Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Side 52

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Side 52
Lúthersk kirkja í Teaneck, New-Jersey, Bandaríkjunum. Paul Schtoeikher, arkitekt, 1958. Afast við kirkjuna er félagsheimili og skóli fyrír vangæf b'órn. Sjálf kirkjan lakmarkast af steinsteypu- bogunum t. v. Flestir líta svo á, að kirkjan eigi að bera þess merki í ytra útliti, að um heilagt hús sé að ræða, jafnvel vera táknræn mynd tilbeiðslu og guðrækni, og er þá farið út á mjög hálan ís. Má og óendanlega deila um það á listrænum grundvelli, hvaða svip kirkjan eigi að bera. Sumir hallast að íburðarmikilli skreytingu, aðrir vilja, að einfaldleikinn ríki í fullkominni mynd. Allur þorri manna ætti þó að geta orðið sammála um, að kirkjan er samkomustaður með veggjum og þaki, og þar skuli vera sem minnst um burðarstoðir eða annað, sem hindrar söfnuðinn í að fylgjast með því, sem fram fer fyrir altari eða í predikunarstól. Altarið er sá brennipunktur, sem athyglin beinist að,og ákvarðast bygg- ingin fyrst og fremst af því. íhuga verður því vandlega staðsetningu þess og lýsingu o.s.frv. Hljóðburður verður að vera góður, og mætti þannig nefna ótal tæknileg vandamál, sem leysa verður á viðun- andi hátt, til þess að byggingin geti gegnt því hlutverki, sem henni er ætlað. Ymsar aðstæður eru þess valdandi, að ein lausn er tekin fram yfir aðra, enda eru líka oft margir möguleikar fyrir hendi. Nútíma kirkjubyggingarlist ákvarð- ast að mjög miklu leyti af framan- greindum atriðum. Meiri áherzla er lögð á en áður tíðkaðist að uppfylla þau skilyrði, sem sett eru í sambandi við messugjörð, en aftur á móti ekki fylgt eftir hinum svokölluðu hefð- bunduu formum, sem, eins og áður er sagt, eiga fremur rætur sínar að rekja til eiginleika byggingarefnisins og verktækni liðinna alda. Kemur þetta skýrt í ljós, ef litið DAGSKRÁ 50

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.