Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Qupperneq 29
SVEITARSTJÓRNARMÁL
25
Hörður Bjarnason arldtekí:
SKIPULAG BÆJA.
Byggingarlegt skipulag borgar eða kauptúns snertir hvern einstakan mann,
sem þar býr, liinn elzta og binn yngsta.
Menn verða skipulagsins varir ætíð og alls staðar, livort sem litið er út um
gluggann, gengið eða ekið á götum úti. Allir eru því háðir daglega, en ef til vill
gera menn sér það ekki fullkomlega Ijóst, því daglegur vani og það að lifa
og brærast lengi í sama umhverfi dregur úr athygli manna á þeim atriðum,
sem skipulagið veldur, og ibúunum fer að finnast sjálfsagt, að umliverfi þeirra
sé og verði ætíð eins og það er.
En skipulag hæjar er ekki óumbreytanlegt, og menn eiga að láta sér skiljast,
að þeim ber að bafa vakandi auga á umbverfi sínu og að þeim er heimilt og
skylt að gera kröfu um breytingar þess, ef þeir liafa gildar ástæður.
Verkefni skipulagsins.
Skipulagsmál eru margþætt, því þau
eiga upptök sín í allri mannlegri starf-
semi á því svæði, sem tiltekið skipulag
nær yfir.
— En málum þessum er venjulega
skipt niður í ýmis afmörkuð svið, og
að hverju einstöku er unnið með ná-
kvæmri hliðsjón af öðru því, sem taka
þarf tillit til, svo að úr verði ein órjúfan-
leg heild, þegar verkinu er lokið.
Meðal þeirra atriða, sem hafa verður
einkum fyrir augum, þegar unnið er að
skipulagi, eru: fótksfjölgun staðanna,
með hliðsjón af afkomumöguleikum,
landshagir, atvinnumöguleikar íbúanna
og hin nauðsynlega skipting lands í
vinnustöðvar og íbúðarhverfi, með á-
kveðið mörkuðum viðskiptahverfum og
götum.
Aldrei má missa sjónar á framtíðinni,
og athuga verður, svo oft sem þurfa
þykir, möguleika til stækkunar bæjanna,
með sérstöku tilliti til umferðaæða eða
aðalbrauta frá kjarna bæjarins og hafn-
arhverfum til útjaðra og fjarliggjandi
athafnasvæða.
Almenn umferðarmál koma mjög mik-
ið við sögu, og enn fremur heilbrigðis-
mál, sem má segja, að séu ein af undir-
stöðum skipulagsvinnunnar.
Það er nú hin síðari ár orðið eitt aðal-
áhugamál þeirra, sem stjórna borgum
og stærri hæjum, að skapa skilyrði, svo
hægt sé að koma íbúunum yfir sumar-
tímann sem mest út úr skarkala og ryki
þéttbýlisins og veita þeim tækifæri til
þess að njóta hinnar frjálsu náttúru við
heilnæm útistörf. í sambandi við þá við-
leitni eru ræktunarlönd og garðahverfi
við útjaðra bæjanna, sem nú fara mjög í
vöxt.
Að lokum er svo hin fagurfræðilega
hlið í hyggingu borganna, en þar má
telja eftirlit með staðsetningu og frá-
gangi áberandi bygginga við aðalgötur
og torg. Enn fremur staðsetning minnis-
merkja og opinherra hygginga á staði,
sem slík mannvirki fá notið sín.
Þau atriði, sem hér hafa verið talin,
skiptast svo hvert og eitt í fleiri sjálf-
stæðar heildir, sem eru fjölbreyttar eftir
staðháttum og þörfum.
Þegar tiltekið skipulagsverkefni liggur
fyrir, má venjulega skipta framkvæmd-
um í þrennt:
í fyrsta iagi: Uppmælingar og athug-
anir hins ríkjandi ástands.
4