Fréttatíminn - 16.05.2014, Síða 37
Þ að eru tilteknir aðilar sem hafa mikinn áhuga á að líf-rænn eldhúsúrgangur verði
flokkaður og honum safnað sér-
staklega. Við teljum hins vegar
ekki skynsamlegt að fara í slíka
flokkun að svo komnu máli,“seg-
ir Björn H. Halldórsson, forstjóri
SORPU.
Hann segir lífrænan heimilisúr-
gang einnig vera notaðar bleyjur,
kattasand, bein og afskurð og
fleira. „Allt eru þetta efni sem þarf
að vinna og þess vegna væri mjög
óhagkvæmt að koma með sérstaka
lausn fyrir lífrænan eldhúsúrgang
eingöngu. Gas- og jarðgerðastöðin
er sú lausn sem við teljum að best
mæti þessu verkefni í heild sinni.
Hún kemur hins vegar ekki í veg
fyrir að flokkun á lífrænum heimil-
isúrgangi verði tekin upp þótt síðar
verði,“ segir Björn.
Merkir áfangar í
umhverfismálum
Umhverfisvitund Íslendinga hefur aukist verulega á síðustu árum og áratugum. Stór framfara-
skref hafa verið stigin til þess að draga úr áhrifum íbúðabyggðar á náttúruna, ekki aðeins á sviðum
sorphreinsunar og endurvinnslu heldur einnig með verulegum umbótum í frárennslismálum. Með
rafvæðingu og síðar með því að beisla jarðhita til húshitunar dró jafnframt verulega úr notkun jarð-
efnaeldsneytis.
Sérsöfnun eldhússúrgangs
er óþörf
Árlega eru um 30.000
tonn af hvers kyns
heimilisúrgangi urðuð
í Álfsnesi. Um 70%
þessa magns úrgangs
eru lífræn. Með gas-
og jarðgerðarstöðinni
verður þessi úrgangur
unninn og honum
breytt í metangas og
jarðvegsbæti.
Fyrsta virkjun landsins, Reykdalsvirkjun,
tekur til starfa í Hafnarfirði.
1904 1909
TÍMAMÓT
Vatnsveita Reykjavíkur tekur til starfa.
Drykkjarvatni miðlað til bæjarins um leiðslu
frá Gvendarbrunnum.
Elliðaárstöð tekin í notkun. Raforkan
flutt eftir háspennuraflínu að aðveitustöð
á Skólavörðuholti.
1921
Upphaf hitaveitu Reykjaví ur. Heitu vatni
er veitt frá Þvottalaugunum í Laugardal að
Austurbæjarskóla.
1930 1980
Hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgar -
svæðinu hefst 1980 og stendur í 25 ár.
Til að draga úr urðun úrgangs og nýta betur
þau verðmæti sem felast í úrgangsefnunum
hafa sveitarfélögin sem standa að SORPU
ákveðið að reisa gas- og jarðgerðarstöð í Álfs-
nesi. Með henni skapast loks ásættanlegur
farvegur fyrir lífrænan úrgang á höfuðborgar-
svæðinu. Um leið er dregið úr lyktarmengun
frá urðunarsvæðinu og til verður innlend orka
sem hægt er að nota í stað innflutts eldsneytis.
Bygging gas- og jarðgerðarstöðvarinnar í Álfs-
nesi er næsta stóra skrefið í umhverfismálum
á höfuðborgarsvæðinu. Hún er í samræmi við
stefnu sem sveitarfélögin hafa mótað í sam-
eiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úr-
gangs 2009-2020. Eftir að gas- og jarðgerðar-
stöðin hefur starfsemi verður allur úrgangur
sem safnað er frá heimilum á samlagssvæði
SORPU unninn í stöðinni. Lífrænu efnin
verða nýtt til gas- og jarðgerðar, en málmar og
önnur ólífræn efni verða flokkuð frá.
