Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 5

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 5
SVEITARSTJORNARMAL Tímarit um málefni íslenzkra sveitarfélaga. i. árgangur Útgefandi og ritstjóri: 19 41 JÓNAS GUÐMUNDSSON, eftirlitsmaáur sveitarstjórnarmálefna. 1. HEFTI Utanáskrift: „Sveitarstjórnarmál11, Alþýðuhúsiá, Reykjavík. Sveitarstjórnarmálin era hvort tveggja í senn, einn fjölbreyttasti og yfir- gripsmesti þátturinn í opinberum málum hverrar menningarþjóðar. Valcl það og starfræksla sú, sem að lögum er lagt í hendnr sveitarstjórn- anna, er mikið og vandmeðfarið. Með öðrum menningarþjóðum er fyrir löngu vaknaður skitningur manna á mikilvægi þess, hve sveitarstjórnarmálin eru þjóðfélagslega þýðingarmikil. Má í því sambandi geta þess, að á öllum Norðurlöndum hafa verið gefin út tímarit um málefni sveitarfélaganna. Víða er og til félagsskapur með þeim mönnum, sem gegna störfum í hreppsnefndum og bæjarstjórnum, og nám- skeið haldin og skólar reknir fyrir unga menn, sem ætla sér að gefa sig að þeim málum. Hér á landi hefur enn ekkert verið gert í þessa átt. Ég hef ráðizt í útgáfu þessa rits í því skyni, að það geti orðið fyrsti vísir að meira samstarfi milli þeirra manna, sem sveitarstjórnarmál láta sig nokkru skipta, og i'il þess að auka þekkingu þeirra í þessum efnum. Von mín er sú, að innan skamms megi takast að koma á fót félagi íslenzkra sveitarstjórnarmanna, sem þá að sjálfsögðu tæki við úlgáfu ritsins og setli því ritstjórn, en sú er venjan um svipuð rit annars staðar, þar sem ég hef haft spurnir af. Störfum gegna nú hér á landi í bæjarstjórnum, sýslunefndum og lxrepps- nefndum nokkuð á annað þúsund manns, svo að ekki ætii það að vera ókleift að láta ritið bera sig f járhagslega, ef allir legðust á eitt. Allmargir áhrifamenn á sviði sveitarstjórnarmála og sérfræðingar í ýms- um þeim greinum, er sveitarfélögin varðar mestu, hafa þegar heitið ritinu stuðningi sínum. , Ég l'egg svo framtíð þessa rits í hendur íslenzkra sveitarstjórnarmanna i hreppum og kaupstöðum landsins. Ég er í engum efa um, að þeim muni tak- ast að gera það að tengilið sín í milli í öllu því, sem mestu máli skiptir í liinu þýðingarmikla starfi þeirra. Reykjavík, 1. sejit. 1941. JÓNAS GUÐMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.