Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Qupperneq 87
er mikil heiðríkja og hreinleiki. í þess-
ari nákvæmu — næstum smásmugulegu —
lýsingu á einu skoti gætir slíkrar háttvísi,
að helzt verður að jafna til hinna beztu ís-
lendingasagna. Eg minnist mjög svipaðrar
kenndar — spennu og eftirvæntingar — er ég
las fyrst lýsinguna á vígi Þráins í Njálu.
Annars fer Jónas hvergi á meiri kostum en
þá, er hann Iýsir börnum. Ég vil geta svip-
myndanna Forstandíss, Kóngurinn í Svíþjóð
og Er hó? Og hygg ég þó Er hó? bera af. Þar
er meistaralega saman slungið fegurstu nátt-
úrulýsingu, hallandi sumri og duldum vetrar-
kvíða, fjölbreyttri lífsbaráttu fólks í litlu
þorpi, heyskap og aflabrögðum, kátum leik
fjörugra unglinga og háspekilegum guðræknis-
hugleiðingum lítillar telpu. Þótt tónsvið Jón-
asar sé ekki vítt í þeim skilningi, að hann
velji sér margbreytileg yrkisefni, tekst honum
oft meistaralega að ná mikilli vídd í litlu efni.
Leikur barnanna á bryggjuhausnum bregður
ljósi um stærra svið. Slíkt vildi ég kalla ein-
kenni góðs skálds.
Enn hlýt ég að mínu viti að setja skör lægra
frásögnum Jónasar og svipmyndum úr daglegu
lífi þá þætti, sem hann kallar sögur. Þrjár
sögur eru í þessari bók: Hattar, Undir eggtíð
og Skrín. Af þeim þykir mér Undir eggtíð bezt
gerð. Það er ekki óeftirminnileg saga og dável
hnitmiðuð.
Skrín hefur hlotið mikið lof á prenti, en
ekki kann ég að meta hana. Bæði Jón Trausti
og Guðmundur Hagalín hafa sagt þessa sömu
sögu betur, af nánari innlifun og meiri sann-
færingu. Það er dálítil skrifborðslykt af þess-
ari hetjusögu sæfarans, og heyrzt hefur, að
Jónasi þyki sá þefur flestum fnykri ámáttugri.
Það væri mikil ósanngirni að verða fyrir
vonbrigðum af jafngóðri bók sem þessari. Að
vísu teldi ég Jónasi þroskavænlegra að róa
ekki miklu lengur á þessi hin sömu mið og
hann hefur undanfarið sótt, og óneitanlega
hefði mig langað til að heyra fleiri strengi óma
í þessari bók en hinum fyrri. En Jónas er enn
í þroska um listræna efnismeðferð, og formlist
lians hefur fágazt meira en honum hafi aukizt
víðfeðmi.
S. S.
dagskrá
85