Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Page 7
Asmundur Sveinsson — I baksýn:
Vdtnsberinn — Hringurinn — Kúlan.
við föður minn, og J)á sagði hann:
— Þetta er kannske ckki svo vitlaust.
Hann dugir hvort eð er ekki sem
bóndi.
Það varð svo úr, að ég fór til
Reykjavíkur og lærði tréskurð hjá
Ríkarði Jónssyni í fjögur ár. Mig
langaði þá til að gera eitthvað meira,
svo að ég fór til Kaupmannahafnar.
Þar var ég einn vetur. Þaðan fór ég
til Stokkhólms og var þar í sex ár.
Aðalkennari minn þann tíma var pró-
fessor Milles — hann fór síðar til
Ameríku og varð stórauðugur maður.
Frá Stokkhólmi fór ég svo til Parísar.
Milles var ógurlega fróður. Ég var
kannske að kafna í öllum þessum
sögulegu kenningum um stíl og þess
DAGSKRÁ
háttar, en París hrifsaði mig til lífsins.
Þar var ég í fjögur ár og stundaði nám
hjá Despieu og Bourdelle. Þeir voru
báðir nemendur Rodins gamla og voru
hinir sterku menn í myndlist Frakka
þá. Heim til íslands kom ég svo 1929.
— Og hefur ekki dvalizt erlendis
síðan?
— Aldrei langdvölum. Ég hef nokkr-
um sinnum skroppið til Parísar til
þess að sjá, hvað þeir eru að gera. Ég
hef ckki endilega farið í því skyni að
verða fyrir áhrifum, heldur hef ég
viljað miða við, að það. sem ég geri
hér heima, geti staðið við hlið þess,
scm félagar mínir ytra vinna. Hinu
verður svo tíminn að skera úr, hvort
þetta dugir til nokkurs.
5