Fréttatíminn - 02.05.2014, Page 28
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í
Reykjavík. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Hægt er að sækja um flutning atriða, uppákomur og viðburði á vefnum
www.17juni.is en umsóknum má einnig skila í Hitt Húsið,
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 9. maí.
Upplýsingar í síma 411 5502 eða á 17juni@reykjavik.is
17. júní í Reykjavík
L istir og ferðalög eru mínar helstu ástríður í líf-inu. Ég var búin að ganga með þennan draum í mag-
anum mjög lengi. Ég hef verið að
sinna leiðsögn með annarri vinnu í
nokkurn tíma og það kom snemma
í ljós að ég er mjög persónulegur
leiðsögumaður, mér finnst mjög
gaman að leika mér með hópnum,
gera öðruvísi hluti og helst koma
fólki skemmtilega á óvart. Helst
Ætlaði alltaf að breyta til um miðjan aldur
Valgerður Pálsdóttir ákvað að láta gamlan draum rætast og stofna ferðaskrifstofu sem sérhæfir
sig í persónulegum ferðum fyrir fólk sem hefur áhuga á menningu, listum og stöðum úr
alfaraleið. Hún er ekki hrifin af fjöldaframleiddum ferðum og leggur áherslu á að ferðamaðurinn
upplifi landið með augum innfæddra listamanna.
Að upplifa nýjar slóðir með heimamönnum, helst ótroðnar, segir Valgerður Pálsdóttir vera bestu leiðina til að kynnast nýjum stöðum fyrir alvöru. Ljósmynd/Hari
vil ég fara óhefðbundnar leiðir og
með fullri virðingu fyrir öðruvísi
ferðamennsku þá myndi ég ekki
vilja vera á stórum skemmtiferða-
skipum og þess háttar ferðum. Ég
hugsa þetta algjörlega út frá sjálfri
mér, og geri ferðir sem ég sjálf
myndi vilja fara í.“
Langaði alltaf til að skapa
„Ég er ansi listræn í mér, og á
ferðalögum held ég alltaf dag-
bækur þar sem ég teikna, mála og
skrifa,“ segir Valgerður sem verð-
ur alltaf fyrir miklum innblæstri
þegar hún ferðast. „Mér datt í hug
að svona væri þessu líklega farið
með fleira fólk en mig og ákvað
að bara gera þetta að mínu starfi.“
Eftir að hafa farið á brautargengis-
námskeið hjá Nýsköpunarmið-
stöð ákvað Valgerður svo að láta
slag standa og drauminn rætast.
„Nafnið á fyrirtækinu, „ArtTra-
vel“, var löngu komið, en svo fékk
ég þarna aðstoð við að þróa við-
skiptahugmyndina, sem var að
flétta saman menningu, listum og
ferðalögum. Í kjölfar námskeiðs-
ins stofnaði ég svo fyrirtækið og
hef verið að vinna í þessu hægt og
bítandi síðan.“
Valgerður hefur verið að vinna
sem náms-, félags- og uppeldis-
ráðgjafi til margra ára en dreymdi
alltaf um að skipta um starfsvett-
vang um miðjan aldur. „Ég hef
notið þess að vinna með fólki,
sem félags-og uppeldisráðgjafi,
en vissi samt alltaf innst inni að
ég myndi skipta algerlega um
vettvang einhvern tímann. Þegar
ég var unglingur stóð ég frammi
fyrir því að velja milli listnáms og
einhvers sem væri meira prakt-
ískt. Ég valdi praktísku leiðina en
ákvað í leiðinni að ég myndi söðla
um þegar ég væri komin á miðjan
aldur, því ég vissi að ég yrði á ein-
hverjum tímapunkti að snúa mér
að einhverri sköpun.“
Að upplifa með heimamönnum
Að upplifa nýjar slóðir með augum
heimamanna, og meðal annars
listamanna, er það sem ferðir
Valgerðar snúast um. „Skemmti-
legast finnst mér að ferðast með
fólki sem þekkir staðina vel,
helst heimamönnum,“ segir Val-
gerður og bætir því við að hún
hafi kannski ekki ferðast svo víða
en ferðalögin hafa verið mjög
innihaldsrík. „Ein af mínum
bestu ferðum var fyrir nokkrum
árum þegar ég heimsótti gamlan
vínbúgarð frá 18.öld, sem var búið
að breyta í listasetur, rétt utan við
Barcelona. Þar kynntist ég svo
skemmtilegu og yndislegu fólki
sem er einmitt minn helsti tengi-
liður í Barcelonaferðunum sem ég
skipulegg núna sjálf. Fararstjórinn
í þeirri ferð er einmitt listakona
sem ég kynntist á vínbúgarðinum.
