Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 68
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
RagnheiðuR gestsdóttiR
Bakhliðin
Hrósið...
fær Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra
sem beitir sér fyrir bættri stöðu hinsegin fólks
í landinu. Ný nefnd á að skila áætlun um að-
gerðir fyrir hinsegin fólk.
Orkumikill
pælari
Aldur: 38 ára.
Maki: Enginn.
Börn: Hrafnkell Tími Thoroddsen.
Menntun: MA í myndlist frá Bard
College New York, MA í sjónrænni
mannfræði frá Goldsmiths London, BA í
mannfræði frá Háskóla Íslands.
Starf: Ég hef eiginleg prófað öll störf í
heimi; dælt bensíni, unnið á ljósastofu,
raðað í hillur í stórmarkaði, skúrað
gólf, passað börn, unnið við útgáfu
og menningarmál ýmisleg. Svo er það
kennslan á hinum ýmsu aldursstigum.
En fyrst og fremst unnið sjálfstætt að
heimildamyndagerð og myndlist.
Fyrri störf: Sjálfstætt starfandi
kvikmyndagerðarkona, auk þess að
hafa unnið mjög mikið með börnum.
Áhugamál: Myndlist og kvikmyndir,
menning, náttúran og að vera með öllu
góða fólkinu sem ég þekki og elska.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá: Þú átt ekki eftir að sjá eftir
því að vinna bak við tjöldin í dag. Menn
vilja bara heyra hvað gerðist en ekki
hvað þér finnst.
Það fyrsta sem kemur upp í hugann er hvað hún Ragn-heiður er ótrúlega fyndin og
skemmtileg,“ segir Sigga Nanna
æskuvinkona Ragnheiðar. „Hún
er ekki bara endalaust skapandi
og listræn heldur líka svo lifandi
og orkumikil. Það er bara alltaf
gott að vera nálægt henni. Hún
er hreinskilin og fordómalaus,
góður hlustandi og mikill pælari
sem hefur endalausan áhuga á
öllu fólki. Það er eins og maður
hafi aldrei nægan tíma þegar
maður hittir hana því það er hægt
að tala um allt milli himins og
jarðar við hana.“
Ragnheiður Gestsdóttir er myndlistar- og
kvikmyndagerðarkona búsett í Reykja-
vík. Hún vinnur jöfnum höndum með
filmu, vídeó og innsetningar. Hún opnar
sýningu á nýjum verkum í Kunstschlager
við Rauðarárstíg laugardaginn 3. maí
klukkan 20.
Fallegar fermingargjafir
Verð 59.900,-
Verslun innst í Dalbrekku ofan við Nýbýlaveg
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is