Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 7

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 7
SVEITARSTJÓUNARMÁL 3 **■ liðar stjórnarskipulag á íslandi og um afstöðuna til Danmerkur, eða í sjálf- stæðismálinu. Þingsályktanir þessar eru svo hljóð- andi: 1. Um sjálfstæðismálið. „Alþingi ályktar að lýsa yfir því: að það telur ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita við Danmörku, þar sem ísland hefur þegar orðið að taka í sínar hendur meðferð allra sinna mála, enda hefur Danmörk ekki getað farið með þau mál, sem hún tók að sér að fara með í uinboði íslands með sam- bandssamningi íslands og Danmerkur frá 1918. að af íslands hálfu verði ekki um að ræða endurnýjun á sambandslagasátt- málanum við Danmörku, þótt ekki þyki að svo stöddu tímabært, vegna ríkjandi ástands, að ganga frá formlegum sam- bandsslituin og endanlegri stjórnarskip- un ríkisins, enda verði því ekki frestað lengur en til styrjaldarloka.“ 2. Um stjórnskipulag íslands. „Alþingi ályktar að lýsa yfir þeim vilja sínum, að lýðveldi verði stofnað á íslandi jafnskjótt og sambandinu við Ilanmörku verður formlega slitið.“ 3. Um æðsta vald í málefnum ríkisins. „Alþingi ályktar að kjósa ríkisstjóra til eins árs í senn, sem fari með það vald, er ráðuneyti íslands var falið ineð ályktun Alþingis hinn 10. apríl 1940, um æðsta vald í málefnum ríkisins." Allar voru þingsályktanir þessar sam- þykktar á Aljiingi 17. maí 1941, en þá er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Frá því að ályktanir þessar voru sam- þykktar og þar til þingsályktunin um æðsta vald í málefnum ríkisins kom til framkvæmda leið einn mánuður. Átti það vel við, að einmitt á fæð- ingardegi Jóns Sigurðssonar tæki ríkis- stjóri íslands við starfi sínu, og varð það ríkisstjórans fyrsta verk, er hann fíikisstjórakosningin d Alþingi 17. júní 19M.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.