Fréttatíminn - 09.05.2014, Side 44
Góð leið til að fá vænan afslátt
Gist á splunkunýju hóteli
Það er víðar en hér á landi sem hóteleigendur eru stórhuga
og reisa nýja gististaði. Hér eru nokkrir nýir af nálinni í borg-
unum sem íslenskir túristar venja komur sínar til.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Þ að er ekki óalgengt að hægt sé að fá vænan afslátt á nýjum hótelum. Alla vega
rétt á meðan starfsfólkið er að ná
áttum í húsinu, iðnaðarmenn ljúka
störfum og bókunardeildin lærir á
markaðinn. Samkvæmt lauslegri
athugun er hægt að gera ágætis
kaup á gistingu á þessum fjórum
hótelum sem eiga það eitt sameig-
inlegt að þar hafa fáir eytt nóttinni.
Á ferðavefnum Túristi.is má gera
verðsamanburð á gistingu þessum
hótelum og fleirum.
Rétt við aðallestarstöðina í Kaup-
mannahöfn stendur grátt háhýsi,
Wake up. Hótelinu var ætlað
að svara kalli ferðamanna eftir
ódýrri gistingu í höfuðborginni
og það virðist hafa gengið eftir
því í síðustu viku opnaði nýtt
útibú Wake up við Borgergade,
stuttan spöl frá Kóngsins
nýjatorgi. Sem fyrr er fókusinn er
á ódýra gistingu í hjarta borgar-
innar. Billegustu herbergin eru á
tæpar átta þúsund íslenskar.
www.wakepupcopenhagen.dk
Wake up við Borgergade í Kaupmannahöfn.
Lengi vel var starfræktur
stúlknaskóli í virðulegri bygg-
ingu rétt við Hötorget í miðborg
Stokkhólms. Kynjaskipting í
sænskum skólum heyrir hins
vegar sögunni til og húsnæðinu
hefur verið breytt í lúxus hótel
sem ber heitið Miss Clara. Her-
bergin eru flest með stórum
gluggum og er mælst til þess að
gestirnir gefi sér tíma til að setj-
ast á púðana í gluggakistunni og
horfa út breiðgötuna Sveavägen
og kirkju Adolfs Friðriks. Í dag er
Miss Clara ódýrasta fimm stjörnu
hótelið í Stokkhólmi og kostar
nóttin um þrjátíu þúsund krónur.
www.missclarahotel.com
Miss Clara við Hötorget í miðborg Stokkhólms.
Fyrir fimmtán árum síðan var
ekki algengt að hótel væru til
húsa í hráum byggingum og
innréttuðum með notuðum
mubblum. Í dag þykir þetta hins
vegar móðins, þökk sé stofnanda
Ace hótelsins í Seattle. Í haust
opnaði fyrsti evrópski gisti-
staður Ace í Shoreditch hverfinu
í London og þar halda menn
tryggð við formúluna sem hefur
fengið svo góðan hljómgrunn
meðal ferðamanna síðustu ár.
Þrátt fyrir rokkaraútlitið þá
kostar sitt að búa á Ace hótelinu
og nóttin er á um tuttugu og
fimm þúsund krónur.
www.acehotel.com/london
Nýjasti gististaður spænsku
hótelkeðjunnar Room Mate
heiti Aitana og er til húsa á
manngerðri eyju stuttan spöl frá
aðallestarstöðina í Amsterdam.
Herbergisgluggarnir ná frá hólfi
niður í gólf í þessu glerháhýsi og
útsýnið því gott, sérstaklega frá
efstu hæðunum. Ódýrustu her-
bergin eru á um sextán þúsund
krónur.
www.aitana.room
matehotels.com
Wake Up – ódýrt í miðborgKaupmannahafnar
Miss Clara – fimm stjörnur í Stokkhólmi
Ace – Vagg og velta í London
Room Mate Amsterdam – Herbergisfélagi í Amsterdam
Herbergisgluggarnir ná frá hólfi niður í gólf í Room Mate Amsterdam.
Ace í Shoreditch hverfinu í London.
44 ferðalög Helgin 9.-11. maí 2014
í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6,
Garðabæ, s ími : 564 5040
HJÓLATÖS KU R
DOWNTOWN
FARTÖLVU-
TASKA
ULTIMATE 6
STÝRISTASKA
MESSENGER
BAKPOKI
SÖLUAÐILAR
Ellingsen, Fiskislóð 1
Kría Hjól, Grandagarði 7
Markið, Ármúla 40
Útilif, Glæsibæ og Smáralind
heimkaup.is
Skíðaþjónustan á Akureyri
BACK-
ROLLER
CLASSIC
12”pizza 2/álegg 1050 kr.
Nýbýlavegi 32 S:577-5773
Salat með kjúklingi eða
roastbeef 990 kr.
Bátur mánaðarins 750 kr.
2x16” pizza 2/álegg 2980 kr.
rennibraut og boltaland
fyrir börnin
Staður ölskyldunnar !
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu
ofbeldi á þeim tíma sem það á sér
stað eða fljótlega á eftir.