Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 19

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 19
SVEITARST.TÓRNARMÁL 15 Ég hef nú, í svo stuttu máli sem unnt er, revnt að skýra aðalatriðin, sem út- reikningur framfærslunnar hvílir á, Aegna þess að ég veit, að langflestum eru þau með öllu ókunn, en þekking á þeim er nauðsynleg hverjum þeim, sem vill at- huga og fylgjast með í þessum málum. Ég skal því nú að lokum víkja að því, hvernig jöfnunarféð, þessar 700 þús. kr„ hafa skipzt milli sveitarfélaganna. Til jöfnunar á fátækraframfærslu, elli- og örorkubótum og kennaralaunum fóru samtals kr. 490 806.00. Þetta fé skiptist þannig: Kaupstaðirnir fengu 211 907.00 krónur, þó fá hvorki Reykjavík, Akureyri né Siglufjörður neitt af þessari upphæð, því enginn þeirra nær því að hafa meðaltals- framfærslukostnað. Til kauptúnanna 12, sem hafa yfir 500 íbúa, ganga kr. 81 590.00. Af þeim eru 5, sem ekki ná meðaltalsframfærslukostn- aði og fá því ekkert af þessari upphæð, en það eru: Akranes, Borgarnes, Patreks- fjörður, Ólafsfjörður og Eyrarbakki. Af hreppsfélögum og kauptúnum með undir 500 íbúum, sem samtals eru 194, fá 69 sveitarfélög jöfnun vegna fátækra- framfærslu, og var til þeirra greitt kr. 197 309.00, en 125 sveitarfélög ná því ekki að hafa meðaltalsframfærslukostnað eða þar yfir. Sýnir þetta vel, hve ákaflega misþungt framfærslan hvilir á sveitarfé- lögum landsins, þegar sami mælikvarði er lagður á mátt þeirra til að bera byrð- arnar. Meðan svo er, er því þörf fullkom- innar jöfnunar, ef ekki á illa að fara. Þeim rúmlega 200 þúsund krónum, sem eftir A'oru í Jöfnunarsjóði að full- kominni jöfnun lokinni eftir fyrirmæl- um framfærslulaganna, Arar nú skipt milli allra SAæitarfélaga landsins, í réttu hlut- falli A’ið framlag hvers þeirra, í krónum talið, til þessara mála. Urðu það 4%, sem hægt A'ar að greiða á hina samanlögðu útgjaldaupphæð. Kom þar þá fyrst til greina Reykjavíkurkaupstaður, sem fékk um 50% alls þess, sem eftir Arar, eða kr. 95 630.00. Ivaupstaðirnir hinir fengu sam- anlagt kr. 46 067.00, kauptún með yfir 500 íbúa fengu kr. 16 588.00 og hreppar og smærri kauptún kr. 34 258.00. Nokkur sveitarfélög náðu því ekki að fá 100 kr„ en lögin mæla svo fyrir, að minni upp- hæð en 100 kr. skuli ekki greidd neinum. HA'ers A'irði eru nú þessar uppbætur eða jöfnunargreiðslur fyrir sveitarfélög- in? Ýmsir telja, að í ranga átt sé stefnt með þessari aðferð og að hún ali upp tilhneigingu til að halda illa á því fé sveitarfélaganna, sem til framfærslumála er A'arið. Slík skoðun á lítinn rétt á sér og bygg- ist á misskilningi einum. Það stafar af því, að hvert sveitarfélag, sem kemst yfir meðaltalsframfærslukostnað, verður auk hans að hera sjálft x/3 hluta þess, sem umfram er. Þannig fær til dæmis sveitar- félag, sem greiðir 90 þús. kr. umfram meðaltalskostnað, ekki endurgreiddar nema 60 þús. kr„ 30 þús. kr. verður það sjálft að bera án allrar aðstoðar. Sjá allir, að það væri hreinn sparnaður, er næmi 30 þúsundum króna, ef slíkt sveitarfélag gæti haldið framfærslu sinni niður við meðaltalsframfærslumarkið. Hins vegar er það augljóst, að jöfn- unin er stórkostlegur styrkur fyrir þau sveitarfélög, sem hana fá, samanhorið við, að þau fengju ekkert. Það hefði held- ur aldrei komið til mála að gera þá breytingu á framfærslulögunum, sem gerð A'ar 1935, ef svipta hefði átt sveitar- félögin endurgreiðsluréttinum, sem þau áður höfðu. í stað þess, að þau áttu þá endurgreiðslukröfu á aðrar sA'eitir, eiga þau liana nú á sameiginlegan sjóð, er þióðfélagið allt leggur fé til, — Jöfnunar- sjóðinn. í raun og veru er það því sa'o, að þau sveitarfélög, sem eru sato ógæfusöin að lenda yfir meðaltalsframfærslumarkið, framfæra fyrir aðra alla þá, sem umfram eru. Þessa framfærslu er þjóðfélagsheild- inni skylt að greiða, og það gerir hún að % hlutum með jöfnuninni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.