Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Blaðsíða 25
SVEITARSTJÓRNARMÁL 21 Reykjavík Fram- færendur .. 1 385 Fram- færöir 3 175 Hafnarfjörður ... 203 425 ísafjörður 129 310 Akureyri 142 284 Siglufjörður 119 258 Vestmannaeyjar . 99 252 Seyðisfjörður .... 52 114 Neskaupstaður .. 42 133 Af kauptúnuniun er Eskifjörður að vonum langhæstur, með 60 framfær- endur og 185 á framfæri. Af sýslunum er Eyjafjarðarsýsla hæst, með 90 framfærendur og 200 á fram- færi, og Norður-ísafjarðarsýsla með 77 framfærendur og 219 á framfæri. Ein sýslan hefur enga framfærslu, og er það Austur-Skaftafellssýsla. Hér yrði of langt mál að fara ýtarlega út í það annað af þessu, sem húið er að vinna úr, enda verður það vafalaust gert síðar, þegar skýrslurnar hafa að fullu verið athugaðar. Ein er þó sú tegund framfærslunnar, sem rétt er að drepa lítillega á, en það eru barnsmeðlögin. Eru það miklar fjárhæðir, sem sveitar- félögin verða árlega að greiða vegna feðra óskilgetinna barna, og gengur mis- jafnlega að ná inn meðlögunum aftur. Til þess að gefa dálitla hugmynd um þessa grein framfærslunnar má geta þess, að aðeins í 8 kaupstöðum voru á árinu 1939 greidd meðlög úr bæjarsjóðunum vegna 360 barnsfeðra, sem höfðu fyrir að sjá 436 óskilgetnum börnum. Eins og vænta má, er þessi tegund fram- færslunnar mest í Reykjavík. Þar voru barnsfeðurnir, sem greitt var fyrir, 263 og börn þeirra 325. Næstur Reykjavík er Siglufjörður ineð 37 barnsfeður og 53 óskilgetin börn, þá Akureyri með 24 barnsfeður og 36 börn, Hafnarfjörður með 20 barnsfeður og 21 barn, ísafjörður með 9 barnsfeður og 19 börn og Vest- mannaeyjar með 7 barnsfeður og 9 börn. Seyðisfjörður og Neskaupstaður eru á því ári lausir við framfærslu óskilgetinna barna. Mjög væri æskilegt að geta gert nákvæman samanburð á framfærslunni nú og framfærslunni eins og hún var 1901. En það er talsverðum erfiðleikum bundið af mörgum ástæðum. Er það fyrst, að það, sem þá var kallað einu nal'ni fátækraframfærsla, hefur síð- an verið greint allmjög í sundur. Ríkið hefur, tekið á sig ýmsar byrðar, sem sveitarfélögin báru þá, og tryggingarnar tekið við verulegum hluta þess, sem þá var talið með fátækraframfærslunni. Má þar t. d. nefna kostnaðinn við berklasjúklinga, kynsjúkdóma og ýmsa aðra langvarandi sjúkdóma. Er þeim sjúklingum öllum sleppt hér nema að því leyti, sem sá hluti þess kostnaðar, sem sjúklingunum ber sjálf- um að greiða, er greiddur af sveitarfélag- inu og kemur fram í útgjöldum þess. Sama er um þann kostnað, sem fellur á sjúkrasamlögin og er geysimikill. Það, sem því eiginlega verður talin fá- tækraframfærsla hér nú, er allur styrk- urinn, sem sveitarfélögin sjálf veita, og sá ellistyrkur, scm • Tryggingarstofnun ríkisins veitir til II. flokks ellistyrkþeg- anna, enda greiða sveitarfélögin bróður- partinn af því, sem þar er úthlutað, eða 1939 rúmlega 900 þúsund krónur af þeirri 1,2 millj. króna, sem tryggingin úthlutar til gamalmenna í þessunj flokki. Eins og áður er sagt, eru hér á fram- færi árið 1939 samtals 10246 framfærslu- þurfar. Við þá tölu er þá rétt að bæta þeim gamalmennum í 2. flokki, sem ekki þiggja af sveit með ellistyrknum, og eru þau 1881. Samtals telst mér því þiggja styrk þann, sem svarar til þess, er áður fyrr var tal- inn framfærslustyrkur, alls 12 127 manns á öllu landinu. Samkvæmt manntalinu árið 1939 voru það ár hér á landi 120 264 menn. Svarar það þá til þess, að framfærslustyrks og ellilauna úr sveitarsjóðum hafi notið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.