Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Síða 64

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Síða 64
Leikiist: Leiklist og gagnrýnendur RæSu þá, er hér jer á ejtir, flutti Har- aldur Björnsson leikari sem jramsögu- erindi í viðmSum leikara og gagnrýn- enda á fundi í Listamannaklúbbnum í Nausti miSvikudaginn 30. april s. I. Góðir leikgagnrýnendur og aðrir fundar- menn! Að ég ávarpa leikdómarana — svona alveg sérstaklega — kemur til af því, að for- maður Félags arkitekta hér f bæ, Hannes Davíðsson, óskaði eftir því af mér, að ég yrði málshefjandi fyrir hönd leikara í umræðum einmitt við leikgagnrýnendur. Ég gat illa færzt undan þessu, þótt ég viti auðvitað vel, að taka sér slíkt á hendur er nærri því það sama og að ganga á glóandi eldfjalli. Og hver gerir það af fúsum vilja? En þó er sú bót í máli, að ég þoli svo ótrúlega vel hita. Nú er það ekki svo, að ég ætli mér — ekki af ásettu ráði — að fara út í deilur við þessa ágætu menn , sem hér eiga hlut að máli. Hvað sem svo verða kann — né segja þeim fyrir veikum, því ég hef nokkra reynslu fyrir því, að þessi stétt manna á erfitt með að láta að stjórn. En það getur bæði verið gagnlegt og gam- an að rabba um hlutina í bróðerni. Ég segi í bróSerni, því þeir tímar eru nú liðnir, að ekki var rætt um þessi mál í neinu bróðerni, eða af vinsemd né skilningi. Meira að segja æðstu menn hérlendis gátu þá ekki eða vildu ekki láta sér skiljast annað, en að íslenzkir leikarar hlytu þá og ætíð að vera amatörar og leikhúsið eins konar dægradvöl áhugamanna, eins og einn góður maður og leikari komst einu sinni að orði í allsnörpum ritdeilum við mig um þessi mál fyrir mörg- um árum síðan. Orðið atvinnuleikari var í þá daga óspart notað sem skammaryrði í ræðu sem riti, og jafnvel hrópað á götum úti á eftir þessum eina, sem hafði verið svo fífldjarfur að hafa þann metnað fyrir hönd leikaranna að ætla þeim annað og betra hlutskipti en að vera dilettantar um ókomnar aldir. I sölum sjálfs Alþingis kom það meira að segja fyrir, að sá, sem fyrstur íslenzkra leikara lagði það á sig að undirbúa sig undir starf sitt, eins og menn f öðrum listgreinum, — meira að segja þar, var sá hinn sami nefnd- ur fjárplógsmaður, sem gerði sér leiklist að atvinnu. — Hafði nokkur nokkurn tíma heyrt annað eins? — Nei, hann var hættulegur umhverfi sínu og allri þjóðarheildinni, og fékk því auðvitað ekki þann fjárstyrk, er hann sótti um til leikskóla síns. Þótt nú ekki væri! En þetta er nú önnur saga, og margþætt- ari en svo, að hún verði hér rakin, enda skráð á öðrum vettvangi. Þetta eru sem sé liðnir tímar. Hamingjunni sé lof! Slíkt væri óhugsanlegt í Reykjavík vorra daga. Þó eru aðeins 25 ár síðan. 011 gagnrýni er mikið vandaverk, og eftir DAGSKRÁ 62
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.