Fréttatíminn - 02.05.2014, Qupperneq 40
40 fjölskyldan Helgin 2.-4. maí 2014
Ný viðmið til að fá fram upplýsingar um fjölskyldugerð
J á ég er alveg sammála þér, mér finnst þetta orð „umgengnisforeldri“ leiðinlegt. Það er eitthvað svo niðurlægjandi eins og maður sé annars flokks foreldri“. Á vefnum syslumenn.is er að finna mikið af gagnlegum upplýsingum, meðal annars um svo-
kallaða umgengni og fyrrnefnda umgengnisforeldra en það eru þeir foreldrar sem ekki
eiga sama lögheimili og börn þeirra. Þar segir að tilgangur umgengninnar sé að tryggja
að barn fái að umgangast og halda sambandi við það foreldri sitt sem það býr ekki hjá.
Jafnframt að það sé réttur foreldris að fá að umgangast barn sitt og á því hvílir skylda að
sinna umgengni við barnið.
Flestir foreldrar vilja mikil samskipti við börn sín óháð því hvar lögheimili þeirra er
skráð og gera það sem þeir geta til að börnin geti átt samvistir við báða foreldra sína, jafn-
vel þeir sem eiga í persónulegum deilum. Því miður á það ekki við um alla foreldra.
Sumir foreldrar ákveða að vera ekki inni í lífi barna sinna frá upphafi en aðrir láta
sig smá saman hverfa úr lífi þeirra. Algengar ástæður þess að foreldrar draga úr
tengslum við börn sín eftir skilnað eða skera á þau, eru að þeir geta átt erfitt með að
þola þann sársauka sem fylgir að vera ekki lengur í daglegum samskiptum við þau,
erfið samskipti við fyrrverandi maka eða vegna misskilinnar tillitssemi þ.e. til að
skapa rými fyrir stjúpforeldri í lífi barnanna. Stundum er skorið á tengsl við eigin
börn vegna erfiðra stjúptengsla í stað þess að reyna bæta og læra nýjar leiðir. Ef for-
eldri sinnir ekki börnum sínum hefur það engar lagalegar afleiðingar en fátt er erfið-
ara börnum en höfnun foreldra, sama hvaða ástæðu þeir gefa sér. Það er líklega ekki
að ástæðulausu að sum börn upplifi sig minna metin að verðleikum en önnur börn.
Hið fyrrnefnda „umgengnisforeldri“ er ekki að finna á vef Hagstofunnar og því
ekki sýnilegt í opinberum tölum hennar nema sem „einstaklingur“. Ef það er komið
í sambúð að nýju er það „hjón eða óvígð sambúð með börn“ séu börn með lögheimili
á heimilinu eða „hjón eða óvígð sambúð án barna“ hvernig svo sem menn komast að
þeirri niðurstöðu. Þar má hinsvegar finna „einstætt foreldri“ og „einhleypt foreldri“,
„kona með barn“ og „karl með barn“. Kannski það ætti að vera „karl (eða kona) með
lögheimili barns“ ef ég skil þetta rétt þar sem ekki er verið að vísa í foreldra almennt.
Á vefnum kemur líka fram að hugtakið lögheimili sé „tölfræðilegt“ hugtak. Það þýð-
ir líklega að nota eigi hugtakið til mælinga en það er verra þegar það er notað til að skil-
greina hverjir eru foreldrar og ekki foreldar samkvæmt Hagstofunni. En þegar rætt er um
einhleypa foreldra hér á landi er líklega aðeins átt við um títtnefnda lögheimilisforeldra en
fjöldi þeirra árið 2013, var um þrettán þúsund manns og yfirgnæfandi meirihluti konur.
Svo virðist sem að litið sé á að lögheimili feli í sér „fasta búsetu“ og börn fari í „um-
gengni“. En hvað er föst búseta? Hún á að vera einhverskonar bækistöð okkar, þar sem
við dveljumst að jafnaði í tómstundum okkar, höfum heimilismuni okkar og svefnstað
þegar við erum ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða
annarra hliðstæðra atvika. Ég velti því þá fyrir mér hvort barn sem dvelur viku og viku
hjá hvoru foreldri um sig uppfylli skilyrði fastar búsetu? Ef svo er, á það þá ekki við um
bæði heimilin? Nú hvað með börn sem eru 10 daga á heimili móður og 20 daga á heimili
föður ef þau eiga sambærilega hluti á báðum stöðum og foreldrar deila ábyrgð og um-
önnun nokkuð jafnt?
