Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 78
„Það var mjög skemmtilegt að taka
þessa mynd upp og gaman að vinna
með þessum hópi. Baldvin Z leysti
þetta verkefni allt saman mjög vel,“
segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson
leikari.
Þorvaldur Davíð leikur í kvikmynd-
inni Vonarstræti sem fer í sýningar í
íslenskum kvikmyndahúsum í dag,
föstudag. Auk Þorvaldar fara þau Þor-
steinn Bachmann og Hera Hilmars-
dóttir með stór hlutverk. Leikstjóri er
Baldvin Zóphoníasson.
Myndin hefur verið í forsýningum
undanfarna daga. Í gærkvöldi var leik-
stjórinn til að mynda með sérstaka for-
sýningu í heimabæ sínum, Akureyri,
fyrir vini, vanda- og velgjörðarmenn.
Ef marka má viðbrögð á samfélags-
miðlum er myndin einstaklega vel
heppnuð.
„Viðbrögðin hafa verið rosalega
jákvæð,“ segir Þorvaldur Davíð. „Ég
held að Baldvin komi með eitthvað
nýtt „touch“ í íslenska kvikmynda-
gerð. Ætli hann sé ekki nær dönskum
gæðum en við eigum að venjast? Með
þennan realisma og mannlega nálgun í
myndum sínum,“ segir leikarinn.
Þorvaldur Davíð leikur Sölva sem
var atvinnumaður í knattspyrnu í
Belgíu. Þegar hann meiðist flytur hann
heim og fer að vinna í banka. Þetta er
árið 2007. „Þetta er góður strákur en
siðferðisþröskuldurinn hverfur jafnt
og þétt. Til að lifa af í þessum heimi
þurfti að hugsa upp á nýtt og vera til-
búinn að fórna ýmsu til að ná árangri.
Ég myndi segja að þetta endurspegli
svolítið Íslendinginn á þessum tíma.
Siðferði og áherslur í lífinu breyttust
hjá svo rosalega mörgum, ekki bara
hjá þeim sem voru beint að vinna í
þessum heimi. Það snerist allt um að
kaupa sér hamingjuna.“ -hdm
Bíó Þorvaldur davíð Kristjánsson leiKur í vonarstræti sem frumsýnd er í dag
Myndir Baldvins í dönskum gæðum
Þorvaldur
Davíð
Kristjánsson
er ánægður
með við-
tökurnar sem
Vonarstræti
hefur fengið.
Ljósmynd/Hari
Fyrsta kvikmynd Guð-
mundar Arnar Guð-
mundssonar í fullri lengd,
Hjartasteinn, verður kynnt
á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í næstu viku ásamt
fimm öðrum alþjóðlegum
verkefnum. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum
var Guðmundur valinn til
þátttöku í Cannes Resi-
dence þetta árið og vinnur
þar að þróun myndarinnar
þar til í júlí. Guðmundur
frumsýndi margverð-
launaða stuttmynd sína,
Hvalfjörð, á hátíðinni í fyrra
og vann hún til sérstakra
dómnefndarverðlauna í
aðalkeppni hátíðarinnar.
Stefnt er að því að tökur á
Hjartasteini hefjist á næsta
ári. Í myndinni segir frá
hinum þrettán ára Þór sem
er að uppgötva kynhvötina
og yfirstíga óttann gagn-
vart stelpum með aðstoð
besta vinar síns, Kristjáns.
Á meðan er Kristján að
uppgötva leyndarmál sem
enginn strákur vill eiga í
litlu sjávarþorpi.
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
BÓNORÐIN7
„Fyrir hönd hirðarinnar óska ég lands-
mönnum öllum gleðilegs sumars,“ segir
Svavar Pétur Eysteinsson, maðurinn á bak
við hina stórskemmtilegu hljómsveit Prins
Póló. Þriðja plata sveitarinnar er komin út
og kallast hún Sorrí. Á plötunni er að finna
tólf lög, sum ný en önnur eldri. Má þar
nefna lög eins og Bragðarefi, Tipp Topp,
og Landspítalann. Ný lög eins og Hamstra
sjarma, Ég kem með kremið og Kosmós
hafa ekki áður litið dagsins ljós.
Platan fæst í gegnum heimasíðuna www.
prinspolo.com en þar er jafnframt hægt
er að streyma henni ókeypis. Platan mun
svo innan skamms fást á geisladiski í öllum
betri hljómplötuverslunum.
