Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 40
40 fjölskyldan Helgin 2.-4. maí 2014 Ný viðmið til að fá fram upplýsingar um fjölskyldugerð J á ég er alveg sammála þér, mér finnst þetta orð „umgengnisforeldri“ leiðinlegt. Það er eitthvað svo niðurlægjandi eins og maður sé annars flokks foreldri“. Á vefnum syslumenn.is er að finna mikið af gagnlegum upplýsingum, meðal annars um svo- kallaða umgengni og fyrrnefnda umgengnisforeldra en það eru þeir foreldrar sem ekki eiga sama lögheimili og börn þeirra. Þar segir að tilgangur umgengninnar sé að tryggja að barn fái að umgangast og halda sambandi við það foreldri sitt sem það býr ekki hjá. Jafnframt að það sé réttur foreldris að fá að umgangast barn sitt og á því hvílir skylda að sinna umgengni við barnið. Flestir foreldrar vilja mikil samskipti við börn sín óháð því hvar lögheimili þeirra er skráð og gera það sem þeir geta til að börnin geti átt samvistir við báða foreldra sína, jafn- vel þeir sem eiga í persónulegum deilum. Því miður á það ekki við um alla foreldra. Sumir foreldrar ákveða að vera ekki inni í lífi barna sinna frá upphafi en aðrir láta sig smá saman hverfa úr lífi þeirra. Algengar ástæður þess að foreldrar draga úr tengslum við börn sín eftir skilnað eða skera á þau, eru að þeir geta átt erfitt með að þola þann sársauka sem fylgir að vera ekki lengur í daglegum samskiptum við þau, erfið samskipti við fyrrverandi maka eða vegna misskilinnar tillitssemi þ.e. til að skapa rými fyrir stjúpforeldri í lífi barnanna. Stundum er skorið á tengsl við eigin börn vegna erfiðra stjúptengsla í stað þess að reyna bæta og læra nýjar leiðir. Ef for- eldri sinnir ekki börnum sínum hefur það engar lagalegar afleiðingar en fátt er erfið- ara börnum en höfnun foreldra, sama hvaða ástæðu þeir gefa sér. Það er líklega ekki að ástæðulausu að sum börn upplifi sig minna metin að verðleikum en önnur börn. Hið fyrrnefnda „umgengnisforeldri“ er ekki að finna á vef Hagstofunnar og því ekki sýnilegt í opinberum tölum hennar nema sem „einstaklingur“. Ef það er komið í sambúð að nýju er það „hjón eða óvígð sambúð með börn“ séu börn með lögheimili á heimilinu eða „hjón eða óvígð sambúð án barna“ hvernig svo sem menn komast að þeirri niðurstöðu. Þar má hinsvegar finna „einstætt foreldri“ og „einhleypt foreldri“, „kona með barn“ og „karl með barn“. Kannski það ætti að vera „karl (eða kona) með lögheimili barns“ ef ég skil þetta rétt þar sem ekki er verið að vísa í foreldra almennt. Á vefnum kemur líka fram að hugtakið lögheimili sé „tölfræðilegt“ hugtak. Það þýð- ir líklega að nota eigi hugtakið til mælinga en það er verra þegar það er notað til að skil- greina hverjir eru foreldrar og ekki foreldar samkvæmt Hagstofunni. En þegar rætt er um einhleypa foreldra hér á landi er líklega aðeins átt við um títtnefnda lögheimilisforeldra en fjöldi þeirra árið 2013, var um þrettán þúsund manns og yfirgnæfandi meirihluti konur. Svo virðist sem að litið sé á að lögheimili feli í sér „fasta búsetu“ og börn fari í „um- gengni“. En hvað er föst búseta? Hún á að vera einhverskonar bækistöð okkar, þar sem við dveljumst að jafnaði í tómstundum okkar, höfum heimilismuni okkar og svefnstað þegar við erum ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika. Ég velti því þá fyrir mér hvort barn sem dvelur viku og viku hjá hvoru foreldri um sig uppfylli skilyrði fastar búsetu? Ef svo er, á það þá ekki við um bæði heimilin? Nú hvað með börn sem eru 10 daga á heimili móður og 20 daga á heimili