Fréttatíminn - 09.05.2014, Qupperneq 74
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
Það lítur fyrir að þeir komi hingað
aftur,“ segir Snorri Þórisson hjá
framleiðslufyrirtækinu Pegasus.
Framleiðendur bandarísku sjón-
varpsþáttanna Game of Thrones
hafa enn og aftur sett stefnuna á
Ísland. Fram undan eru tökur á
fimmtu þáttaröðinni.
„Það eru engar dagsetningar
komnar á tökurnar en það er verið
að stefna að þessu í haust,“ segir
Snorri. Þetta verður í fjórða sinn
sem tökulið Game of Thrones
kemur hingað til lands. Í frétt á
RÚV fyrir skemmstu kom fram að
framleiðendur þáttanna hafi varið
825 milljónum króna hér á landi.
Um þessar mundir er verið
að sýna fjórðu þáttaröð Game
of Thrones í sjónvarpi. Þætt-
irnir hafa notið mikilla vinsælda
frá upphafi sýninga. Um og yfir
fimm milljónir horfa á hvern þátt í
Bandaríkjunum og allt upp í tæpar
sjö milljónir þegar mest lætur.
Ekki er langt síðan meðlimir ís-
lensku hljómsveitarinnar Sigur
Rósar komu fram í gestahlutverki
í þáttunum.
-hdm
Sjónvarp pegaSuS undirbýr fjórðu heimSókn krúnuleikanna
Tökulið Game of Thrones
til Íslands í haust
Ísland er fastur viðkomustaður við framleiðslu á hinum vinsælu sjónvarpsþáttum
Game of Thrones. Tökur á fimmtu þáttaröðinni fara hér fram í haust.
Þ etta er skemmtilegt handrit og ég fæ skemmtilega persónu svo þetta verður mjög gaman,“ segir Ágústa Eva Erlendsdóttir leikkona.
Ágústa Eva mun leika Línu langsokk í nýrri uppfærslu Borg-
arleikhússins í haust. Rúmur áratugur er síðan Borgarleik-
hússins setti síðast upp þessa sígildu sögu Astrid
Lindgren. Þá fór Ilmur Kristjánsdóttir með hlut-
verk Línu. Tuttugu árum fyrr lék Sigrún Edda
Björnsdóttir Línu eftirminnilega í Þjóðleik-
húsinu.
„Ég sá aldrei Línu þegar ég var yngri
enda fór ég ekki mikið í leikhús,“ segir
Ágústa Eva. „En Sigrún Edda var samt mitt
„idol“. Ég sá hana í Rympu á ruslahaugun-
um og þá var hún geðveik.“
Ágústa Eva segist hafa lesið söguna um
Línu langsokk til undirbúnings og getur ekki
neitað því að hún samsvari sér aðeins með
aðalpersónunni. „Við erum báðar rauðhærðar
og flippaðar. Svo þegar ég les handritið finnst
mér ótrúlega fyndið að margt sem hún gerir
geri ég sjálf. Ég sé sjálfa mig rosa mikið í henni.
Við erum báðar svolítið fyrir að koma öllu í
uppnám og fylgjum ekki alltaf félagslegum
venjum.“
Æfingar eru hafnar á Línu
langsokki en stefnt er að
frumsýningu 13. septem-
ber í haust. Örn Árnason
leikur skipstjórann, pabba
Línu, og þau Kristín
Þóra Haraldsdóttir og
Sigurður Þór Óskars-
son leika Önnu og
Tomma. Leikstjóri er
Ágústa Skúladóttir
sem er sérstakt
ánægjuefni fyrir
Ágústu Evu.
„Ég byrjaði að
leika hjá henni í
Leikfélagi Kópavogs
fyrir einhverjum
tíu eða tólf árum.
Þá settum við upp
Grimmsævintýrin.
Vinnubrögðin verða
því kunnugleg og
mjög kærkomin. Það
er skemmtilegt að
koma aftur til hennar.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
leikhúS ÁgúSta eva leikur línu langSokk í borgarleikhúSinu
Sé sjálfa mig rosa
mikið í Línu langsokki
Borgarleikhúsið setur Línu langsokk upp í haust. Ágústa Eva Erlendsdóttir fer með aðalhlut-
verkið en meðal annarra leikara eru Örn Árnason og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Ágústa Eva
segir að þær Lína eigi það sameiginlegt að fylgja ekki alltaf félagslegum venjum.
Ágústa Eva Erlendsdóttir leikur
Línu langsokk í uppsetningu
Borgarleikhússins í haust. Hún
sér sjálfa sig í aðalpersónunni.
Ljósmynd/Hari
Við erum
báðar svo-
lítið fyrir að
koma öllu
í uppnám
og fylgjum
ekki alltaf
félagslegum
venjum.
Nýtt verk tónlistarmannsins
Högna Egilssonar úr Hjaltalín
verður opnunarverk Listahátíðar
í Reykavík. Verkið verður flutt
við Reykjavíkurtjörn fimmtudag-
inn 22. maí klukkan 17.30.
Verk Högna kallast Turyia
og titillinn vísar til hugtaks úr
austrænni heimspeki, sem felur
í sér kjarna tilverunnar, hið full-
komna vitundarstig manneskj-
unnar. Verkið hverfist í kringum
Tjörnina í Reykjavík en hægt
verður að njóta verksins víða í
miðborginni þar sem klukkur
Hallgrímskirkju og Landakots-
kirkju leika stórt hlutverk.
Högni mun sjálfur stýra flutn-
ingi verksins frá Tjörninni.
Meðal annarra athyglisverðra
viðburða á Listahátíð er nýtt
verk bandaríska myndlistar-
mannsins Matthews Barney.
Það kallast River of Funda-
ment. Um er að ræða mynd sem
unnin var í samstarfi við tón-
skáldið Jonathan Bepler og tók
sjö ár í vinnslu. Hún er róttæk
endursköpun á bókinni Ancient
Evenings eftir bandaríska rit-
höfundinn Norman Mailer, sem
út kom árið 1983. Myndin er sex
klukkustunda löng og verður
sýnd aðeins einu sinni, hinn 27.
maí í Laugarásbíói klukkan 17.
Hún er bönnuð yngri en 18 ára
og er ekki fyrir viðkvæma.
Þá er rétt að minnast á sam-
starf listamannsins Ragnars
Kjartanssonar og Kjartans
Sveinssonar tónlistarmanns,
Der Klang der Offenbarung des
Göttlichen.
Því er lýst sem leikhúsi án
leikara; verk sem drifið er áfram
einvörðungu af magnaðri tónlist
Kjartans og sérstæðum sviðs-
og leikmyndum. Alls verða þrjár
sýningar á verkinu í Borgarleik-
húsinu, dagana 28., 29., og 30.
maí klukkan 20.
Allar nánari upplýsingar um
dagskrá hátíðarinnar má nálgast
á vefsíðunni listahatid.is.
Nýtt verk Högna flutt
á Listahátíð
Högni Egilsson frumflytur nýtt
verk á Listahátíð í Reykjavík
síðar í mánuðinum.
Ljósmynd/Hari
74 dægurmál Helgin 9.-11. maí 2014