Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 42
42 grænn lífsstíll Helgin 2.-4. maí 2014
KYNNING
Grænir leigusamningar vinsælir
Græn leiga er samstarf Reita
fasteignafélags og við-
skiptavina um að starfrækja
húsnæði með vistvænum
hætti. Í Grænu leigunni felst
einföld leið til að auð velda
vist vænar breytingar og
kynna þær.
R eitir fasteignafélag býður upp á græna leigu á at-vinnuhúsnæði. Græn leiga
er samstarf Reita og viðskipta-
vinar um að reka húsnæði með
vistvænum hætti. Hún er viðbót
við hefðbundna leigusamninga og
getur ýmist verið markviss viðbót
við önnur græn skref eða gagnleg
ein og sér. Reitir buðu fyrst upp á
græna leigu í lok síðasta árs og að
sögn Kristjönu Óskar Jónsdóttur,
markaðs- og kynningarstjóra, hafa
þegar nokkrir tugir fyrirtækja gert
slíka leigusamninga. „Einnig eru
mörg fyrirtæki sem hafa kynnt sér
þennan möguleika. Við hjá Reitum
erum með um 410.000 fermetra af
atvinnuhúsnæði til leigu svo það
er til mikils að vinna að sem flestir
taki upp vistvænan rekstur,“ seg-
ir Kristjana. Reitir er fyrsta fast-
eignafélagið á Íslandi sem býður
upp á græna leigu en slíkt er vin-
sælt á hinum Norðurlöndunum, í
Kanada og Bandaríkjunum.
Í grænum leigusamningum eru
ákvæði um vistvæn skref tengd
sorpi og endurvinnslu, rekstri og
viðhaldi, samgöngum, rafmagni,
kerfum og heitu vatni. Reksturinn
verður ekki kostnaðarsamari við
græna leigu og segir Kristjana fyr-
irtæki stundum finna fyrir aukn-
um kostnaði í einum flokki en lægri
kostnaði í öðrum á móti.
Hýsing vöruhótel hefur gert
grænan leigusamning við Reiti
um rekstur á húsnæði sínu við
Skútuvog. Að sögn Guðmundar
Oddgeirssonar, framkvæmda-
stjóra Hýsingar, er byggt á langri
reynslu en þar á bæ hefur sorp ver-
ið flokkað í 20 ár. „Hjá okkur fellur
til gríðarlega mikið af bylgjupappír
og þegar mest er að gera eru það
um tvö tonn á viku því við tökum
upp vörur og hýsum fyrir fjölda fyr-
irtækja. Með því að flokka bylgju-
pappír fáum við greitt fyrir hann
en ef við settum hann í blandaðan
gám myndum við greiða fyrir losun
á hverju kílói svo það eru líka verð-
mæti í rusli,“ segir hann.
Hjá Hýsingu er sorp flokkað í sjö
flokka; gæðapappír, bylgjupappír,
plast, eldhúsúrgang, timbur, járn
og annað sorp. Þá notar Hýsing
aðeins rekstrar- og hreinsivör-
ur sem vottaðar eru með Svans-
merkinu eða Evrópublóminu. Með
daglegum skráningum og virku
eftirliti með orkumálum næst um-
talsverður sparnaður samhliða því
að koma í veg fyrir sóun og segir
Guðmundur daglega fylgst með
notkun á vatni og rafmagni. „Eftir-
litið er mikilvægt því ef til dæmis
krani bilar geta nokkur tonn af
vatni farið í gegn á klukkutíma því
kerfið er stórt.“ Þá eru loftræsti-
kerfi tímastillt og slökkt á þeim á
nóttunni og kveikt og slökkt á snjó-
bræðslukerfi á haustin og vorin til
að spara orku og vatn.
Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar, og Kristjana Ósk Jóns-
dóttir, markaðs- og kynningarstjóri.
Í slendingar eru mjög móttæki-legir fyrir aukinni sjálfbærni. Hér hefur til
dæmis verið mikil
vakning í endur-
nýtingu,“ segir Ást-
hildur Björg Jóns-
dóttir, lektor við
listkennsludeild
Listaháskóla Ís -
lands.
