Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.05.2014, Side 64

Fréttatíminn - 16.05.2014, Side 64
64 ferðalög Helgin 16.-18. maí 2014  jótland Það er fleira að sjá í danmörku en kaupmannahöfn SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is NÝR SJÓÐHEITUR SUMARBÆKLINGUR STÚTFULLUR AF SNILLD :) 4BLS USB 3.0 10X HRAÐA RA TENGI O G SAMHÆFT VIÐ ELDRI USB2 Á ENN MEI RI HRAÐA HÁHRAÐA BLUETOOTHGAGNAFLUTNINGUR 15.6” FARTÖLVA Frá Packard Bell með Intel Du al Core örgjörva, 4GB Minni, 500GB h arðdisk, Windows 8.1 og nýjustu tækn i 49.900 SJÓÐHEITT SUMARVERÐ:) AÐEINS 100STK Á ÞESSU VE RÐI! ALGENGT VERÐ 69.900 2 0 1 4 00000 w w w . v e i d i k o r t i d . i s Eitt kort 36 vötn 6.900 kr FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ 2 0 1 4 VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 55% þeirra sem beita stúlkur kynferðislegu ofbeldi eru karlar tengdir fjölskyldu þeirra. í átta af hverjum tíu tilvikum þá velja íslenskir ferðamenn í Danmörku að verja nóttinni á hóteli í Kaupmannahöfn. Á sumrin dreifum við okkur þó betur um landið og sér- staklega þegar áætlunarflug hefst til Billund á vorin. Á Jót- landi er fjöldi staða sem gera tilkall til þess að vera sá besti eða mesti í sínum flokki, alla vega í dönskum samanburði. Hér eru nokkrir af þessum hápunktum Jótlands. Fallegasti bærinn Á blómatíma seglskipanna byggðu skipstjórarnir sér reisu- leg múrsteinshús með háum stráþökum í bænum Sønderho á eyjunni Fanø. Rúmlega sjötíu þeirra standa ennþá í dag og þorpsmyndin er því mjög heilleg í þessu litla kauptúni sem fékk flest atkvæði í valinu á fallegasta smábænum í Danmörku fyrir ekki svo löngu. Vinsæl hjólaleið Löngu fyrir tíma járnbrauta og bíla lá ein aðal umferðaræð Danmerkur eftir miðju Jótlandi. Þessi 240 kílómetra vegur kallast Hærvejen og nær frá Viborg og suður til þýsku borgarinnar Padburg. Leiðin er vinsæl meðal hjólreiða- fólks, sögu sinnar vegna og líka vegna náttúrufegurðar- innar. Þeir sem vilja heldur hjóla við sjávarsíðuna geta farið bút af hjólaleið númer 1 (National Cykelrute 1). Sú liggur eftir vesturströnd Jótlands frá Rudbøl til Skagen og er um 530 kílómetra löng. Brot af því besta við Jótland Eina fastaland Dana liggur vel við höggi á sumrin þegar boðið er upp á nokkrar ferðir í viku héðan til flugvall- arins við Legól- and. Hraðskreiðir rússíbanar Það kann að skjóta skökku við að í litlum bæ á austurhluta Jótlands sé að finna rússíbana sem kjörinn hefur verið sá sjötti besti í heimi. Tækið, sem gengur undir nafninu Piraten, kostaði rúman milljarð ís- lenskra króna og er það stærsta og hraðskreiðasta sinnar tegundar í Danmörku. Þessi stóra fjárfesting kom forsvarsmönnum garðsins á bragðið og þar er líka að finna stærsta vatnsrússíbana N-Evrópu og Juvelen sem er lengsti rússíbani Danmerkur. Besti veitingastaður Norðurlanda Þó Henne Kirkeby Kro hafi ekki ennþá hlotið stjörnu í ferðabókum Michelin þá var þessi huggulega sveitakrá kjörinn besti veitingastað- ur Norðurlanda fyrir tveimur árum. Eftir að hinn breski Paul Cunn- ingham tók við eldhúsi staðarins hafa vinsældir kráarinnar aukist enn frekar. Á kvöldin stendur valið á milli matseðla sem kosta tæpar tuttugu þúsund á mann en í hádeg- inu eru verðin viðráðanlegri og rétt- irnir á þrjú til fimm þúsund krónur. Næst besta ströndin Árlega stendur dagblaðið Berl- ingske fyrir kosningu á bestu baðströnd Danmerkur. Síðustu ár hefur Marielyst á Falster sigrað með nokkrum yfirburðum nema í fyrra þegar Bisnap Strand, stutt frá Álaborg, fékk álíka mörg atkvæði. Bisnap Strand þykir mjög barnvæn baðströnd enda aðgrunnt og þau yngstu geta því buslað í sjávarmál- inu. Icelandair flýgur til Billund allt að fjórum sinnum í viku frá vori og fram til loka október og Primera air býður upp á vikulegar ferðir yfir sumarið. Á Túristi.is má lesa meira tengt ferðalögum um Jót- land og gera verðsamanburð á bílaleigum. Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Sjötti besti rússíbani í heimi og sá stærsti og hraðskreiðasti í Danmörku er í Djurs sommer- land. Það tekur aðeins um hálftíma að keyra frá Álaborg til Bisnap strand. Sønderho á eyjunni Fanø þykir með fallegri plássum Danmerkur. Hjólreiðar. Það er hægt að velja á milli langra og stuttra leið um allt Jótland. Henne Kirkeby Kro var valinn besti matstölustaður Norður- landa fyrir tveimur árum. Þar geta gestirnir lagt sig eftir matinn en nóttin kostar þó sitt.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.