Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Page 12
hengdi upp í stofu sinni. Svo heimsótti
bóndann listmálari, sem blöskraði
sinekkleysið. Hann liclt þrumandi
ræðu yfir bóndanum og útskeit
Davíð og Golíat — eik, 1953.
myndina. Daginn eftir var hún kom-
in út á haug.
Þarna dó fyrsti neistinn hjá þess-
um bónda.
Við megum ekki fara of geyst í
sakirnar við þetta ósnortna fólk. Það
verður að fara varlega að því fyrst.
En sú tíð kemur, að Islcndingar munu
kunna að njóta góðrar myndlistar.
— Þú hefur horfið frá hinni natúr-
alisku stefnu. Viltu nefna mér ein-
hverjar sérstakar orsakir þess?
— Hið gamla vekur ekki áhuga
minn lengur. Ég er l>ó ekki að segja,
að ég vilji tapa því myndræna.
Ég er enginn línumaður. Ég vil, að
allir séu frjálsir. En ég á erfitt með
að segja, í livaða stíl þetta er, sem ég
hef verið að gera. Þetta er ógurlega
margbreytilegt. Það er bara lífið sjálft.
Ég er kannske stundum jiortrætter,
symbolisti, cubisti, abstraktisti. Og
þó er ég ckkert af þessu og kæri mig
kollóttan um það. Ilið sterkasta í list
er persónulegt ástand og viðhorf þess,
er skapar.
Þó held ég, að sá, sem leggur á sig
að fylgjast með í myndlist samtíðar
sinnar, þroskist meira jafnhliða en
hinn, sem stendur kyrr í því gamla.
Við skulum hugsa okkur tvær sýn-
ingar. aðra abstrakta. en hina natúr-
aliska. Fólk fer inn á þá natúralisku,
sér málverk frá Þingvöllum, einhvern
klett. Það þekkir hann og verður
óskaplega hrifið. — Jú, þetta kannast
ég við. Svona er þessi klettur. Dá-
samlegt! Fólkið vill fá sögu út úr
myndum. En það hjáljrar ekki
smekknum að binda sig bókmennta-
Iega í myndlist.
Svo fer þetta sama fólk á abstrakt
sýningu. Það fær enga sögu, ekkert,
sem það þekkir af gamalli viðkynn-
ingu. Það vcrður fyrir vonbrigðum.
En samt — þessi nútímalist skor-
ar á smekk fólksins — að skynja form
og línur — og auðvitað liti í málara-
Iistinni — að njóta samræmis og sam-
hljóma í formi og línum — alls stað-
ar — án hliðsjónar af bókmenntum
og sögum.
Þegar líkingunni við hið raunveru-
lega sleppir, er það aðeins formspil-
ið og línuspilið, sem á að orka gegn-
10
DAGSKRA