Fréttatíminn - 16.05.2014, Blaðsíða 85
14. mars 2014 — 5 —
Endurunnið blóð
Þegar sjúklingar missa blóð í
aðgerðum er betra að gefa þeim
sitt eigið blóð aftur en blóð úr blóð-
banka, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar hjá Johns Hopkins
háskóla. Blóðið er hreinsað í vél
sem skilur rauðu blóðkornin frá og
eru þau svo gefin sjúklingum. Þá
eru heilbrigðu blóðfrumurnar betur
í stakk búnar til að bera súrefni
þangað sem þörfin er mest en þegar
blóðið kemur úr blóðbanka. Eldri
rannsóknir hafa leitt í ljós að blóð-
gjöf geti aukið líkur á spítalasýk-
ingum, lengi dvöl á spítala og auki
líkur á andláti. Þá er mun ódýrara
að notast við blóð sem endurunnið
er á þennan hátt en blóð úr blóð-
banka.
Ég æfi þríþraut með áherslu á hjólreiðar.
Æfingarnar eru mjög fjölbreyttar að lengd og
gæðum en lengstu æfingarnar eru 6 tímar.
Ég prófaði Nutrilenk Gold fyrir rúmlega ári
og fannst það hjálpa mér mikið. Ýmsar
rannsóknir í ritrýndum alþjóðlegum timaritum
hafa sýnt fram á jákvæða virkni innihalds-
efna sem eru í Nutrilenk án þess að þau séu
skráð sem lyf.
Ég prófaði að hætta að taka inn Nutrilenk
nokkrum mánuðum síðar en byrjaði aftur
og hef tekið Nutrilenk núna í rúmlega hálft
ár og ætla að halda því áfram enda hafa
æfingar og keppnir gengið mjög vel.
Nutrilenk er fáanlegt í estum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK
- hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina
Nutrilenk Gold gerir gæfumuninn
Hákon Hrafn Sigurðsson
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna.
Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum
þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó-
tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til
mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan
hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef
og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika.
Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er
öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af
kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki.
Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski
og slitnum liðum
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Hákon Hrafn er 39 ára fjölskyldumaður,
Íslandsmeistari í þríþraut síðustu þrjú ár,
þríþrautarmaður ársins og Íslandsmeistari
í tímakeppnihjólreiðum.
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri
Icepharma og dr. Baldur Tumi Baldurs-
son húðsjúkdómalæknir, einn stofnenda
Kerecis.
Vísindalega
sannað að hlátur-
inn bæti lífið
Oft er sagt að hláturinn lengi lífið og
nú hefur verið vísindalega sannað
að hlátur geti minnkað líkur á elli -
glöpum. Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar á vegum Loma Linda
háskóla í Kaliforníu getur kímnigáfa
og hlátur minnkað skemmdir í
heila af völdum streituhormónsins
kortisól og þannig bætt minnið.
Eldri rannsóknir hafa einnig sýnt
fram á að streita geti haft slæm
áhrif á minni eldra fólks og getu til
að læra. Ástæðan er sú að streita
eykur framleiðslu á hormóninu
kortisól sem getur haft skaðleg áhrif
á taugafrumur. Við rannsókn Loma
Linda háskólans var þátttakendum
skipt í þrjá hópa. Í einum hópnum
var fólk með sykursýki og í öðrum
var heilbrigt fólk. Hóparnir tveir
horfðu á 20 mínútna fyndið mynd-
band og tóku síðan minnispróf sem
þó var óskylt myndbandinu. Þriðji
hópurinn tók minnisprófið án þess
að horfa á myndbandið. Niður-
stöðurnar sýndu að fólk í hópunum
sem horfðu á myndbandið höfðu
minna magn kortisóls í líkamanum
miðað við hópinn sem ekki horfði á
myndbandið.
Að sögn dr. Lee Burk, eins vísinda-
mannanna sem rannsóknina
framkvæmdu, sýna niðurstöðurnar
að því minni streitu sem fólk finnur
fyrir, því betra sé minnið og að
kímnigáfa geti verið lykillinn til að
minnka streitu.
Kerecis semur við Icepharma
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis hefur
samið við Icepharma um markaðssetn-
ingu, sölu og dreifingu á vörum fyrir-
tækisins.
Kerecis, sem er með höfuðstöðvar
sínar á Ísafirði, framleiðir MariGen
Omega3 stoðefni og MariCell Omega3
krem, en vörurnar byggja á fyrstu kyn-
slóðar tækni Kerecis. Fyrirtækið hefur
náð góðum árangri í þróun á lækninga-
vörum sem byggir á hagnýtingu á pró-
teinum og fitusýrum úr fiski.
Kerecis þróaði og framleiðir Mari-
Gen Omega3, sem er stoðefni til með-
höndlunar á þrálátum sárum. Slík sár
eru víða alvarlegt heilbrigðisvandamál,
en sem dæmi má nefna að árlega eru
framkvæmdar yfir 100 þúsund aflimanir
í Bandaríkjunum vegna sára sem ekki
gróa, m.a. hjá sykursjúkum.
Þá hefur fyrirtækið þróað og fram-
leitt MariCell Omega3 sem eru sér-
hönnuð rakakrem m.a. til meðhöndl-
unar á þurri húð með einkennum
húðbólgu þ.m.t. húð sykursjúkra, ásamt
exemi og psóríasis. Kremin eru viður-
kennd og þróuð af húðlæknum og eru
seld í helstu apótekum landsins.
Þróunaráætlun Kerecis er metnaðar-
full og mun næstu kynslóðar tækni fyr-
irtækisins m.a. innihalda lifandi frum-
ur og er markmiðið að nota þá tækni
til meðhöndlunar á þrálátum sárum
en einnig til meðhöndlunar og jafnvel
uppbyggingar á sködduðum líffærum.
Þá er unnið að þróun á stoðefnum sem
ætluð eru til viðgerðar á kviðsliti, endur-
sköpun á brjóstum eftir brottnám vegna
krabbameins og viðgerðar á heilabasti,
en það er efnið á milli höfuðkúpu og
heilans sem getur rofnað vegna slysa
og krabbameins.
Kerecis var stofnað árið 2007 af Guð-
mundi Fertram Sigurjónssyni, lækn-
unum dr. Baldri Tuma Baldurssyni og
Hilmari Kjartanssyni ásamt Ernest
Kenney. Guðmundur er jafnframt fram-
kvæmdastjóri félagsins.
„Við erum mjög ánægð með samn-
inginn við Icepharma. Fyrirtækið er
leiðandi í ráðgjöf, sölu og þjónustu á
tækjum og rekstrarvöru á íslenskum
heilbrigðismarkaði og mun sjá um
þann þátt fyrir Kerecis þannig að við
getum einbeitt okkur að rannsóknum
og þróun,“ segir Guðmundur Fertram,
framkvæmdastjóri Kerecis.