Fréttatíminn - 09.05.2014, Side 29
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
það alveg því það er keppt í því
hvernig þú lítur út og það er það
sem fólk sér á sjálfan keppnis-
daginn. En það sem fólk áttar
sig oft ekki á er hversu mikil
vinna liggur á bak við útlitið og
það er auðvitað verið að keppa í
því líka,“ segir Jóna.
Ólíkt vaxtarrækt þar sem
konur eru berfættar á sviðinu
og án annara fylgihluta en bik-
inís eiga konur að punta sig upp
fyrir fitness. Þær eiga helst að
vera með skartgripi, vel farð-
aðar, með greitt hár og á háum
hælum. Í módelfitnessi er enn
meiri áhersla lögð á þennan
þátt.
„Allt puntið finnst mér eigin-
lega vera erfiðasti hlutinn við
þetta. Sumum stelpum finnst
það alveg æðislegt og upplifa
daginn sem einhvern prins-
essuleik, en mér finnst þetta
bara vera vesen enda hef ég
alltaf verið algjör strákastelpa.
Það sem mér finnst svo yndis-
legt við vaxtarræktina er að þú
þarft ekkert að spá í þetta þar.“
Brúnkusprey og sílikon
Eitt af því sem vekur forvitni
leikmanna þegar kemur að fit-
nesskeppnum er hversu brúnir
þátttakendurnir eru, en Jóna
bendir á að brúnkan hafi sinn
tilgang og sé ekki til þess gerð
að gera fólk fegurra. „Þetta er
sérstök keppnisbrúnka sem er
sett á daginn fyrir keppnina með
það fyrir augum að láta vöðvana
njóta sín betur. Vöðvaskilin njóta
sín bara ekki jafn vel á náfölum
líkömum.
Sílikonbrjóst eru líka mjög
algeng í fitnessinu en þau eru þó
ekki skylda eins og háu hælarn-
ir, förðunin og skartið. „Sílikon-
ið hefur aukist í fitnessinu en
það hugsa ég að sé vegna sam-
félagslegrar pressu. Við konur
erum auðvitað jafn misjafnar
og við erum margar, sumar
halda sínum stóru brjóstum
þrátt fyrir allar æfing-
arnar á meðan aðrar
missa þau alveg. Á
grönnum konum
þá eru það oft-
ast brjóstin
sem eru
fyrst
til að
hverfa
þegar
þær
byrja
að æfa
svona
mikið.
Brjósta-
stærð á ekki
að hafa áhrif á
stigagjöf en auð-
vitað gera brjóst
þig kvenlegri og ef
þú horfir á heildarútlit
manneskju sem er ekki
með nein brjóst þá getur
það minnkað stigagjöfina.
Þess vegna setja konur púða
í brjóstahaldarann ef þær eru
ekki með sílíkon.“ Jóna er sjálf
með sílikon í brjóstunum en lét
setja það í áður en hún fór að
keppa í fitness.
„Ég hef alltaf verið mjög
grönn og missti brjóstin við það
að eiga börnin mín, þau voru
bara orðin að tepokum. Það var
reyndar mjög erfið ákvörðun
fyrir mig og ég held að ég hafi
farið þrisvar í viðtal til lýtalækn-
isins áður en ég tók ákvörðun
um að þora. Á endanum setti ég
B- stærð í og fékk þá aftur brjóst
eins og ég var með þegar ég
var táningur. Ég vildi ekki hafa
þau of stór þar sem ég er mikið
í íþróttum og hef gaman af því
að hlaupa og vil ekkert hafa þau
of mikið fyrir mér,“ segir Jóna
og hlær.
Guð dæmir ekki
Jóna segir óneitanlega
margar siðferðislegar
spurningar vakna þegar
þessir tveir heimar skarist,
trúin og vaxtarræktin. Á
konan að vera eins og guð
skapaði hana? Eða eru inn-
grip í náttúruna guði þókn-
anleg? „Það eru allskyns
inngrip í náttúruna í dag og
það er bara gangur lífsins.
Fólk má gera það sem því
sýnist svo lengi sem það er
sátt við sjálft sig og skaðar
ekki aðra. Hvort sem það
er að taka lyf, fara í lýtað-
gerð eða í fóstureyðingu.
Ef konur vilja fá sér síli-
kon til að verða sáttari við
sjálfar sig þá get ég ekki
ímyndað mér að guð dæmi
þær fyrir það. Það verða
allir að fá að lifa í sátt við
sjálfa sig. Læknavísindin
hafa þróast með okkur og
við grípum stöðugt í gang
náttúrunnar, jafnvel þegar
við notum einfalt lyf eins
og pensilín. Hver og einn
verður bara að fylgja sinni
sannfæringu og við erum
ekki í neinni aðstöðu til
að dæma fólk án þess að
þekkja forsögu þess. Það
hefur enginn rétt til þess,
ekki einu sinni guð.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Hér fagnar fjölskyldan stúdentsprófi Irmu Óskar, sem hefur fetað í fótspor móður sinnar í
fitnessinu en hún lenti í öðru sæti í unglingaflokki á Íslandsmeistarmótinu.
viðtal 29 Helgin 9.-11. maí 2014