Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Qupperneq 21
Jón Dan:
Tvö Ijóð
Ljóð um hest
Oft leit ég þig i draumi,
glófexti jór,
sá þig
leilca þér í haga
og forðast uiig,
styggan eins og tryppi;
en stundum spakan,
með riddara berbalct, ókunna menn,
sem hrœddir og ringlaðir
héldu sér skjálfandi
í glóandi faxið,
er þú, vekringur,
dansaðir með þá, töltir,
þýður sem blœr
burt, yfir fljótið.
ká spurði ég tíðum:
IJví þá, hina kviðnu,
sem óttast þig?
IIví elcki mig?
Loks heyrði ég hnegg þitt
um dimma, dimma nótt.
Sá þig,
lokuðum augum,
renna til mín úr haga
með sperrt eyru og hringaðan makka.
Óþolinmóður, óþolinmóður,
unz hœgt og rótt
heyrði ég kumr þitt við eyra.
En þegar ég rétti út höndina,
höndina mína visnu
til að grípa í fax þitt,
til að gripa þétt í fax þitt,
til að kippa mér snarlega
upp á bak þitt,
til að spenna kvið þinn fótum
og grúfa fölt andlit mitt
i glóandi fax þitt,
— þá hrökkstu frá.
Komdu nú, fákur minn,
komdu nú, bleiki jór.
Komdu nú, styggi gœðingur.
dagskrá
19