Spurning hvort við þurfum ekki ný viðmið til að fá fram upplýsingar um fjölskyldugerð-
ir sem gefi betri mynd af veruleikanum og hugtök sem endurspegla sameiginlega ábyrgð
foreldra. Kannski má kalla umgengnissamninga „foreldrasamninga“ þar sem fram kemur
hvernig þeir ætla að sinna hlutverki sínu og tryggja rétt barna sinna. Ef til vill er orðið
„samvistir“ meira lýsandi og viðeigandi orð en „umgengni“ og kostnaðarskipting jákvæð-
ara en meðlag. Börn þurfa á því að halda að samfélagið styðji við báða foreldra þeirra, geri
þá sýnilega og líti á þá sem jafn mikilvæga í lífi þeirra með aðgerðum sínum og orðum –
er eftir einhverju að bíða?
Spurning hvort við þurfum ekki ný viðmið til að fá
fram upplýsingar um fjölskyldugerðir sem gefi betri
mynd af veruleikanum og hugtök sem endurspegla
sameiginlega ábyrgð foreldra.
Orð skipta máli
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
KRINGLUNNI 2. HÆÐ
HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS
prooptik.is
20%
afsláttur af
HÁDEGISTILBOÐ
Miðstærð af bát
12” pizza 2 álegg
Aðeins 999-kr.
Aðeins 999-kr.
salat m/kjúkling / roastbeefLítill bátur eða
Aðeins 699-kr.
& gos/Kristall að eigin vali
Nýbýlavegi 32 S:577 577 3 supersub.is
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Mayoral mini 3-9 ára
Skyrta: 4595.-
Mayoral mini 3-9 ára
SumarJakki: 7395.-
Mayoral mini
3-9 ára
Buxur: 5595.-
Mayoral mini 3-9 ára
Bolur: 2795.-
Iana Reykjavík
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
SUMARJÖKKUM OG KÁPUM
Vor/sumar
2014
Börn þurfa á
því að halda að
samfélagið styðji
við báða foreldra
þeirra, geri þá
sýnilega og líti á þá
sem jafn mikilvæga
í lífi þeirra með
aðgerðum sínum og
orðum.
1. Fræddu börnin þín um umhverf-
ismál. Því meira sem þau vita um
áhrif mengunar því betur skilja
þau afleiðingar gjörða sinna.
Lestu bækur og horfðu á heimild-
armyndir fyrir börn, t.d. Nature's
Ocean frá Disney.
2. Kenndu þeim að afþakka ókeypis
vörur sem eru gefnar í auglýs-
ingaskyni. Það er algjör óþarfi að
fylla heimilið af drasli sem enginn
notar og fer svo beint á haugana.
3. Hreinsaðu til í fataskápum og
leikfangakistum. Það flokkast
ekki undir dekur að fylla her-
bergi barnanna af drasli. Þau læra
aldrei að kunna að meta dótið sitt
ef þau sjá það ekki fyrir drasli.
Þar að auki er auðveldara fyrir
þau að læra að laga til sjálf ef það
er minna af dóti, og þá er meiri
tími til að leika.
4. Kenndu börnunum að njóta
augnabliksins og að upplifun
varir að eilífu. Að vera er mikil-
vægara en að eiga. Gefðu þeim
upplifun í stað veraldlegra gjafa.
5. Láttu þau hjálpa til við endur-
vinnsluna heima. Öll börn elska
að vinna!
6. Gefðu þeim nesti í skólann án um-
búða.
7. Þegar þú ferð í Sorpuferð, taktu
þau þá með. Fyrir utan að læra af
því þá finnst börnum líka gott að
finna að þau geti hjálpað til.
8. Láttu þau hjálpa til við garðvinn-
una. Leyfðu þeim að grafa í mold-
inni og upplifa hringrás lífsins
með því að sá og sjá blómin vaxa,
dafna og deyja.
9. Farið út! Kenndu börnunum
þínum að njóta útivistar. Farið í
hjólaferð, skíðaferð, nestisferð,
útilegur og fjallgöngur. Börn vita
ekkert skemmtilegra en að njóta
með foreldrum sínum.
10. Skemmtið ykkur. Umhverfis-
vernd snýst ekki um að hræða
börnin heldur að láta þau vita að
þau geti breytt heiminum. -hh.
10 leiðir til að kenna börnunum þínum að virða umhverfið