Fréttatíminn - 16.05.2014, Page 86
— 6 — 16. maí 2014
Tæknivæddur tannlæknir
Með nýjustu tækni
eru tannlækningar
sársaukaminni og
þægilegri en áður fyrir
sjúklinga. Elva Björk
Sigurðardóttir tann-
læknir hefur mikinn
áhuga á nýjustu tækni
í faginu og, eins og
meirihluti íslenskra
tannlækna, sækir
reglulega ráðstefnur
og kynnir sér nýjungar.
Fyllingarvinnan tengist
ekki bara Karíusi og
Baktusi því með nýjum
fyllingarefnum er
hægt að breyta útliti
tanna mikið.
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
Elva Björk Sigurðardóttir er tannlæknir
og með brennandi áhuga á nýjustu tækni.
Hún sækir ráðstefnur og þing reglulega
og kynnir sér það nýjasta í fagtímaritum.
„Maður er alltaf með hugann við tannlækn-
ingar enda horfum við tannlæknar mikið á
tennurnar í fólki. Það eru ótrúlegir mögu-
leikar í dag með nýjum efnum og tækjum,
sem tengjast fyllingarefnum og tannsmíði. Í
dag eru miklu betri efni en voru í boði fyrir
tíu til fimmtán árum, bæði eru þau sterkari
og ná lit náttúrulegra tanna betur.“
Elva segir íslenska tannlækna almennt
áhugasama um að sækja sér endurmennt-
un, bæði innanlands sem utan og að kynna
sér nýjustu tækni. Hér á landi eru í boði
ýmsir viðburðir tengdir endurmenntun
yfir árið. „Við tannlæknar kynnumst nýrri
tækni á ráðstefnum og fyrirlestrum og
sækjum ráðstefnur hér heima og erlend-
is.“ Elva stundar allar almennar tann-
lækningar og fer því gjarnan á ráðstefnur
tengdar þeim. „Í mínu starfi er ég mikið
í tannsmíði, heilkrónum, brúm, skeljum
og tannfyllingum. Fyllingarvinnan tengist
ekki bara Karíusi og Baktusi því með fyll-
ingarefnum sem eru í boði í dag er hægt
að breyta formi tannar heilmikið til dæmis
síkka, breikka, loka „frekjuskörðum“ og
bæta fyrir slit tanna.
Elva er félagi í Bandaríska útlitstann-
læknafélaginu, AACD. Einu sinni á ári er
haldin stór ráðstefna í Bandaríkjunum þar
sem nýjungar, ný tæki og efni eru kynnt.
Þeir tannlæknar sem eru félagar fá nokkr-
um sinnum á ári sent tímarit með umfjöllun
um fyrir og eftir meðferðir, nýjar rannsókn-
ir og annað er viðkemur faginu. „Nýjustu
tækin sem við höfum hér á tannlæknastof-
unni eru meðal annars hitari fyrir fyllingar-
efni, vél sem auðveldar okkur rótarvinnslu
rótarganga, mjúkvefja-laser og „spoolhand-
stykki“.“
Elva notar alltaf hitara fyrir fyllingar-
efnin. Hann mýkir þau svo mun auðveldara
er að koma þeim fyrir í tönninni og forma
þau til. „Þetta er ekki bráðnauðsynlegt
tæki en þegar maður er búinn að kynnast
því getur maður ekki án þess verið.“
Mjúkvefja-laserinn er notaður til að
lagfæra útlínur tannholds, til dæmis að
stækka krónuhluta tannar þannig tönnin
verði „stærri” eða jafna tannholdsbrúnir.
„Hann nýtist líka vel við ofholdgun tann-
holds og til að stöðva blæðingu í tann-
holdi. Áður fyrr þurfti að oft skera þegar
verið var að jafna tannholdsbrúnir. Núna
nota ég laserinn og sjúklingurinn finnur
ekkert fyrir aðgerðinni og er fljótur að ná
sér.“
„Spoolið“ er í miklu uppáhaldi hjá
starfsmönnum stofunnar og er notað til
að gera tannhreinsun árangursríkari. Að
sögn Elvu virkar „spoolið“ eins og léttur
háþrýstiþvottur og nær að fjarlægja yfir-
borðslit tanna. „Þetta er punkturinn yfir
i-ið í tannhreinsun og mjög gaman að sjá
muninn fyrir og eftir og eru tennurnar af-
skaplega sléttar og fínar á eftir.“
Tannlæknar og tannsmiðir nýta sér
tölvutæknina og er nú er hægt að hanna og
smíða tennur í tölvum og tækjum tengdum
þeim. „Nokkur tannsmíðaverkstæði hér á
landi eru þegar komin með þessa tækni.
Eftir að tanngervið hefur verið „millað“ þá
fullklárar tannsmiðurinn útlit þess.“
Það tæki sem Elva bíður nú eftir að
komi á markaðinn er „skanni“ sem skann-
ar tennur sem undirbúnar hafa verið fyrir
tanngervi. Þá þarf ekki lengur að taka
mát með hefðbundnum hætti og segir
Elva kostina fyrst og fremst aukin þæg-
indi fyrir sjúklinginn. „Þessi tæki eru enn
í þróun og mjög dýr en verða örugglega
komin á markaðinn og á tannlæknastofur
hér á landi innan fimm ára. Hver væri svo
ekki til í hljóðlausan bor?“
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
Elva Björk fylgist grannt með helstu nýjungum í
tannlækningum og er félagi í Bandaríska útlits-
tannlæknafélaginu. Með Elvu á myndinni er Hjördís
Sævarsdóttir, tanntæknir. Ljósmynd/Hari