Fréttatíminn - 09.05.2014, Side 30
Stig til ÍSlandS
eftir þjóðum
frá árinu 2000
Noregur 74
Finnland 56
Danmörk 54
Svíþjóð 50
Ungverjaland 41
Eistland 37
Malta 36
Lettland 26
Bretland 20
Sviss 20
Írland 19
Ísrael 19
Portúgal 19
Slóvenía 17
Þýskaland 14
Holland 13
Litháen 13
Belgía 11
Kýpur 11
Rúmenía 10
Spánn 10
Tyrkland 10
Andorra 8
Króatía 8
Grikkland 7
Hvíta Rússland 7
Albanía 6
Slóvakía 6
Armenía 5
Búlgaría 5
Ítalía 5
Mónakó 5
Rússland 5
Svartfjallaland 5
Úkraína 4
Moldóva 3
Tékkland 3
Makedónía 2
Bosnía & Herzegóvína 1
Frakkland 1
Georgía 1
Aserbaídsjan 0
Austurríki 0
San Marínó 0
Serbía 0
Ísland er uppáhald
Ungverja í Eurovision
Á hverju ári þegar þjóðin sest fyrir framan sjónvarps-skjáina og horfir af mikilli
þjóðrækni á landa sína taka þátt í
Eurovision koma upp umræður um
hvort stigagjöfin sé nú sanngjörn.
Við erum alltaf með besta lagið en
vinnum aldrei! Kjósa austantjalds-
þjóðirnar ekki bara aðrar austan-
tjaldsþjóðir og Norðurlandabúar
frændur sína? Af hverju fáum við
aldrei stig frá Austurríkismönnum
og hvað hafa Frakkar á móti okkur?
Danski Eurovisionáhugamaður-
inn og tölfræðispekúlantinn, lög-
fræðingurinn Lars Bo, spurði sjálf-
an sig sömu spurninga (kannski
ekki þessara um Ísland... en
allavega) og ákvað að leggjast yfir
stigagjöfina í Eurovision frá árinu
2000 og leyfði Fréttatímanum að
njóta góðs af grúski sínu. Lars Bo
komst að því að flest lönd í
keppninni gefa nágranna-
þjóðum sínum hlut-
fallslega flest stig að
jafnaði. Hins vegar sé
grundvallarmunur á
því hvernig stigagjöf
sé háttað í Vestur-
Evrópu og Austur-
Evrópu. Þjóðir í
Vestur-Evrópu
virðast ósjaldan
eiga uppáhalds-
lag sem kemur
frá landi í
Austur-
Evrópu
á meðan
Austur-
Evrópu-
lönd haldi
frekar
með
lönd-
um úr
Austur-
Evrópu.
Tölfræðin
sýnir svart á hvítu að
nágrannaþjóðirnar
kjósa næstum alltaf
hvor aðra – og gefa
hvor annarri yfirleitt mörg stig.
Dæmi um þetta er Bosnía & Her-
zegóvína. Ef settur er upp topp-10
listi yfir þær þjóðir sem B&H hefur
gefið flest stig má sjá fjölmargar ná-
grannaþjóðir. Hið sama gildir hins
vegar einnig um Vestur-Evrópu-
lönd. Á topp-10 lista Noregs, til að
mynda, má sjá Danmörku, Svíþjóð,
Ísland, Bosníu & Herzegóvínu,
Tyrkland, Serbíu, Þýskaland, Finn-
land, Rúmeníu og Lettland.
Þegar skoðað er hvaða þjóðir
hafa gefið Íslendingum hvað flest
stig má sjá að við skorum nokkuð
hátt á topp-10 lista nágranna okkar.
Við erum hins vegar í efsta sæti hjá
aðeins einni þjóð, sem er ekki einu
sinni nágranni okkar, Ungverjum,
sem halda greinilega mest af öllum
þjóðum með Íslendingum. Frá alda-
mótum höfum við fengið alls 41
stig frá Ungverjum (næsta
á eftir hefur fengið 29)
og erum því uppá-
haldssönglagaland-
ið þeirra Ungverja.
Við verðum bara
að vona að þeir
bregðist okkur
ekki á laugar-
daginn.
Norðurlanda-
þjóðirnar hafa
samt sem
áður
gefið
okk-
ur
fleiri stig en Ungverjar. Þeir hafa
einfaldlega gefið öðrum þjóðum en
okkur enn fleiri stig. Flest stigin
höfum við fengið frá frændum
vorum, Norðmönnum, alls 74. Ef
rýnt er í topp-10 lista þjóðanna með
tilliti til þess hvað þær gefa okkur
Íslendingum mörg stig má sjá að
Norðurlandaþjóðirnar eru okkur
sannarlega hliðhollar. Við erum
í einu af fimm efstu sætunum hjá
þeim öllum en auk þess erum við
í uppáhaldi hjá Eystrasaltsþjóð-
unum, Eistlandi og Lettlandi, auk
þess sem smáríkið Malta virðist
halda nokkuð með okkur.
Þegar skoðað er hvaða þjóðum
Íslendingar gefa stig kemur svo
sem ekkert á óvart. Danir, Norð-
menn, Svíar og Finnar raða sér í
efstu fjögur sætin á topp-10 listan-
um okkar. Þá koma Eistar, Frakkar,
Rússar, Úkraínumenn, Grikkir og
Ungverjar.
Ef við skoðum hins vegar stiga-
hallann, ef svo má að orði komast,
þá má sjá að Danir eru stórskuld-
ugir okkur Íslendingum. Við
höfum gefið þeim 112 stig ein þeir
okkur aðeins 54. Skuldin nemur
alls 58 stigum. Við erum nokkurn
veginn í jafnvægi við Norðmenn
(skuldum þeim eitt stig) en Svíar
skulda okkur 15 stig. Við skuld-
um frændum okkar Finnum hins
vegar heil 19 stig og þurfum við
því fleiri en eina Eurovisionkeppni
til að jafna það út.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Íslendingar hafa fengið flest stig frá Norðmönnum í Eurovisionkeppninni frá aldamótum en Ungverjar elska okkur meira en
aðrar þjóðir. Danir skulda okkur hvorki meira né minna en 58 stig en við skuldum hins vegar Finnum 19 ef rýnt er í stigagjöfina í
Eurovision á árunum 2000-2013. Aðeins fjórar þjóðir hafa aldrei á tímabilinu gefið okkur stig, þar á meðal Austurríkismenn.
ÍSland á topp-10 liSta
Ungverjaland 1
Svíþjóð 4
Eistland 7
Noregur 3
Lettland 10
Finnland 5
Malta 9
Danmörk 3
topp-10 liSti ÍSlandS
1 Danmörk
2 Noregur
3 Svíþjóð
4 Finnland
5 Eistland
6 Frakkland
7 Rússland
8 Úkraína
9 Grikkland
10 Ungverjaland
Norðmenn eru líklegir til að fá fullt af stigum frá Íslendingum í ár sem önnur ár.
Austurríkismenn hafa ekki gefið Íslandi eitt einasta stig í
Eurovision frá aldamótum. Við höfum hins vegar gefið þeim
19 stig – spurning hvernig staðan verður eftir keppnina í ár.
30 úttekt Helgin 9.-11. maí 2014