Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.05.2014, Síða 94

Fréttatíminn - 16.05.2014, Síða 94
— 14 — 16. maí 2014 Tómu rýmin Eftir niðurskurð áranna eftir hrun hefur nokkrum skurðstofum á landsbyggðinni verið lokað eða dregið úr starfsemi innan þeirra. Á öðrum stöðum hefur hús- næði staðið autt um tíma vegna breytinga, eins og á Vífilsstöðum, í Holtsbúð í Garðabæ og á sjúkrahúsinu á Keflavíkurflugvelli. Öll rými á Vífilsstöðum eru nú nýtt fyrir fólk sem bíður varanlegrar vistunar á hjúkrunar- heimili. Garðabær hefur fest kaup á húsnæði Holts- búðar, þar sem áður var hjúkrunarheimili, og er verið að kanna möguleika á að opna þar ungbarnaleikskóla. 1 Sankti Jósefsspítali Allri starfsemi á Sankti Jósefsspítala var hætt í ársbyrjun 2012. Síðan hefur húsnæðið staðið autt sem og bygg- ingin á móti sem í daglegu tali er nefnd Kató. Á dögunum var ákveðið að hús- næðið skyldi selt. Að sögn Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, er jákvætt að hreyfing sé komin á málefni Sankti Jósefsspítala. „Núverandi staða, að húsnæðið standi autt og grotni niður, er ekki ásættanleg. Ríkið á 85 prósenta hlut í húsnæðinu svo það er á ábyrgð þess. Ef kaupandi fæst að húsunum þá er það jákvætt en mikilvægast er þó að í húsnæðið öðlist hlutverk að nýju og að í það komist starfsemi sem skapar störf og þjónar nærsamfélagi sínu.“ Sankti Jósefsspítali var vígður árið 1926 og rekinn af Sankti Jósefssystrum til ársins 1978 er ríkið tók við rekstrinum. Ásgeir Theodórs var síðasti yfirlæknir spítalans og segir hann að undir það síðasta hafi því verið velt upp að flytja starfsemina í nútímalegra húsnæði. Byggingin hafi verið barn síns tíma og ekki hentug fyrir nútíma heilbrigðis- starfsemi. „Kjörið væri að opna þarna safn um heilbrigðisþjónustu í Hafnarfirði og um hið góða starf Sankti Jósefssystra. Með því væri sögu þeirra sýnd verð- skulduð virðing. Mikið er til af tækjum og tólum frá upphafsárum spítalans sem myndu sóma sér vel á slíku safni.“ Nú í vikunni voru Hollvinasamtök Sankti Jósefsspítala stofnuð í Hafnar- fjarðarkirkju. 2 Holtsbúð Garðabæ Húsnæðið að Holtsbúð 87 í Garðabæ stóð um tíma autt eftir að starfsemi hjúkrunarheimilis sem þar var fluttist í nýtt húsnæði. Að sögn Gunnars Einars- sonar, bæjarstjóra í Garðabæ, keypti bæjarfélagið Holtsbúð í mars á um 200 milljónir. „Þetta eru yfir 2.000 fermetrar og við höfum velt fyrir okkur ýmsum hugmyndum að nýtingu hússins í fram- tíðinni. Ein þeirra er ungbarnaleikskóli.“ Sinnum ehf. leigir hluta húsnæðisins, 16 einstaklings- og hjónaherbergi, og býður upp á búsetu fyrir eldra fólk. Einnig er boðið upp á búsetu fyrir yngra fólk og pör sem þurfa sérhæfða heimaþjónustu vegna veikinda eða annarra aðstæðna. 3 Skurðstofur á Suðurnesjum Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ var tveimur skurðstofum lokað árið 2010 svo í dag er engin slík starfsemi á svæðinu. Halldór Jónsson, forstjóri HSS, segir mikið hafa verið reynt að finna verkefni og leigja stof- urnar út en án árangurs. „Þessi þróun á sér stað um allt land og um allan heim af ýmsum ástæðum. Erfitt er í ýmsum tilvikum að fá sérhæft starfsfólk, sem nauðsynlegt er fyrir slíka starfsemi, til að búa úti á landi og sömuleiðis er heilbrigðisstarfsfólk almennt með sérhæfðari menntun en á árum áður og leitar því frekar eftir því að starfa á stærri og sérhæfðari einingum. Það var slæmt að missa þessa þjónustu úr nærsamfélaginu en við reynum að bæta þetta upp, til dæmis með starfsemi göngudeilda og komum sérfræðinga.“ 4 Vífilsstaðir fullnýttir að nýju Um tíma var engin starfsemi í húsnæði Vífilsstaða í Garðabæ en nú er búið að taka það allt í notkun og eru þar 42 rými á þremur hæðum. Vistmenn þar bíða allir eftir varanlegri vistun á hjúkrunarheimili. 5 Skurðstofa á Húsavík Eftir niðurskurð árið 2010 var skurð- stofustarfsemi hætt hjá Heilbrigðis- stofnun Þingeyinga á Húsavík. Að sögn Jóns Helga Björnssonar, framkvæmda- stjóra stofnunarinnar, er verið að skoða hvernig nýta eigi rýmið í framtíðinni. Íbúar sækja nú alla skurðstofuþjónustu, eins og fæðingarþjónustu, sem áður var veitt á Húsavík, til Akureyrar. 6 Hjúkrunarheimilið Garðvangur í Garði Allir íbúar Garðvangs fluttu um miðjan mars á Nesvelli, nýtt hjúkr- unarheimili í Reykjanesbæ. Húsnæði Garðvangs stendur því autt. Að sögn Magnúsar Stefánssonar, bæjarstjóra í Garði, er það stefna bæjarstjórnar- innar að þar verði aftur rekin hjúkrunarþjónusta við aldraða. „Það byggist á því að fjármagn fáist til nauðsynlegra endurbóta á hús- næðinu. Hugmyndir eru um að þar verði rekin 15 til 20 hjúkrunarrými og verður unnið í því að ná samningi við heilbrigðisráðuneyti um þann rekstur,“ segir Magnús. Húsnæðið Garðvangur er í eigu Dvalarheim- ilis aldraðra á Suðurnesjum, sem er samstarfsvettvangur sveitar- félaganna Garðs, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Voga og Reykjanes- bæjar. 7 Sjúkrahús Keflavíkurflugvelli Síðan Bandaríkjaher yfirgaf Keflavíkurflugvöll árið 2006 hefur sjúkrahúsið þar staðið autt og er í umsjón Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar, fram- kvæmdastjóra Kadeco, er búið að hreinsa allt út úr húsinu og endur- hanna það. Framkvæmdir eru þó ekki hafnar. „Við horfum til þess að útlendingum verði veitt heilsutengd þjónusta í húsnæðinu því tækifærin eru svo sannarlega til staðar og markaðurinn erlendis fyrir slíkt fer vaxandi.“ Bæði innlendir og erlendir aðilar hafa lýst yfir áhuga á að hefja starfsemi í sjúkrahúsinu og er Kjartan bjartsýnn á að af því verði fyrr en síðar. 8 Skurðstofur í Vestmannaeyjum Vegna niðurskurðar er skurðstofan á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja aðeins opin á dagvinnutíma. Þar eru framkvæmdar minni háttar aðgerðir en enginn svæfingarlæknir starfar við stofnunina. „Um leið og fjármagn fæst getum við aftur boðið upp á skurðstofu- þjónustu utan dagvinnutíma,“ sagði Gunnar K. Gunnarsson. 1 2 3 4 5 6 7 8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.