Fréttatíminn - 02.05.2014, Síða 64
Í takt við tÍmann Jökull vilhJálmsson
Maturinn hjá mömmu
stendur upp úr
Jökull Vilhjálmsson er 24 ára Grafarvogsbúi og nemi í lyfjafræði við
HÍ sem stofnaði á dögunum herrafatamerkið Suitup. Hann skemmtir
sér á b5 og Austur og keyrir um á dýrari týpunni af Nissan Micra.
appafengur
Tastemade
Appinu Tastemade
hefur verið lýst
sem einskonar
blendingi af Vine,
Instagram og
YouTube. Taste-
made gerir þig að
sjónvarpsstjörnu í
þínum eigin mat-
reiðsluþætti.
Þegar fólk fyrst
sækir appið er það
beðið um að velja
nokkrar tegundir
af mat eða víni
það hefur mestan
áhuga á, til dæmis
indverskum eða
sjávarréttum.
Sjálfkrafa birtast
síðan litlir sjón-
varpsþættir, ein
mínúta hver, þar
sem áherslan er á
þínu áhugasviði.
Þar er fólk um
allan heim ýmist
að elda eða fara á
veitingastað og lýsir upp-
lifun sinni og aðförum, tekur mynd af sjálfu sér
þar sem það kynnir réttinn og/eða veitinga-
staðinn til sögunnar og tekur svo myndbönd
af herlegheitunum. Appið klippir sjálft saman
myndbrotin, þú bætir við upphafstexta eins og
á alvöru flottum sjónvarpsþætti og setur inn
bakgrunnstónlist. Þessu deilir þú síðan með
Tastemade-samfélaginu.
Appið getur nýtt sér staðsetningartækið í
símanum og fundið veitingastaði í nágrenni við
þig, hvar sem þú ert í heiminum, en þú getur
líka leitað eftir vinsælum myndböndum.
Tastemade gefur þér tækifæri til að kynnast
mat á nýjan hátt og verða þáttagerðarmaður í
leiðinni.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
„Ég byrjaði með litla netverslun
síðasta sumar með bindi og
slaufur og það gekk mjög vel.
Ég sá svo gat á markaðnum og
ákvað að nýta mér það. Suitup
hefur farið mjög vel af stað,“
segir Jökull.
Suitup virkar þannig að við-
skiptavinirnir hanna jakkaföt
sín frá grunni í samstarfi við
Jökul og þau eru svo sérsaumuð
í Sjanghæ. Jakkafötin kosta
um 70 þúsund krónur og eru
hágæðavara að sögn Jökuls: „Ég
er það snobbaður sjálfur að ég
myndi ekki selja eitthvað sem
ekki er nógu gott,“ segir hann
o Auk jakkafata er Jökull með
úrval af sérsniðnum skyrtum og
yfirhöfnum og bindi og slaufur
frá Ítalíu.
Staðalbúnaður
Í vinnunni geng ég í jakkafötum
og mismunandi skyrtu- og
bindasamsetningum með. Ég
geng í Allen Edmonds skóm við
og tek almennt gæði fram yfir
magn en er með nokkur pör í
gangi. Utan vinnunnar geng
ég oft í raw denim gallabuxum
og skyrtu eða peysu við. Eða
bæði. Ég er þokkalega einfaldur
þar. Ég kaupi eiginlega allt í
útlöndum. Það eru tvö eða þrjú
ár síðan ég byrjaði að spá í föt af
einhverju viti. Þá var ég í skipt-
inámi úti í Kaliforníu og fólk
lítur ágætlega vel út þar.“
Hugbúnaður
Ég reyni að fara svolítið út að
skemmta mér. Það fer alveg
eftir félagsskap og stemningu
hvert ég fer en oftar en ekki
enda ég á b5 eða Austur. Það
á til að gerast. Oftast panta ég
mér G&T á barnum. Ég reyni
að mæta í World Class þegar ég
hef tíma og svo spila ég bolta
með félögunum þegar veður
leyfir. Eftir að Breaking Bad
og Dexter kláruðust horfi ég
mest á Suits og House of Cards
og síðan missir maður ekki af
Liverpoolleik. Þetta er búið að
vera frábært tímabil en ætli City
taki þetta ekki á endanum.
Vélbúnaður
Ég er með eldgamla Dell-far-
Allen Edmonds Strand. Þetta
eru klárlega uppáhalds
skórnir mínir. Virka með
nánast öllu og munu endast
mér næstu tíu árin.
Samsung Galaxy S3.
Nauðsynleg græja. Tölvu-
pósturinn, dagbókin, vinnan
og allt annað á einum stað.
Dökkblár ullarblazer frá
Suitup. Jakki sem er hægt
að nota allan ársins hring og
virkar með öllu.
tíu árin.
tölvu og Samsung Galaxy SIII.
Ég nota símann aðallega við
vinnu og skipulagningu en líka
fyrir Facebook.
Aukabúnaður
Móðir mín sér alfarið um
matseld heima hjá mér, ég er
mjög takmarkaður á því sviði.
Ég hef frekar einfaldan smekk.
Fyrir utan mömmumatinn, sem
stendur upp úr, er ég hrifinn af
pítsum og það hjálpar að Eld-
smiðjan er beint fyrir neðan
skrifstofuna mína. Ég prófaði
sushi í fyrsta sinn fyrir svona
ári og fannst það allt í lagi,
svona miðað við hráan fisk. Ég
keyri um á Nissan Micra. Þetta
er dýrari týpan, 2007 eða 2008
árgerð. Ég reyni að ferðast eitt-
hvað á hverju ári og á næstunni
fer ég til Ítalíu. Þetta er vinnu-
ferð en ég ætla að reyna að slaka
aðeins á líka.
64 dægurmál Helgin 2.-4. maí 2014