Mér finnst skipta mjög miklu máli
að það sé fólk sem vel þekkir til
sem sér um leiðsögnina því ferða-
maðurinn fær svo miklu meira út
úr ferðinni þannig. Ég býð upp á
öðruvísi ferðir fyrir menningar-
lega sinnað fólk, bæði fyrir Íslend-
inga erlendis og útlendinga hér-
lendis. Ef ferðamaðurinn er með
heimamönnum og fær að kynnast
listamönnum og skáldum í þeirra
umhverfi, verður ferðin bara svo
miklu innihaldsríkari.“
Ævintýraþyrstur ferðalangur
„Ég var á Suður-Spáni í fyrrasum-
ar, en ég er einmitt að fara í ferð
með Íslendinga til Andalúsíu og
Marokkó í júní. Þegar ég var stödd
þar langaði mig með bátnum yfir
til Tangier í Marokkó, svo ég
ákvað að skella mér bara yfir og
fór ein. Ég var ekki fyrr lent en
ég var komin upp á skellinöðru
hjá Múhameð nokkrum á leið
um borgina,“ segir Valgerður
og skellihlær. „Hann gerðist
minn einkafararstjóri og keyrði
alveg eins og brjálæðingur þarna
með mig út um allar trissur. Svo
hjálpaði hann mér að finna rútu
til Chefchaouen sem er ótrúlega
fallegt lítið þorp upp í fjöllunum
inn í landi. En um leið og ég kem
úr rútunni þá kom annar maður,
sem hét líka Múhameð, og bauð
fram aðstoð sína,“ segir Valgerður
og skellir aftur upp úr.
„Öll hótel voru uppbókuð svo
þessi Múhameð númer tvö hjálp-
aði mér að finna gistiheimli, sem
hafði auðvitað enga loftkælingu,
en það var 48 stiga hiti! Ég ætlaði
aldrei að geta sofnað þessa fyrstu
nótt mína í Marokkó en svo þegar
ég var loks alveg að festa blund þá
byrjuðu bænaköllin,“ segir Val-
gerður og hlær ennþá meira og er
greinilega mjög skemmt yfir minn-
ingunum. Hún segist aldrei vera
hrædd á ferðalögum þrátt fyrir að
ferðast ein. „Reyndar hugsaði ég
þegar fyrri Múhameð var að leiða
mig um allar þessar litlu, þröngu
götur Tangier að ég gæti kannski
verið í einhverskonar hættu. Hann
hafði allavega mjög gott tækifæri
til að ræna mig hefði hann viljað.
Ég ýtti bara þeirri hugsun frá mér
og ákvað að treysta honum.“
Ferðalagið rétt að byrja
Það er greinilegt að þetta nýja
ferðalag Valgerðar er rétt að byrja
því hún er komin á flug með fjölda
ferða í kollinum. Nýjasta uppgötv-
unin er Slóvakía, þar sem dóttir
hennar býr. „Ég var að koma úr
ferð þaðan og við mæðgurnar fór-
um til Banska Stiavnica, sem er al-
veg stórkostlega fallegur bær sem
er á heimsminjaskrá UNESCO.
Hann er þekktur fyrir gamlar gull-
og silfurnámur og hefur að geyma
alveg ótrúlega mikla sögu. Næst á
dagskrá er að skoða að búa til ferð-
ir þangað fyrir Íslendinga,“ segir
Valgerður sem er strax komin í
kynni við listamenn í bænum sem
munu væntanlega aðstoða hana við
að gera upplifunina ógleymanlega.
Halla Harðardóttir.
halla@frettatiminn.is
28 viðtal Helgin 2.-4. maí 2014