Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Side 26

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Side 26
Ég dó. (Ég skar nefnilega þvert yfir, skiljið þið; á slagæðina, samvizkuna, fegurð- ina, tryggðina, skynsemina; allt. Og ég dó. En lifði það samt af — á mann- talinu. Ekkert eins hlálegt, ótrúlegt jafnvel, eins og einmitt það.) Þegar ég skar mig-------Vitið ér? Mér leið vel. Mér leið betur cn fyrr eða síðar. Ég vissi, að ég var ungur; að ég var fagur. Að ég var vel af Þeim Gamla gefinn. Og ég sagði: Þú, Loðna Kló, sem fékkst mig til að bletta fegurð sjálfs mín! Þú! — Og S. X. hrópaði á móti, gegnum tíma og rúm; gegn tíma og rúmi: Tat tvam así, sagðirðu greyið! Hvítt vor. Og blátt. Blátt vor, og vor grátt. Hvítt; íðil- o.s.frv. Ég dó. Ég lifði. Ég lifi enn. Ég. Ego. (Sem er auðséð. Annars myndi ég ekki hafa skrifað þessa sögu.) Hvenær vita menn? („Vitið ér enn eðr hvat?“ — Hvílíkur barnaskapur!) Hvenær vita menn? Þegar ég skar mig, þá — (Moskvu í ágúst 1957). 24 DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.