Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.05.2014, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 16.05.2014, Qupperneq 28
Það færir okkur öllum smá ró að vita að það er eitthvað að gerast í þess- um málum. Þótt drengurinn komi ekki til baka þá er ákveðin hugarró í því að vita að andlát hans láti gott af sér leiða, geri heiminn betri. Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Háþrýstidælur, ryk- og vatnssugur - á sumartilboði C130.1-6 X-tra háþrýstidæla Fyrir þá sem vilja góða háþrýstidælu. Vnr. 128470251 Poseidon 3-40 háþrýstidæla Afkastamikil 3ja fasa háþrýstidæla. Þrýstingur 170 bör. Vatnsmagn allt að 830 l/klst Vnr. 301002221 E140.3-9 X-tra háþrýstidæla Öflug dæla fyrir þá kröfuhörðu. Á húsið, bílinn og stéttina. Vnr. 128470505 P150.2-10 X-tra háþrýstidæla Þessi er kraftmikil og hentar fyrir minni fyrirtæki, bændur, stóra bíla, vinnuvélar o.fl. Vnr. 128470132 Attix 30-01 Öflug ryk- og vatnssuga sem hentar vel í erfið verkefni. Vnr. 02003405 Buddy 15 Lítil og nett ryk- og vatnssuga Vnr. 302002316 Tilboð frá 11.988 kr. Vina del Mar B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 62 78 3 Kanarí frá 95.500 Apt. Dorotea Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð frá kr. 95.500. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð frá kr. 132.900. 18. nóvember í 14 nætur. Tenerife frá kr. 93.800 Cristian Sur Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð frá kr. 93.800. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í stúdíó frá kr. 120.000. 10. október í 10 nætur. Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is Kanarí & Tenerife Haustferðir komnar í sölu 12.000 kr. bókunarafsláttur til 26. maí 2014 á fyrstu sætunum Frá kr. 93.800 klifurgrind, kaðlaróla og rennibraut, var keypt í Byko sem nú hefur innkallað öll slík tæki. „Þetta var eins hörmulegt slys og hægt er. Þess vegna var það líka sem ég vildi reyna eins og ég gæti til að koma í veg fyrir að þetta gæti gerst aftur,“ segir Hákon. Enn eru í það minnsta þrjú fyrirtæki enn að selja slík tæki, án þess að með þeim fylgi nein viðvörun um að tækið geti verið lífshættu- legt. „Hjarta okkar blæðir þegar við sjáum auglýsingar frá þessum fyrirtækjum með myndum af svona rólum,“ segir Hákon. Lausnin ódýr og einföld „Byko, í samstarfi við leik- fangaframleiðandann Krummu, fann ódýra og einfalda lausn sem ég vona að verði staðalbúnaður og hvet ég alla forráðamenn til að setja ádrag á kaðlarólur barna sinna og fyrirbyggi að slys sem þetta eigi sér stað. Lausnin er mjög ein- föld: Mæla þarf þykktina á kaðlinum á rólunni. Hún er oftast 12 millimetrar. Þá þarf að kaupa plastslöngu sem er ögn grennri, eða 10 millimetrar, 150 cm á hvorn kaðal. Slangan er sett í heitt vatn svo hún mýkist og er síðan dregin upp á kaðalinn. Þegar hún kólnar herpist hún saman og festist við kaðalinn. Þetta er auðvelt og ódýrt og allir eiga að geta gert þetta,“ segir Hákon. Spurður um ábyrgð sölu- aðilans og framleiðandans í slysum sem þessum segir Hákon að báðir hafi skýlt sér bak við Evrópustaðla. „Tækið var í raun leyfilegt samkvæmt stöðlum þótt það hafi ekki verið leyfilegt að nota það á sameign. Þegar tækið var keypt í Byko og nótan var stíluð á húsfélag hefði starfsmaður Byko átt að upplýsa og segja frá því að tækið væri ólöglegt á sam- eignarlóð en ég er ekki viss um að þeir hafi vitað það þá. Það sýnir okkur að eftirlitið er ekki nægilegt. Við gerum þá kröfu að leiktæki fyrir börnin okkar séu það örugg, að þau geti ekki valdið alvar- legum slysum og krefjumst þess að eftirlit sé með því,“ segir Hákon. Næstkomandi mánudag verður lagt fyrir hjá staðlar- áði Evrópu erindi frá Neyt- endastofu á Íslandi, þar sem mælt er með því að stöðlum á rólum verði breytt. Hákon er vongóður um að erindið fái jákvæðar undirtektir enda hafi Embætti landlækn- is og Umboðsmaður barna lýst yfir stuðningi við erindið og vegi það þungt. „Ég fagna þessum mikilvæga áfanga mjög,“ segir Hákon. Vildi banna kaðlarólur á Íslandi „Þetta er gríðarlegt áfall og mikil sorg og aðstandendur, jafna sig aldrei. Tveimur árum eftir slysið fór ég af stað með það að markmiði að óvarðar kaðlarólur yrðu bannaðar á Íslandi. Ég gerði mér grein fyrir því að það væri mjög háleitt markmið og að ég yrði að fá lögfræði- aðstoð til að koma málinu áleiðis. Helga Björg Jóns- dóttir, lögmaður hjá Sigurði G. Guðjónssyni, hefur unnið ötullega að málinu, hún kom víða að lokuðum dyrum, en gafst ekki upp. Eiga þau miklar þakkir skildar, án þeirra hefði ég líklega gefist upp. En til að gera langa sögu stutta, mun forstjóri Neyt- endastofu, Tryggvi Axelsson, leggja fyrir Staðlaráð Evrópu bréf þann 19. maí, þess eðlis að Neytendastofa á Íslandi mæli með því að stöðlum vegna kaðlaróla verði breytt í Evrópu. Tryggvi situr í Staðlaráðinu og mun sjálfur mæla fyrir málinu og fylgja því eftir svo við erum vongóð um að það verði samþykkt og stöðlum breytt þannig að kaðlarólur verði bannaðar í Evrópu nema að á þeim sé svokallað ádrag sem komi í veg fyrir að lykkja geti myndast á kaðlinum,“ segir Hákon. Auk Neytendastofu kemur Embætti Landlæknis og Umboðsmaður barna að málinu og hafa skrifað bréf til Staðlaráðs þar sem mælt er með því að stöðlum verði breytt. Kristófer Darri var fjögurra ára þegar hann lést eftir að kaðlaróla flæktist um háls hans á leikvelli á sameignarlóð fjölbýlishúss í Grafarvogi fyrir fjórum árum. 28 viðtal Helgin 16.-18. maí 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.