Fréttatíminn - 28.02.2014, Síða 56
F ramkvæmdum er að ljúka og við brestum í taumlausa gleði,“
segir Jón Halldór Jónas-
son, upplýsingafulltrúi hjá
Reykjavíkurborg.
Hverfisgatan hefur fengið
hressilega andlitslyftingu
á svæðinu milli Klappar-
stígs og Vitastígs undan-
farna mánuði og á morgun,
laugardag, verður endur-
bótunum fagnað.
Allt yfirborð götu og
gangstétta hefur verið end-
urnýjað ásamt lögnum. Nú
eru malbikaðar hjólareinar
beggja vegna götunnar og
gatnamót hafa verið stein-
lögð og upphækkuð. Snjó-
bræðsla er undir hellulögn
á gatnamótum og í göngu-
leiðum og á hjólareinum.
Formleg opnun Hverfis-
götunnar verður klukkan
14 á laugardag. Hún hefst
með skrúðgöngu frá Bíó
Paradís þar sem sirkusfólk
verður með í för. Lúðra-
sveit Samma heldur uppi
karnivalstemningu og fólki
er frjálst að viðra öskudags-
búningana kjósi það svo.
Klukkan 14.30 heldur Jón
Gnarr borgarstjóri ávarp
og dregið verður úr lukku-
potti sem fólk getur skráð
sig í.
Boðið verður upp á
veitingar frá Austur Indí-
afjelaginu og verða þær
veittar utandyra ef veður
leyfir, en annars inni í Bíó
Paradís. Allir eru velkomn-
ir á hátíðahöldin.
Í næsta áfanga endurnýj-
unar Hverfisgötunnar verð-
ur endurnýjaður kaflinn frá
Vitastíg að Snorrabraut.
Útlit þessa kafla verður
með svipuðu sniði og fyrir
neðan Vitastíg. Áætlað er
að framkvæmdir hefjist í
mars og þeim ljúki í ágúst.
Miðborgin EndurbótuM á HvErFisgötu Fagnað á laugardag
Heljarinnar húllumhæ á Hverfisgötu
Það verður mikið um að vera í miðborginni
um helgina. Matarhátíðin Food & Fun stendur
nú sem hæst og á laugardag verður endur-
bótum á Hverfisgötunni fagnað. Opnunarhátíð
Hverfisgötunnar hefst klukkan 14 og má búast
við miklu fjöri. Þennan sama dag verður langur
laugardagur í miðbænum og kaupmenn verða í
góðu skapi eins og aðrir.
– S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 6 , 101 R e y k j a v í k . w w w. g e y s i r. c o m –
M á nud a g a t i l L au g a r d a g a , 10 : 0 0 – 19 : 0 0
S u n nud a g a , 1 1 : 0 0 – 17: 0 0
REYKJAVÍK AKUREYRI
www.ullarkistan.is
NÝJAR VÖRUR
á börn og fullorðna
Sælkerasamlokur, djúsar,
kaffi og miklu meira.
HreinSun og endurnýjun í 55 ár
Laugavegi 86 sími 511-2004
Hjá okkur er mikið
úrval af fallegu
íslensku handverki
Laugavegi 8, sími 552-2412Laugavegi 24
Full búð aF Fallegum vörum
Hverfisgötu 105, sími 551-6688
Hverfisgatan milli Klapparstígs og Vitastígs hefur fengið
andlitslyftingu. Malbikaðar hjólareinar eru nú beggja vegna
götunnar og snjóbræðsla hefur verið sett undir. Opnunarhátíð
götunnar verður á laugardag klukkan 14. Ljósmyndir/Hari
56 miðborgin Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014