Fréttatíminn - 09.05.2014, Page 60
60 heilsa Helgin 9.-11. maí 2014
Heilsa Þarmaflóran Hefur meiri áHrif en flesta grunar
nám í náttúrulækningum
Hefur þú áhuga á heilsu?
www.heilsumeistaraskolinn.com
Umsóknarfrestur til 20. júní
Þ E K K I N G
H E I L S A
G L E Ð I
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
30% brotaþola segja aldrei frá
því að þeir hafi orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi.
l íf okkar og heilsa er sam-ofin þeirri bakteríuflóru sem er í görninni. Maður-
inn og þær örverur sem lifa í melt-
ingarveginum eru eitt vistkerfi
og eru því algjörlega háð hvort
öðru,“ segir Michael Clausen,
barnalæknir og sérfræðingur í
ofnæmissjúkdómum barna. Hann
er aðalfyrirlesari á ráðstefnunni
„Flott flóra – leiðin til að tóra?“
sem haldin verður í Salnum,
miðvikudaginn 14. maí, þar sem
athyglinni verður beint að bakt-
eríum í meltingarvegi. Á síðustu
árum hefur þarmaflórunni verið
gefinn meiri gaumur enda talið
að hún hafi áhrif á fjöldann allan
af sjúkdómum, hegðun okkar og
líðan.
Yfirskrift fyrirlestur Michaels
er „Bakteríur í görninni stjórna
heilsu og líðan okkar.“ Hann segir
að í görninni séu 10 sinnum fleiri
bakteríur en frumur líkamans
og genamengi þeirra 150 sinnum
stærra en okkar. „Ef röskun
verður á bakteríuflórunni getur
það valdið breytingum á heilsu og
líðan mannsins. Sýnt hefur verið
fram á að röskun á þarmaflórunni
tengist meðal annars offitu, sykur-
sýki, hjarta-og æðasjúkdómum,
lyndisröskunum og sennilega
hefur bakteríuflóran einnig áhrif
á makavalið. Nýjustu rannsóknir á
þessu sviði koma til með að breyta
allri hugsun okkar um heilsu og
sjúkdóma í framtíðinni. Það eru
sannarlega nýir og breyttir tímar
fram undan.“ Það er Heill heimur
sem stendur fyrir ráðstefnunni
sem stendur frá klukkan 13 - 17 en
nánari upplýsingar er að finna á
Heillheimur.is - eh
KYNNING
Hay Max gegn
frjókornaofnæmi
Með því að hindra að of mikið
magn frjókorna komist inn í
líkamann er hægt að koma í
veg fyrir einkenni frjókornaof-
næmis, eins og hnerra, kláða
í augum, hálsi og eyrum.
Hay Max er lífrænn salvi
sem fyrirbyggir frjókornaof-
næmi svo með notkun
hans eru hnerrarnir færri
og ofnæmisviðbrögðin
minni.
Hay Max
salvinn er
lyfjalaus
svo ekki
fylgja
honum
auka-
verk-
anir
eins og
syfja
sem
fylgt
getur öðrum
ofnæmis-
lyfjum. Hann
er framleiddur
úr vottuðum líf-
rænum efnum
eins og býflugnavaxi, ilmkjarnaol-
íum, Aloe Vera og sólblómaolíu.
Salvinn er borinn sparlega
á svæðið umhverfis hvora nös
nokkrum sinnum á dag á meðan
frjókornatímabilið stendur yfir.
Einnig má setja salvann aðeins inn
í nasir og í kringum augu.
Hay Max
salvinn
er vott-
aður
fyrir
græn-
met-
isætur
og
hentar
bæði
barns-
hafandi
konum
og þeim
sem eru
með
barn á brjósti. Hay Max er
fáanlegt í öllum apótekum,
heilsuverslunum og heilsuhillum
stórmarkaða.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.icecare.is
Hay Max er lífrænn salvi sem kemur í veg fyrir frjókornaofnæmi.
Ég er mikið innan um hesta og stunda mikið útivist. Ég var alltaf með nef-
rennsli og hnerraði alveg endalaust. Ég vaknaði alltaf á hverjum morgni
hnerrandi með nefrennsli og ekkert virkaði á mig. Mamma mín heyrði
af Hay Max salvanum og gaf mér. Ég smurði honum á húðina fyrir neðan
nefið og á nokkrum dögum fann ég strax árangur og núna nota ég alltaf
Hey Max áður en ég fer að sofa. Erna Guðrún Björnsdóttir
Birna Gísladóttir er
markaðs- og sölu-
stjóri IceCare.
Bakteríurnar í görninni
stjórna lífi okkar
Michael Clausen segir að röskun á bakteríuflórunni í görninni geti valdið breytingum á heilsu og líðan mannsins. Ljósmynd/Hari
Allt annað líf
Tómatar eru
vítamínríkir, einkum
er mikið af A- og C-
vítamíni í þeim, en
auk þess eru þeir
ríkir af steinefnum
og ávaxtasýru.
Tómatar eru
ákaflega viðkvæmir
fyrir kæliskemmd-
um og þá má ekki
geyma í kæli. Besti
geymsluhiti tómata
er 10-12°C. Tóm-
atar sem verða fyrir
kæliskemmdum
verða fljótt linir og
bragðlitlir, því er
ekki gott að geyma
þá í ísskápnum.
Ekki er gott að
láta tómata liggja
nálægt blaðmeti
(salati), gúrkum og
öðrum afurðum.
Mjög gott er að
geyma tómata á eld-
húsborðinu því þá
getur heimilisfólkið
nartað í einn og einn
tómat. Börn borða
grænmeti líka miklu
frekar ef það er haft
fyrir framan þau.
C-vítamín
þruma
2 paprikur (rauðar, gular
eða appelsínugular).
1 handfylli kirsuberja-
tómatar.
½ gúrka.
Safi úr ½ sítrónu.
0,3 lítrar kalt vatn.
Allt sett í blandara og
blandað vel.
Heimild: Íslenskt.is
Ekki geyma tómata í ísskápnum