Fréttatíminn - 16.05.2014, Page 64
64 ferðalög Helgin 16.-18. maí 2014
jótland Það er fleira að sjá í danmörku en kaupmannahöfn
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
NÝR SJÓÐHEITUR SUMARBÆKLINGUR STÚTFULLUR AF SNILLD :)
4BLS
USB
3.0
10X HRAÐA
RA TENGI O
G
SAMHÆFT
VIÐ ELDRI
USB2
Á ENN MEI
RI HRAÐA
HÁHRAÐA BLUETOOTHGAGNAFLUTNINGUR
15.6”
FARTÖLVA
Frá Packard Bell með Intel Du
al Core
örgjörva, 4GB Minni, 500GB h
arðdisk,
Windows 8.1 og nýjustu tækn
i
49.900
SJÓÐHEITT SUMARVERÐ:)
AÐEINS 100STK Á ÞESSU VE
RÐI!
ALGENGT VERÐ 69.900
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
55% þeirra sem beita stúlkur
kynferðislegu ofbeldi eru karlar
tengdir fjölskyldu þeirra.
í átta af hverjum tíu tilvikum þá velja íslenskir ferðamenn í Danmörku að verja nóttinni á hóteli í Kaupmannahöfn. Á sumrin dreifum við okkur þó betur um landið og sér-
staklega þegar áætlunarflug hefst til Billund á vorin. Á Jót-
landi er fjöldi staða sem gera tilkall til þess að vera sá besti
eða mesti í sínum flokki, alla vega í dönskum samanburði.
Hér eru nokkrir af þessum hápunktum Jótlands.
Fallegasti bærinn
Á blómatíma seglskipanna byggðu skipstjórarnir sér reisu-
leg múrsteinshús með háum stráþökum í bænum Sønderho
á eyjunni Fanø. Rúmlega sjötíu þeirra standa ennþá í dag
og þorpsmyndin er því mjög heilleg í þessu litla kauptúni
sem fékk flest atkvæði í valinu á fallegasta smábænum í
Danmörku fyrir ekki svo löngu.
Vinsæl hjólaleið
Löngu fyrir tíma járnbrauta og bíla lá ein aðal umferðaræð
Danmerkur eftir miðju Jótlandi. Þessi 240 kílómetra vegur
kallast Hærvejen og nær frá Viborg og suður til þýsku
borgarinnar Padburg. Leiðin er vinsæl meðal hjólreiða-
fólks, sögu sinnar vegna og líka vegna náttúrufegurðar-
innar.
Þeir sem vilja heldur hjóla við sjávarsíðuna geta farið bút
af hjólaleið númer 1 (National Cykelrute 1). Sú liggur eftir
vesturströnd Jótlands frá Rudbøl til Skagen og er um 530
kílómetra löng.
Brot af því besta við Jótland
Eina
fastaland
Dana
liggur vel
við höggi
á sumrin
þegar
boðið
er upp á
nokkrar
ferðir
í viku
héðan til
flugvall-
arins við
Legól-
and.
Hraðskreiðir rússíbanar
Það kann að skjóta skökku við að
í litlum bæ á austurhluta Jótlands
sé að finna rússíbana sem kjörinn
hefur verið sá sjötti besti í heimi.
Tækið, sem gengur undir nafninu
Piraten, kostaði rúman milljarð ís-
lenskra króna og er það stærsta og
hraðskreiðasta sinnar tegundar í
Danmörku. Þessi stóra fjárfesting
kom forsvarsmönnum garðsins
á bragðið og þar er líka að finna
stærsta vatnsrússíbana N-Evrópu
og Juvelen sem er lengsti rússíbani
Danmerkur.
Besti veitingastaður
Norðurlanda
Þó Henne Kirkeby Kro hafi ekki
ennþá hlotið stjörnu í ferðabókum
Michelin þá var þessi huggulega
sveitakrá kjörinn besti veitingastað-
ur Norðurlanda fyrir tveimur árum.
Eftir að hinn breski Paul Cunn-
ingham tók við eldhúsi staðarins
hafa vinsældir kráarinnar aukist
enn frekar. Á kvöldin stendur valið
á milli matseðla sem kosta tæpar
tuttugu þúsund á mann en í hádeg-
inu eru verðin viðráðanlegri og rétt-
irnir á þrjú til fimm þúsund krónur.
Næst besta ströndin
Árlega stendur dagblaðið Berl-
ingske fyrir kosningu á bestu
baðströnd Danmerkur. Síðustu ár
hefur Marielyst á Falster sigrað
með nokkrum yfirburðum nema í
fyrra þegar Bisnap Strand, stutt frá
Álaborg, fékk álíka mörg atkvæði.
Bisnap Strand þykir mjög barnvæn
baðströnd enda aðgrunnt og þau
yngstu geta því buslað í sjávarmál-
inu.
Icelandair flýgur til Billund allt
að fjórum sinnum í viku frá vori og
fram til loka október og Primera
air býður upp á vikulegar ferðir
yfir sumarið. Á Túristi.is má lesa
meira tengt ferðalögum um Jót-
land og gera verðsamanburð á
bílaleigum.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Sjötti besti
rússíbani í heimi
og sá stærsti og
hraðskreiðasti
í Danmörku er í
Djurs sommer-
land.
Það tekur aðeins
um hálftíma að
keyra frá Álaborg
til Bisnap strand.
Sønderho á
eyjunni Fanø
þykir með
fallegri plássum
Danmerkur.
Hjólreiðar. Það
er hægt að velja
á milli langra og
stuttra leið um
allt Jótland.
Henne Kirkeby Kro var valinn
besti matstölustaður Norður-
landa fyrir tveimur árum. Þar
geta gestirnir lagt sig eftir
matinn en nóttin kostar þó sitt.