Á s t h i ldu r er
einn höfunda bók-
ar innar „Verum
græn. Ferðalag í
átt að sjálfbærni“
sem komin er út
hjá Eddu útgáfu.
Bókin fjallar fyrst
og fremst um sjálfbærni og hug-
myndafræði í kringum það hug-
tak. Bókin er hugsuð fyrir börn
á grunnskólaaldri og fjölskyldur
þeirra.
„Svona hlutir virka best í samtali
og krakkarnir eru oft miklu betur
að sér en fullorðna fólkið. Kannski
getum við lært mikið af þeim. Ef
fjölskyldan veltir í þessum hlutum
fyrir sér er líklegra að árangur ná-
ist,“ segir Ásthildur.
Bókin er aðgengileg öllum,
hvort sem það eru lesendur sem
þekkja ekki hugtakið sjálfbærni
eða lesendur sem þegar hafa til-
einkað sér grænan lífsstíl. Í bók-
inni er lögð áhersla á að útskýra
hugmyndina um sjálfbærni á ein-
faldan og skemmtilegan hátt og
setja hana í skiljanlegt samhengi
fyrir börn og fjölskyldur ásamt
einföldum leiðum til að tileinka
sér grænan lífsstíl. Bókin er full af
skemmtilegum
ráðleggingum
og staðreyndum
um sjálfbærni
og hún sýnir les-
endum að það er
mun einfaldara
og léttara að til-
einka sér sjálf-
bærar venjur en
við höldum.
Bókin er fyrsta
sinnar tegundar
á íslensku eftir
íslenska höfunda
og svarar þörf-
um markaðarins
eftir þessu efni. Ásthildur skrifar
bókina með þeim Ellen Gunnars-
dóttur og Gunndísi Ýr Finnboga-
dóttur. Umbrot, hönnun og mynd-
skreytingar eru eftir Magnús
Óskarsson, teiknara og hönnuð.
„Við leggjum áherslu á þessi litlu
skref sem hægt er að taka hér og
nú. Við viljum ekki að fólki fallist
hendur, þá er betra að taka lítil
skref í átt að sjálfbærni og finna ár-
angur erfiðisins,“ segir Ásthildur.
„Verum græn. Ferðalag í átt að
sjálfbærni“ er komin út og er fáan-
leg í öllum helstu bókaverslunum.
Forvitnileg bók um
sjálfbærni fyrir alla
fjölskylduna
Ásthildur Björg Jónsdóttir og Gunndís Ýr Finnbogadóttir eru tveir af þremur höfundum bókarinnar „Verum græn. Ferðalag
í átt að sjálfbærni“ sem kom út nýlega. Þriðji höfundurinn, Ellen Gunnarsdóttir, er búsett í Boston.
Á öllum heimilum er að finna
spilliefni og ber að gæta að því
hvernig þeim er fargað. Spilliefni
eru úrgangur sem getur valdið
umhverfi og heilsu manna miklu
tjóni og því mikilvægt að þeim sé
fargað á réttan hátt.
Spilliefnum ber að skila til
viðurkenndrar spilliefnamót-
töku, rafhlöðum í söfnunarílát
fyrir notaðar rafhlöður í skólum,
verslunum og bensínstöðvum, og
gömlum lyfjum í lyfjaverslanir.
Spilliefnum má ekki farga með
því að setja þau í almennt heim-
ilissorp, henda þeim í almenna
gáma fyrir sorp og iðnaðarúr-
gang, sturta þeim niður í salerni,
hella niður í vaskinn eða losa í
niðurfall hvort sem er innanhúss
eða úti við götu. Spilliefni geta
verið mjög
umhverfisspillandi eða hættu-
leg ef þeim er fleygt á þann hátt.
Spillefni eru til dæmis kvika-
silfur (finnst t.d. í hitamælum),
blettaeyðir, hreinsilögur, klósett-
hreinsir og stíflueyðir, lakk,
málning, tjöruhreinsir, vítissódi
og þynnir, framköllunarvökvi,
„tipp-ex“, naglalakk, skordýra-
eitur og önnur eiturefni, klór eða
klórmenguð efni, olía, lím, raf-
hlöður og rafgeymar og lyf.
Förgum spilliefnum rétt
KYNNING