Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 18

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 18
14 SVEITARSTJÓRNAUMÁL legt, að eins og Reykjavíkurkaupstaður hafði um það bil helming alls fram- færslukostnaðar í landinu, greiðir hann einnig sem næst helming allra ellilauna og örorkubóta, eða kr. 427 000.00 Kaup- staðirnir hinir greiða samtals til elli- launa og örorkubóta kr. 190 239.00 og kauptún kr. 52 880.00. Hreppar og kaup- lún með færri íbúum en 500 greiða sam- anlagt til þessara mála kr. 171 233.00. Til kennaralauna eru af sveitarsjóðun- um samtals greiddar kr. 693 000.00. Er hlutfall Reykjavikur þar lægra en í báð- uin hinum flokkunum, en hlutfall hinna kaupstaðanna samanlagt tiltölulega lang- hæst. Virðast þeir verja hlutfallslega mestu fé í þessu skyni. Til kennaralauna greiðir Reykjavík kr. 286 407.00. Kaupstaðirnir hinir greiða kr. 205 604.00, þ. e. að meðaltali tæpar 30 þús. kr. á hvern hinna 7 kaupstaða. Kauptúnin, sem hafa yfir 500 íbúa, greiða kr. 51 106.00, eða kr. 4 250.00 á hvert kauptún. Hrepparnir og smærri kauptún- in (194 samtals) greiða alls til kennara- launanna kr. 149 836.00, eða kr. 750.00 á Jivert sveitarfélag að meðaltali. Samanlagður kostnaður við fátækra- framfærslu, ellilaun og örorkubætur og kennaralaun, greiddur af öllum sveitar- félögum landsins, nemur 4 millj. 813 þúsund 677 krónum. Þetta er sú tala, sem lögð var til grundvallar við útreikning jöfnunargjaldsins árið 1938. Samkvæmt ákvæðum framfærslulag- anna er landinu öllu skipt í 2 jöfnunar- flokka. Eru i fyrsta flokki allir kaup- staðir landsins og kauptún með 500 íbú- um eða fleiri, en í öðrum flokki öll önn- ur sveitarfélög. Voru þannig 1938 í fyrri flokknum 20 sveitarfélög, en í hinum síð- ari 194. Meðaltalsframfærsluvísitala er síðan fundin fyrir hvorn þessara flokka og eft- ir henni reiknað út, hver ætti að vera framfærsla hvers einstaks sveitarfélags, þegar tekið er tillit til mannfjölda þess, milli 18 og 60 ára, skattskyldra tekna íbuanna, skuldlausra eigna og fasteigna- mats í sveitarfélaginu. Hafi sveitarfélag hærri útgjöld til þess- ara mála en meðaltalsframfærsluvísi- tala þess segir til um, fær það endur- greidda frá Jöfnunarsjóði % hluta þess, sein fram yfir er meðallagið. Hér við er það þó að athuga, að þegar lögin voru sett, var Reykjavík að því leyti mismun- að, samanborið við önnur sveitarfélög, að 10 af hundraði voru dregnir frá með- altalsframfærslukostnaði allra annarra sveitarfélaga en Reykjavíkur, og fékk hún þannig seinna en þau greiðslu vegna framfærslu sinnar. Þetta misrétti hefur nú verið lagfært með hinum nýju lireyt- ingum á framfærslulögunum, enda var þetta ákvæði orðið óþarft, þegar nægilegt fé var tryggt til fullrar jöfnunar. Sem dæmi mn, hvernig þetta verkar, er gott að taka Reykjavík og Hafnarfjörð. Reykjavík greiddi árið 1938 til fram- færslumála, elli- og örorkubóta og kenn- aralauna kr. 2 390 759.00, en meðaltals- framfærslubyrði hennar til þessara sömu mála átti að vera eftir allsherjar- vísitölunni 2 557 622.00. Vantaði Reykja- vík því 167 þúsund krónur til þess að ná meðaltali. Þetta þýðir það, að þó Reykja- vikurbær borgi nær 2,4 milljónir króna til þessara mála, er það hlutfallslega minna en fjöldamörg önnur sveitarfélög gera, þegar tillit er tekið til mannfjölda, tekna, eigna og fasteignamats í Reykja- vík og sami mælikvarði lagður á hana og aðra staði á landinu. Sem gagnstætt dæmi við Reykjavík má taka Hafnarfjörð. Hann greiðir 1938 til fátækramála, elli- og örorkutrygginga og kennaralauna samtals kr. 299 264.00, en meðaltalsframfærslubyrði hans til þess- ara mála er, samkvæmt allsherjar-vísi- tölunni, kr. 179 569.00. Hann greiðir því, þó allur kostnaður hans sé ekki nema um 12% af framlagi Reykjavíkur, um 120 þúsund krónum meira en meðalfram- færslukostnað í sínum flokki, þ. e. flokki kaupstaða og kauptúna. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.