Fréttatíminn - 16.05.2014, Page 18
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Skafkorti›
Þú skefur gylltu
himnuna af þeim
löndum sem þú
hefur heimsótt og
útbýrð þannig
persónulegt
heimskort.
82 X 58 cm • Kr. 3.290
T
ólf þúsund börn á Ís-
landi búa við fátækt,
samkvæmt skýrslu
sem Barnaheill -
Save the Children
á Íslandi hefur gert í samstarfi
við Save the Children samtökin í
Evrópu, en skýrslan er niðurstaða
rannsóknar á aðstæðum barna í
álfunni. Skýrslan sýnir auk þess að
fátækt og ójöfnuður hefur aukist frá
hruni á Íslandi. Hættan á fátækt og
Tólf þúsund börn á Íslandi búa við fátækt
Til eru þau börn á Íslandi sem aldrei fá nýjan fatnað, erfa alla
sína skó, geta ekki stundað tómstundir, forðast að mæta í
afmæli og fá sjálf aldrei afmælisgjafir. Fátæk börn eru í mikilli
hættu á að einangrast félagslega. Frístundakortið er ekki nógu
vel nýtt af fólki sem þarf mest á því að halda.
félagslegri einangrun hefur aukist
um 2,8% frá 2008 til 2012 og á nú
við um 12.00 börn, eða 16% barna
þjóðarinnar.
9,3% þjóðarinnar undir lág-
tekjumörkum árið 2013
Þessi 12.000 börn koma frá heim-
ilum sem falla undir skilgreiningar
Hagstofu Íslands á fátækt. Sam-
kvæmt Hagstofu Íslands þurfa
landsmenn að uppfylla eitt eða
fleiri af eftirtöldum skilyrðum til
að falla undir þá skilgreiningu að
vera fátækur: vera undir lágtekju-
mörkum, búa á heimilum þar sem
atvinnuþátttaka er mjög lítil eða
búa við verulegan skort á efnis-
legum gæðum.
Árið 2013 voru 9,3% þjóðarinnar
undir lágtekjumörkum en lágtekju-
markið var þá 170.600 kr. Sam-
svarandi fjárhæð fyrir heimili þar
sem bjuggu tveir fullorðnir og tvö
börn yngri en 14 ára var 358.400 kr.
á mánuði. Hlutfallið hefur lengst af
verið stöðugt, eða um 9-10%.
Sama ár bjuggu rúm 7% lands-
manna á heimilum þar sem vinnu-
hlutfall var lágt og tæp 2% lands-
manna bjuggu við verulegan skort
á efnislegum gæðum. Þeir sem
teljast búa við verulegan skort á
efnislegum gæðum hafa búið við
eitthvað af eftirfarandi: lent í van-
skilum með lán, ekki haft efni á fríi
með fjölskyldunni, ekki haft efni
á kjöt-, fisk-, eða grænmetismáltið
annan hvern dag, hafa ekki getað
mætt óvæntum útgjöldum, ekki
haft efni á heimasíma eða farsíma,
sjónvarpstæki, þvottavél, bíl eða
húshitun.
Skólastjórnendur verða ekki varir
við aukinn skort hjá börnum
Skólastjórnendur sem Fréttatím-
inn hafði samband við voru allir
sammála um það að þeir yrðu
18 fréttaskýring Helgin 16.-18. maí 2014