Fréttatíminn - 09.05.2014, Síða 18
Hún hefur
líklega
hugsað með
sér að það
mætti eitt-
hvað nýta
meira þessa
stelpu sem
alltaf var að
kvarta og
koma með
hugmyndir
að umbót-
um.
É g fór fljótt að flytja fréttir af borgarmálunum eftir að ég byrjaði á fréttastofu Sjónvarps fyrir fjórtán árum. Það var
bara á fyrstu vikunum sem vaktstjóri
sagði mér, bara í góðlátlegu gríni til að
ég áttaði mig betur á aðstæðunum, að
það hefði borist símtöl vegna fréttanna
minna þar sem ýmist væri verið að
kvarta undan nýja Heimdellingnum
eða nýju vinstri konunni,“ segir Rakel
Þorbergsdóttir, nýr fréttastjóri RÚV.
„Ég fór fyrst í flækju og tók þetta aðeins
inn á mig en reyndari fréttamenn bentu
mér á að það væri bara gott að pólitík-
usar bæði til vinstri og hægri væru að
kvarta og það þýddi líklega að ég væri
að gera eitthvað rétt.“
Við mælum okkur mót á kaffihúsi
í nágrenni við Útvarpshúsið í Efsta-
leiti og Kaffitár í Kringlunni verður
fyrir valinu, snemma um morguninn
þegar við reiknum varla við því að þar
sé sála. Engu að síður rekumst við á
hóp fréttaljósmyndara á Kaffitári sem
greinilega fengu sömu hugmynd. Þeir
standa upp og óska Rakel til hamingju
með stöðuhækkunina enda aðeins um
þrjár vikur síðan hún var ráðin.
Afi kveikti áhugann
Rakel er fædd á Akureyri, er uppal-
in bæði þar og í Reykjavík en býr nú
í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum,
Ragnari Santos sem er framleiðandi
á RÚV, og tveimur börnum þeirra.
Hún útskrifaðist með BA gráðu í stjór-
nmálafræði frá Háskóla Íslands auk
diplómagráðu í hagnýtri fjölmiðlum
og meistaragráðu í ljósvakafjölmiðlun
frá Emerson College í Boston. „Um tví-
tugt var ég búin að ákveða að ég vildi
starfa við fjölmiðla og ég fór í stjór-
nmálafræði því mér fannst það svo
góður grunnur. Hagnýta fjölmiðlunin
kom svo í beinu framhaldi af því. Fjöl-
miðlar fannst mér virka sem fjölbreytt-
ur og spennandi vettvangur. Ég er
forvitin að eðlisfari, afskaplega félags-
lynd og hef gaman af fólki. Föðurafi
minn hafði mikinn áhuga á pólitík og
við vorum nokkur barnabörnin sem
héngum á hverju orði hans. Ég held
því að áhugi á pólitík og samfélagsmál-
um hafi kviknað þar. Mig langaði þó
aldrei að taka sjálf þátt í pólitík heldur
finnst gaman að spá í hana og fylgjast
með af hliðarlínunni.“
Hún fékk sitt fyrsta starf í fjöl-
miðlum sem sumarstarfsmaður á
Morgunblaðinu árið 1997 en var boðið
að starfa áfram og var hún þar í hálft
annað ár, bæði í innlendum fréttum og
fólki í fréttum. „Um haustið var Pétur
Blöndal fenginn til að taka yfir Fólk í
fréttum og við gerðum ýmsar breyt-
ingar. Áður höfðu bara verið þýddar
erlendar slúðurfréttir en við fórum
að taka viðtöl við tónlistarmenn og
leikara. Það var gaman að vinna með
Pétri í því.“
Eins spennandi og það var að vinna
á dagblaði heilluðu ljósvakamiðlarnir
Rakel og því hélt hún til Boston til
að sérhæfa sig á því sviði. „Þetta var
virkilega vel útbúinn skóli. Við héldum
úti útvarpsstöð sem var með hlustun í
þremur ríkjum Bandaríkjanna og um
300 manns hlustuðu á daglega. Við
nemendurnir sáum um að vinna fréttir,
vorum með sjónvarpsstúdío og vorum
með útsendingar á háskólasvæðinu.
Þetta var mjög hagnýt reynsla og allt
aðrar aðstæður en hafa verið til staðar
í námi hér heima.“
„Hver er Þorbergur?“
Kári Jónasson, þáverandi fréttastjóri,
Tilbúin í ólgusjóinn
Rakel Þorbergsdóttir ákvað strax um tvítugt að hún vildi starfa við fjölmiðla og hóf því nám í stjórnmála-
fræði sem hún taldi góðan grunn. Hún segist vissulega hafa fundið fyrir því að hagsmunaaðilar reyni
að hafa áhrif á fréttaflutning en lítur á það sem hlutverk sitt að láta ekki undan slíkum þrýstingi. Rakel
segir fréttamenn RÚV framleiða of mikið miðað við hversu fáir þeir eru og hefur ákveðnar hugmyndir um
hvernig breyta megi áherslum og vinnulagi.
réði Rakel sem sumstarfsmann
á fréttastofu Útvarps árið 1999,
hún fór aftur út um veturinn til að
klára námið og í ársbyrjun 2000,
þegar hún var alkomin heim,
réði Bogi Ágústsson hana inn
á fréttastofu Sjónvarps þar sem
hún hefur verið síðan. „Stundum
myndast öðruvísi andrúmsloft
á RÚV en öðrum miðlum því
maður er að vinna á miðli sem
er í eigu almennings og almenn-
ingur er duglegur að hringja inn
og láta okkur vita ef honum finnst
við vera á villigötum en það er
líka fólk sem hringir til að hrósa
okkur,“ segir Rakel.
Þó mikið hafi gustað um frétta-
stofu RÚV síðustu misseri er
það alls ekkert nýmæli og þegar
Rakel hóf þar störf var fréttastof-
an af sumum kölluð Bláskjár, með
vísan í að þeim fannst hún vera
hliðholl Sjálfstæðisflokknum. Um
svipað leyti og Rakel var ráðin
hafði ennfremur verið fjallað
um nýráðningar ungmenna
sem tengdust Heimdalli og voru
ýmsir með efasemdir um slíkt.
„Ég var aðeins búin að vinna
þarna í nokkra daga þegar einn af
reynsluboltunum gekk þétt upp
að mér og spurði: „Hver er Þor-
bergur?“ Þetta kom mér algjör-
lega í opna skjöldu og ég áttaði
mig fyrst ekkert á því hvað hann
væri að tala um en skildi síðan að
hann var að meina pabba minn.
Ég svaraði því eitthvað á þá leið
að hann væri bara almúgamaður
frá Akureyri, en þarna áttaði ég
mig á stemningunni.
18 viðtal Helgin 9.-11. maí 2014