föður ef þau eiga sambærilega hluti á báðum stöðum og foreldrar deila ábyrgð og um- önnun nokkuð jafnt? Spurning hvort við þurfum ekki ný viðmið til að fá fram upplýsingar um fjölskyldugerð- ir sem gefi betri mynd af veruleikanum og hugtök sem endurspegla sameiginlega ábyrgð foreldra. Kannski má kalla umgengnissamninga „foreldrasamninga“ þar sem fram kemur hvernig þeir ætla að sinna hlutverki sínu og tryggja rétt barna sinna. Ef til vill er orðið „samvistir“ meira lýsandi og viðeigandi orð en „umgengni“ og kostnaðarskipting jákvæð- ara en meðlag. Börn þurfa á því að halda að samfélagið styðji við báða foreldra þeirra, geri þá sýnilega og líti á þá sem jafn mikilvæga í lífi þeirra með aðgerðum sínum og orðum – er eftir einhverju að bíða? Spurning hvort við þurfum ekki ný viðmið til að fá fram upplýsingar um fjölskyldugerðir sem gefi betri mynd af veruleikanum og hugtök sem endurspegla sameiginlega ábyrgð foreldra. Orð skipta máli Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari heimur barna KRINGLUNNI 2. HÆÐ HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS prooptik.is 20% afsláttur af HÁDEGISTILBOÐ Miðstærð af bát 12” pizza 2 álegg Aðeins 999-kr. Aðeins 999-kr. salat m/kjúkling / roastbeefLítill bátur eða Aðeins 699-kr. & gos/Kristall að eigin vali Nýbýlavegi 32 S:577 577 3 supersub.is Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Mayoral mini 3-9 ára Skyrta: 4595.- Mayoral mini 3-9 ára SumarJakki: 7395.- Mayoral mini 3-9 ára Buxur: 5595.- Mayoral mini 3-9 ára Bolur: 2795.- Iana Reykjavík 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SUMARJÖKKUM OG KÁPUM Vor/sumar 2014 Börn þurfa á því að halda að samfélagið styðji við báða foreldra þeirra, geri þá sýnilega og líti á þá sem jafn mikilvæga í lífi þeirra með aðgerðum sínum og orðum. 1. Fræddu börnin þín um umhverf- ismál. Því meira sem þau vita um áhrif mengunar því betur skilja þau afleiðingar gjörða sinna. Lestu bækur og horfðu á heimild- armyndir fyrir börn, t.d. Nature's Ocean frá Disney. 2. Kenndu þeim að afþakka ókeypis vörur sem eru gefnar í auglýs- ingaskyni. Það er algjör óþarfi að fylla heimilið af drasli sem enginn notar og fer svo beint á haugana. 3. Hreinsaðu til í fataskápum og leikfangakistum. Það flokkast ekki undir dekur að fylla her- bergi barnanna af drasli. Þau læra aldrei að kunna að meta dótið sitt ef þau sjá það ekki fyrir drasli. Þar að auki er auðveldara fyrir þau að læra að laga til sjálf ef það er minna af dóti, og þá er meiri tími til að leika. 4. Kenndu börnunum að njóta augnabliksins og að upplifun varir að eilífu. Að vera er mikil- vægara en að eiga. Gefðu þeim upplifun í stað veraldlegra gjafa. 5. Láttu þau hjálpa til við endur- vinnsluna heima. Öll börn elska að vinna! 6. Gefðu þeim nesti í skólann án um- búða. 7. Þegar þú ferð í Sorpuferð, taktu þau þá með. Fyrir utan að læra af því þá finnst börnum líka gott að finna að þau geti hjálpað til. 8. Láttu þau hjálpa til við garðvinn- una. Leyfðu þeim að grafa í mold- inni og upplifa hringrás lífsins með því að sá og sjá blómin vaxa, dafna og deyja. 9. Farið út! Kenndu börnunum þínum að njóta útivistar. Farið í hjólaferð, skíðaferð, nestisferð, útilegur og fjallgöngur. Börn vita ekkert skemmtilegra en að njóta með foreldrum sínum. 10. Skemmtið ykkur. Umhverfis- vernd snýst ekki um að hræða börnin heldur að láta þau vita að þau geti breytt heiminum. -hh. 10 leiðir til að kenna börnunum þínum að virða umhverfið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.