þú ekki nóg af? „Ég spái voðalega lítið í tísku, en svart
og einfalt, með litlum snúningi, er alltaf gott.“
Næsta tilhlökkun? „Ég hlakka til að sjá hvernig plötuumslag sem ég
var að klára fyrir einhverja breska útvarpspoppara kemur úr prentun.“
Hvert fórstu síðast í ferðalag ? „Ég fór síðast til Íslands að komast
aðeins úr rigningunni, hitta alla vini mína, mömmu, búa til tónlist og
skoða seyðisfjörð.“
Hvað langar þig í akkúrat núna? „sunnudagskærustu.“
Perlur hér heima, náttúruperlur? „Ég elska Hrísey.“
Hvenær fórstu að sofa í nótt? „Ég týndi úrinu mínu, klukkan í
símanum mínum núllaðist og ég held að klukkan í tölvunni minni sé
alveg kolvitlaus. Þannig að ég veit ekki hvað klukkan var þegar ég fór
að sofa, veit ekkert hvenær ég vaknaði og hef ekki hugmynd um
hvað klukkan er núna. finnst svolítið spennandi að lifa í svona
tímaleysi.“
Hvenær hefur þú það best? „Ég held að það sé á sunnudagskvöld-
um, einn á vinnustofunni með nóg fyrir stafni“.
Afrek vikunnar? „Það er leyndarmál“.
spúútnik, 2.900 kr.
Kronkron, bernhard Willhelm, 27.900 kr.
pierre gonnord er heimsþekktur ljósmyndari
sem tekur ótrúlegar portrettmyndir. pierre er
franskur en býr í madríd og hefur gert það síðan
árið 1988. Hann segist aldrei hafa þurft að taka
meðvitaða ákvörðun um hvað skuli mynda þar
sem hann hafi strax vitað að það væri portrett.
Hann segir að andlitið sé heillandi og heilagur
staður. gonnord segir að þrátt fyrir að andlitið sé
fast við líkamann sé það sjálfstæður hluti sem
segi og sýni svo margt, sé spegill sálarinnar. fyrir
utan það að taka portrettmyndir hefur gonnord
tekið myndir af hittingum síðan 1999 eða eins og
hann kallar það „portrett-hittinga“. Þar má sjá
konur og karla á öllum aldri, héðan og þaðan úr
heiminum, þetta er smá innsýn í þeirra heim,
muninn á milli samfélaga, menningarheima og alls
þess sem gerir okkur mannskepnurnar svona
ólíkar. Inni á heimasíðunni hans, http://www.
pierregonnord.com/ , má grennslast fyrir um
ljósmyndarann sjálfan og sjá ljósmyndir eftir hann.