Ný plata frá Prinsinum
Hjartasteinn kynntur í Cannes
m ig langaði alltaf að skrifa í menntaskóla en svo fór ég í læknis-
fræði,“ segir Ari Jóhannesson,
rithöfundur og læknir, sem í vik-
unni gaf út sína fyrstu skáldsögu,
Lífsmörk. „Þetta hélt samt áfram
að blunda í mér og upp úr 2000
fór ég svo að skrifa ljóð og gaf út
mína fyrstu ljóðabók árið 2007,“
segir Ari en sú bók, Öskudagar,
hlaut Bókmenntaverðlaun Tóm-
asar Guðmundssonar. „Fljótlega
eftir það fann ég að það sem
mig langaði til að koma til skila
í skapandi skrifum komst ekki
almennilega fyrir í ljóðum. Ég
fór því að fikra mig yfir í prósa,
skrifaði senur af sjúkrahúsi,
svona eins og löng prósaljóð, en
þær fóru svo að skjóta út sprotum
sem fóru ósjálfrátt að tengjast.
Áður en ég vissi af var kominn
söguþráður.“
Hetja með brotalöm
Margar persónur koma við sögu
í Lífsmörkum, en í forgrunni er
Sölvi Oddsson, svæfinga-og gjör-
gæslulæknir á Landspítalanum.
„Hann er að mörgu leyti eins og
klipptur úr Íslendingasögum, er
gömul íþróttahetja og ákaflega
vel af guði gerður og forkur til
vinnu. Hann helgar sig starfinu
en á sína fjölskyldu en saman
hafa þau byggt sér hús Garðabæ.
En hetjur eru ekki áhugaverðar
nema í þeim sér einhver brota-
löm,“ segir Ari. „Dramatískir
atburðir eru skammt undan sem
breyta lífi Sölva, fjölskyldu hans
og annara sem við sögu koma.“
„Ég segi nú oft að þessi saga
mín sé mín eigin óhefðbundna
útgáfa af læknarómans. Þessi,
að mörgu leyti myndræna veröld
bráðalækninga, sem slíkur
læknir hrærist í, finnst mér
henta afar vel til að koma til skila
þemum eins og fórnfýsi og fíkn,
bæði vinnufíkn og annarskonar
fíkn. Sársauka og togstreitu
milli krefjandi starfs og einka-
lífs, og fallvaltleika lífsins yfir
höfðu. Gjörgæslan er freistandi
sviðsmynd því hún er svo mynd-
rænn staður og snýst alfarið um
lífsmörk. En sögusviðið er langt
í frá einskorðað við Landspítal-
ann. Lífsmörk leiða lesandann
austur á Laugarvatn, vestur um
haf, til Rómar og Austurlanda svo
nokkrir staðir séu nefndir.“
Sagan var fimm ár í smíðum
Ari segist nú ekki hafa mikinn
tíma til skrifta þar sem hann sé
í fullu starfi sem læknir en það
geti þó haft sína kosti. „Ég hef nú
því miður ekki mikinn tíma til að
skrifa þar sem ég er í fullu starfi
hér á Landspítalanum. Þetta er
aðallega kvöld-og helgarvinna.
Í lít þó á það sem ákveðinn kost,
því þannig fær sagan ákveðið
tóm til að þroskast. Í mínu tilviki
voru það fimm ár. Ef ég hefði sest
niður í þrjá til fjóra mánuði og
skrifað samfleytt þá er ég viss
um að útkoman væri mun lakari.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
BæKur fyrsta sKáldsaga ara jóhannessonar læKnis Komin út
Gjörgæslan er
freistandi sviðsmynd
Ari Jóhannesson, læknir og rithöfundur, hefur gefið út sina fyrstu skáldsögu, Lífsmörk, en
ljóðabók hans, Öskudagar, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007.
Sagan fjallar um ungan svæfinga-og gjörgæslulækni, Sölva Oddsson, sem Ari segir að
mörgu leyti vera eins og klipptan úr Íslendingasögum. Hann segir hina myndrænu veröld
bráðalækninga vera heillandi sögusvið sem lýsi vel fallvaltleika lífsins, enda staður sem
snýst alfarið um lífsmörk.
Ari Jóhannesson, læknir og rithöfundur, hefur gefið út sína fyrstu skáldsögu, Lífsmörk. Ljósmynd/Hari
78 dægurmál Helgin 16.-18. maí 2014