Gas- og jarðgerðarstöðin greiðir fyrir því að
urðun lífræns úrgangs verði alveg hætt árið
2021. Einnig mun endurvinnsla annars úr-
gangs aukast þannig að markmiðum lands-
áætlunar verði náð árið 2025.
Árlega eru um 100.000 tonn af úrgangi urðuð
í Álfsnesi. Þar af koma 30.000 tonn úr orku-
tunnu heimilanna á samlagssvæði SORPU.
Um 70% af þessum 30.000 tonnum eru líf-
ræn. Í stað þess að urða þennan úrgang verður
honum breytt í metangas og jarðvegsbæti í
gas- og jarðgerðarstöðinni.
Í dag er úrgangur frá heimilum á höfuð-
borgarsvæðinu pressaður í 34.000 bagga á ári.
Eftir 2016 fer allt þetta magn gegnum gas- og
jarðgerðarstöðina og urðun heimilis úrgangs
verður hætt.
Með gas- og jarðgerðarstöðinni mun núver-
andi metangasframleiðsla SORPU í Álfsnesi
tvöfaldast og nægja til að knýja 8.000 fólks-
bíla árlega.
Áætlaður kostnaður við byggingu gas- og
jarðgerðarstöðvarinnar er um 2,7 milljarðar
króna.
ÁFANGAR
Í 100 ÁR
ENDURVINNSLUFERLIÐ
Í DAG
ENDURVINNSLUFERLIÐ
EFTIR 2016
ENDURVINNSLA
FRÁ 2016
BAGGAR Á ÁRI URÐAÐIR
– VERÐA AÐ METANI
2 SORPA SORPA 3
1904 –
1909 –
1921 –
1930 –
1980 –
1989 –
1989 –
1990 –
1991 –
1996 –
2001 –
2006 –
2008 –
2012 –
2016 –
Hér eru nokkrir áfangar sem varðað
hafa leiðina í til aukinnar umhverfis-
verndar á höfuðborgarsvæðinu í rúm-
lega eina öld:
Innleiðing blátunnu hefst á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrsta virkjun landsins, Reykdalsvirkjun, tekur til starfa
í Hafnarfirði.
Vatnsveita Reykjavíkur tekur til starfa. Drykkjarvatni
miðlað til bæjarins um leiðslu frá Gvendarbrunnum.
Elliðaárstöð tekin í notkun. Raforkan flutt eftir háspennu-
raflínu að aðveitustöð á Skólavörðuholti.
Upphaf Hitaveitu Reykjavíkur. Heitu vatni er veitt frá
þvottalaugunum í Laugardal að Austurbæjarskóla.
Hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu hefst
og stendur í 25 ár.
Byggðasamlagið Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins,
SORPA bs., stofnað af sjö samstarfssveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu.
Móttaka á skilagjaldsskyldum umbúðum hefst á vegum
Endurvinnslunnar hf.
SORPA opnar spilliefnamóttöku í bráðabirgðahúsnæði að
Dalvegi 7 í Kópavogi.
Rekstur SORPU hefst formlega 26. apríl þegar móttöku-
stöðin í Gufunesi og ný r urðunarstaður í Álfsnesi eru
tekin í notkun.
SORPA hefur söfnun á hauggasi á urðunarstaðnum í
Álfsnesi.
Vinnsla metans úr hauggasi hefst og 20 fyrstu tvíorkubíl-
arnir sem ganga bæði fyrir metani og bensíni koma á
götuna.
Ný hreinsistöð sem skilur metan frá hauggasinu í Álfsnesi
tekin í notkun.
10 km gasleiðsla frá urðunarstað SORPU í Álfsnesi að
metanafgreiðslu N1 á Bíldshöfða tekin í notkun.
Gas- og jarðgerðarstöð SORPU tekin í notkun.
KYNNING
grænn lífsstíll 37Helgin 16.-18. maí 2014