Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 29
Sveinn Einarsson:
Nokkur orð um nútímaleikrit
Um það leyti, sem Silfurtúnglið var
leikið í fyrsta sinn, var Halldór Kilj-
an Laxness spurður að því, hvað ylli
því, að hann legði til atlögu á nýju
sviði, þar sem kröfurnar væru aðrar
en þar, sem hann hefði áður sigrað
með frásagnargáfu sinni. Skáldið
svaraði því meðal annars til, að í
heiminum væri ríkjandi hungur eftir
leikritum.
Samkeppnin er á breiðara grund-
velli í dag en áður. Kvikmyndir og
sjónvarp keppa ekki aðeins við leik-
húsin um hvlli áhorfenda, heldur
draga og til sín hæfileikamennina. En
hvenær hefur menn ekki hungrað eft-
lr góðum leikritum? Og hvernig lítur
út þetta, sem við viljum kalla gott
leikrit árið 1958? Maður er á hálli
braut, ef maður ætlar sér að leggja
sögulegan dóm á bókmenntir sinnar
tíðar, en eins konar yfirlit getur verið
einhvers virði.
í*egar við setjum okkur fyrir sjónir
stefnur fyrri tíma, verða þær oftast
heillegar fyrir okkur og afmarka
ákveðin tímabil. Við höldum okkur
við ytri einkenni, látum okkur með
OAGSKRÁ
vilja sjást yfir margvíslegar flækjur,
sem undir eru, við viljum draga í
sterkustu þræðina til að geta rakið
þróunina. Raunsæisstefnan fyrir alda-
mót verður ein heildarmynd, mót-
vægi hennar kemur með symbólisma
(táknsæisstefnu) og nýrómantík. Og
þó vitum við, að ekki getum við ein-
angrað t. d. problem-under-debat-
leikrit Ibsens og það þjóðfélag, sem
þau eru sprottin úr og spegla. Þó
ekki sé litið nema á formið eitt, vit-
um við, að byggingarmeistarinn Ib-
sen, sem margir hafa starað blint á
sem þá fyrirmynd, sem fullkomlegast
hafi formað hugtakið drama fyrir nú-
tímann, byggði ekki hús sín á sandi:
Frakkinn Eugene Scribe og ýmsir
aðrir landar hans þykja ekki eiga
skáldnafn skilið í dag, en hugtakið
„piece bien fait“ gildir þó um verk
þeirra sem fyrr. Bókmenntafræðingar
hafa fundið mikil Iíkindi með tækni
Ibsens og t. d. Shakespeares og grísku
harmleikaskáldanna, einkum Sofók-
lesar og Evrípídesar, svo að sjónar-
sviðið getur orðið æði stórt, ef maður
vill afmarka hugtakið nútíma-, mod-
27